Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 32
{ farið á fjöll } 4
Björgunarsveit Hafnarfjarðar hefur
yfir tveimur mikið breyttum jeppum
að ráða sem eru af gerðinni Nissan
Patrol. Þeir vinna sem par þar sem
annar jeppinn er alltaf til taks ef
hinn lendir í torleiði. Útköll sem þeir
sinna eru margvísleg en markmiðið
er að þessir bílar komist áfram þegar
aðrar bjargir þrjóta. Bílarnir eru sér-
útbúnir fyrir erfið útköll á jöklum
og á hálendinu. Til dæmis eru þeir
útbúnir með mjög lágan gír sem
kallast skriðgír. Í erfiðu færi er þá
hægt að láta bílana fara löturhægt
yfir og halda jafnframt togi á háum
snúningi og yfirvinna djúpan snjó
eða grýtta jörð. Driflæsingar eru á
fremra og aftara drifi, sem gerir það
að verkum að bíllinn tekur á öllum
hjólum þegar þarf. Oft er farið um
langan veg í erfiðu færi og eru auka-
eldsneytistankar undir þeim og dælt
er á millitank með dælu sem stjórn-
að er inn úr bílnum. Auk þessara
breytinga eru bílarnir útbúnir helstu
skyndihjálpar-, staðsetningar- og
fjarskiptabúnaði.
Breyttir björgunarjeppar
Áður en nýr bíll er keyptur er gott,
og í raun nauðsynlegt, að ástands-
skoða hann. Bæði til að ekki sé
keyptur kötturinn í sekknum og
einnig að ökutækið standist allar
öryggiskröfur.
Þetta er sérlega mikilvægt er
kemur að jeppum en þeir þurfa
margir hverjir að þola raunir sem
fæstir bílar þola. Álag veldur sliti og
skemmdum og því þarf kaupandinn
að ganga algjörlega úr skugga um
að hann viti hvað hann er að fara út
í áður en bíllinn er keyptur.
Ástandsskoðun er hægt að fá
víða. Allar skoðunarstöðvar bjóða
upp á slíka þjónustu og hægt
er að semja við flest verkstæði
að ástandsskoða bíla. Verðið fer
eftir því hvað er skoðað í bílnum.
Algengasta skoðunin felur í sér að
skrokkur, undirvagn og innrétting
er könnuð, sem og stýrisbúnaður,
miðstöð og slíkt. Þess konar skoðun
kostar á bilinu 6.000 til 8.000 kr.
Einnig er hægt að athuga ástand
vélar og drifbúnaðar og kostar
skoðunin þá meira og tekur lengri
tíma. Slíkar skoðanir geta marg-
borgað sig og ætti ekki að kasta
krónunni til að spara aurinn í þessu
tilviki frekar en öðrum.
Ástandsskoðun bíla
Arctic trucks selur mikið úrval af spilum.
Algengasta spilið er DS9500i-spilið en það
er 4,3 tonna spil og er frá Come-Up. Spilið
er 5 hestöfl, eða 3.730W. Það er til bæði
12v og 24v. Spilið er með þriggja þrepa
plánetugír og gírhlutfallið er 159:1. Spil-
ið sjálft er 33 kíló og kemur í tösku svo
auðvelt er að færa það milli bíla. Spil
getur komið sér vel ef bíll er illa
fastur á fjöllum uppi.
Spil geta komið sér vel á fjöllum