Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 34
{ farið á fjöll } 6
Fyrirtækið Fjallasport á Viðarhöfða
sérhæfir sig í hönnun og breyting-
um á 4x4 jeppum og hefur verið
starfrækt í tæp tíu ár. Reynir Jóns-
son er framkvæmdastjóri Jeppa-
sports og segir hann ásóknina í
þjónustu fyrirtækisins vera mikla.
„Við eigendurnir höfum verið í
fjallaferðum og breytingum síðan
við fengum bílprófið. Svo höfum
við verið að reka þetta fyrirtæki
síðan 1998 og sérhæfum okkur í
því að breyta jeppum, getum þess-
vegna komið þeim upp í 49˝ dekk.
Svo framkvæmum við líka minni
breytingar að sjálfsögðu og erum
að selja Thompson dekk ásamt öllu
því sem þarf í jeppaferðalög. Við
höfum bæði verslun og verkstæði
hjá okkur,“ sagði Reynir.
Fjallasport sérhæfir sig í Toyota
og Nissan ásamt amerískum pick-
up-um. „Við hækkum upp bíla og
setjum undir þá stærri dekk. Svo
setjum við brettakanta, driflæsing-
ar, toppgrindur, ljóskastara, drátt-
arbeisli og grillgrindur framan
á,“ sagði Reynir en hann telur að
langstærstur hluti jeppakaupenda
láti breyta bílum sínum. „Það er
ljóst að það er mjög stór hluti fólks
á Íslandi. Ég held að um 75 prósent
jeppafólks láti að minnsta kosti
gera eitthvað.“
Fjölmargir hér á landi líta á
jeppa sem áhugamál og segir
Reynir að metingurinn sé tals-
verður. „Það er mikill metingur
milli tegunda. Þegar menn ferðast
á fjöllum finnst hverjum sinn fugl
fagur. Það hefur verið mikil ásókn
í þessa amerísku bíla undanfar-
in ár. Þeir hafa verið á hagstæðu
verði og þótt spennandi kostur.
Svo er Land Cruiser alltaf jafn vin-
sæll. Við höfum þróað mjög flotta
breytingapakka á ýmsar gerðir.“
Sum verkefni sem Fjallasport
tekur að sér eru að sjálfsögðu stærri
en önnur. „Við tókum Ford F350
sem var á 9˝ dekkjum og náðum
að auka afl hans upp í 350 hestöfl.
Venjulega setur maður einn auka
milligír í hann en við settum tvo.
Hann tekur 500 lítra af olíu og við
smíðuðum undir hann loftpúða-
fjöðrun. Settum á hann einhverja
tvo kastara og hann er mjög ýktur
í dag,“ sagði Reynir.
- egm
Langstærstur hluti
fólks lætur breyta
jeppanum
Reynir Jónsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Fjalla-
sport sem sér um breytingar á jeppum. Hann telur um
75 prósent jeppakaupenda gera breytingar á sínum bíl.
3