Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 59
Verk McDonagh hafa notið vin- sælda hér á landi og telst mér til að Svartur köttur sé fjórða verkið sem íslensk atvinnuleikhús setja upp eftir þennan virta höfund. Verk hans hverfast flest um örvæntingu og ofbeldi og er hvort tveggja að finna í dálaglegum skömmtum í þessu verki – Svartur köttur má sannarlega kallast splatterkenndur vestri með slett- um af ádeilu og gríni. Havaríið hefst á því að dauður köttur finnst á vegi. Sá reynist eini vinur Patreks, ofbeldisfulls víga- manns (Ívar Örn Sverrisson) sem snýr heim og leitar hefnda. Ungl- ingurinn Davey (Guðjón Davíð Karlsson) og faðir geðsjúklingsins (Þráinn Karlsson) reyna sitt til þess að blekkja Patrek og telja honum trú um að kötturinn sé las- inn en upp kemst um þau svik og hyggst hann taka þá báða af lífi. Inn í söguna blandast síðan systir Daveys, Mairead (Þóra Karítas), og félagatríó Patreks úr INLA- samtökunum sem hyggst plaffa hann niður fyrir að vilja kljúfa sig úr félaginu (Gísli Pétur Hinriks- son, Ólafur Steinn Ingunnarson og Páll Sigþór Pálsson). Þetta verk fjallar um tilgangs- laust ofbeldi og tvöfalt siðferði og veltir þeim viðkæmu viðfangsefn- um upp úr blóði og gori. Það er erf- itt að sviðsetja ógnandi líkamlegt ofbeldi á sviði en hér er notast við skotvopn. Það er dálítið fyndið en langt frá því að vera raunverulegt. Stöðugar sprengingar hvellhetta sem hljómuðu meira eins og kín- verjar urðu fljótt hvimleiðar. Áhorfendur nútímans eru vanir „yfir-pródúseruðu“ ofbeldi en þetta var máttlítið og gervilegt. Tvöfalda siðferðið eða sjálfsrétt- lætingarþörfin sem litar allar per- sónurnar, birtist mismikið í svik- semi þeirra við hvert annað. Allir eru að reyna að bjarga eigin rassi en fólskan er á misskilningi byggð, persónurnar fyrst og fremst brjóstumkennanlegar og kómískar – maður trúir vart á hugsjóna- mennsku þeirra sem tengd er sjálf- stæðisbaráttu Írlands. Þeirra stríð er barnalegt og ádeilan þar af leið- andi broddlítil auk þess sem bak- grunnur verksins er óskýr – þrátt fyrir greinargóðan inngang í leik- skrá er litlu púðri varið í að útskýra aðstæður í verkinu sjálfu. Svartur köttur er farsakennt stofudrama í uppfærslu Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikstjóra. Leik- hópurinn stóð sig með ágætum á frumsýningunni enda samanstend- ur hann af ágætum grínleikurum. Að öðrum ólöstuðum naut Þráinn Karlsson sín best í hlutverki brókalallans Donny sem sonurinn ætlar að skjóta í hausinn. Samleik- ur hans og Guðjóns Davíðs var vel samstilltur og vel hægt að hlæja að vitleysunni í þeim og vandræða- ganginum með skóáburðinn. Ívar Örn Sverrisson leikur óbermið Patrek og var býsna ógnandi á köflum, einkum í upphafsatriðinu. Patrekur var barnaleg og aumkun- arverð andhetja sem átti litla samúð enda gerður að staðalmynd. Þóra Karítas var heillandi í sinni rullu sem hin blóðþyrsta Mairead, sem og Gísli Pétur Hinriksson sem gerði óþokkann Christy skelfilega spaugilegan. Honum til halds og trausts í tríóinu voru Ólafur Steinn og Páll Sigþór sem fóru ágætlega með trúðshlutverk sín. Kettirnir tveir voru einnig til prýði. Útlit sýningarinnar var ágæt- lega heppnað ef frá er talið lauf- skrúðið sem plantað var á efra sviðið. Gervin voru skemmtileg sem og líkin sem félagarnir þurftu að sarga í sundur. Músíkin var eitt stef og tilbrigði sem skipti upp atriðunum. Baráttusöngurinn sem rammar inn leikritið er nokkuð smellinn en tilbreytingarlaus. Það hefði verið rými fyrir meiri tónlist í þessu verki og mun meira hljóð. Ég var hrifin af myndbandsverk- inu sem fylgdi Mairead en það var samt alveg úr takti við restina, of nútímalegt í þessu gamaldags verki. Broddlítil blóðmarinering ÓFAGRA VERÖLD Fös 26/1 kl. 20 5.sýning Blá kort Sun 28/1 kl. 20 Lau 3/2 kl. 20 Fös 9/2 kl. 20 VILTU FINNA MILLJÓN? Fim 25/1 kl. 20 Fös 2/2 kl. 20 Lau 10/2 kl. 20 Fös 16/2 kl. 20 SAN FRANCISCO BALLETTINN Samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borgarleikhússins. Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20 Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14 Lau 19/5 kl. 20 UPPS. Sun 20/5 kl. 14 Sun 20/5 kl. 20 Miðaverð 4.800 MEIN KAMPF Lau 27/1 kl. 20 AUKASÝNING Fim 15/2 kl. 20 AUKASÝNING Lau 24/2 kl. 20 AUKASÝNING Síðustu sýningar EILÍF HAMINGJA Í samstarfi við Hið lifandi leikhús Sun 28/1 kl. 20 Frumsýning UPPSELT Fös 2/2 kl. 20 Sun 4/2 kl. 20 DAGUR VONAR Fös 26/1 kl. 20 UPPSELT Lau 3/2 kl. 20 UPPSELT Sun 4/2 kl. 20 Fös 9/2 kl 20 UPPSELT Sun 11/2 kl. 20 Lau 17/2 kl. 20 Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning er hafin. FOOTLOOSE Lau 27/1 kl. 20 UPPSELT Allra síðasta sýning RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 28/1 kl. 14 Sun 4/2 kl. 14 Sun 11/2 kl. 14 Sun 18/2 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fim 25/1 kl. 20 UPPSELT Fim 8/2 kl. 20 AUKASÝNING Fös 16/2 kl. 20 AUKASÝNING Síðustu sýningar KARÍUS OG BAKTUS Forsala miða hefst á miðvikudag. Sun 4. feb kl. 13 Sun 4. feb kl. 14 Sun 4 feb kl. 15 Sun 11.feb kl. 13 Sun 11.feb kl. 14 Sun 11.feb kl. 15 Gestaleikur frá Leikfélagi Akureyrar „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR Sýningin tekur 25 mínútur í flutningi. Miðaverð 1.450 kr. GRALLARARNIR Samstarfsaðili: Forsala hefst á morgun! Sýnt í Borgarleikhúsinu. Miðasala í síma 568 8000 og á netinu, www.borgarleikhus.is – ÖRFÁAR GERÐU ALLT Á AKUREYRI VITLAUST NÚ LOKSINS Í REYKJ SÝNINGAR AVÍK! Miðasalan opnar kl. 13.00 – fyrstir koma fyrstir fá! Einstakt forsölutilboð: Þeir fyrstu 1.000 sem kaupa miða og lofa að bursta tennurnar með Colgate fá miðann á aðeins 1.000 kr! Sun. 4. feb. kl. 13 Sun. 4. feb. kl. 14 Sun. 4. feb. kl. 15 Sun. 11. feb. kl. 13 Sun. 11. feb. kl. 14 Sun. 11. feb. kl. 15 Sun. 18. feb. kl. 13 Næstu sýningar: 25. feb. og 4. mars. Nú er tónlistin úr leikritinu komin út á geisladisk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.