Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 27

Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 27
Flúor heldur áfram að hafa góð áhrif eftir að tennurnar hafa verið burstaðar. Í hillum verslana og apóteka er að finna margar gerðir af tannkrem- um. Lýðheilsustöð mælir með tann- kremi með flúor að styrkleika 0,01 prósent, eða 1.000 ppm. Flúorstyrk tannkremsins er hægt að sjá á inni- haldslýsingu vörunnar. Ekki er ráðlegt að nota barnatannkrem sem innihalda lægri flúorstyrk (500 ppm). Í staðinn á að nota sama tannkrem og fullorðna fólkið notar, bara í minna magni. Flúor úr tannkreminu heldur áfram að virka á tennurnar eftir tannburstun þannig að litlir úrkölk- unarblettir ná e.t.v. að kalkast aftur. Því er mikilvægt að skola ekki munninn eftir tannburstun, bara skyrpa. Það kemur heldur ekki að sök þó að fólk kyngi svo- litlu magni af flúortannkremi. Ef fólk vill endilega skola munninn eftir tannburstun er hollara að setja örlítið tannkrem aftur á burstann, bursta létt yfir tennurn- ar og skyrpa tannkreminu svo í vaskinn. Á markaði eru tannkrem sem innihalda ýmis önnur efni sem getur dregið úr tannholdssjúkdóm- um, tannstein og viðkvæmum tann- hálsum. Tannfræðingar og tann- læknar geta gefið góð ráð um virkni þessara tannkrema og því er um að gera að leita leiða hjá þeim. Ekki skola eftir tannburstun Forvarnasjóður stuðlar að áfengis- og vímuvörnum barna og ungmenna. Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarna- sjóði. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að áfengis- og vímuvörnum barna og ungmenna á mismunandi skólastigum eða meðal ungmenna utan skóla. Styrkirnir eru veittir til verk- efna eða afmarkaðra rannsókna og áhersla er lögð á samstarfs- verkefni, þar sem sérstaklega er auglýst eftir verkefnum sem taka til félagslegrar stöðu ungs fólks og ungs fólks af erlendum upp- runa. Mikilvægt er að fram komi í umsókn hvernig hægt verði að meta afrakstur verkefnisins. Lýðheilsustöð metur umsókn- irnar í samstarfi við áfengis- og vímuvarnaráð og áskilur sér rétt- inn til að senda umsóknir til fagaðila og óska eftir nánari upp- lýsingum um verkefni, fram- kvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og greiða út styrkinn í samræmi við framvindu. Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf fram- vinduskýrsla að liggja fyrir. Umsóknarfrestur er til 31. jan- úar 2007 og skal sótt um á sérstök- um eyðublöðum hjá Lýðheilsustöð. www.lydheilsustod.is Styrkir til forvarna PANTAÐU Í SÍMA WWW.JUMBO.IS 554 6999 SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.