Fréttablaðið - 23.01.2007, Síða 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er nú staddur úti í Danmörku.
Að safna kröftum. Tók mér frí frá
þessu en þegar nær dregur þá
kemur það,“ segir Ástþór Magnús-
son athafnamaður aðspurður um
það hvenær menn gætu farið að
eiga á því von að rödd hans sem
forsetaframbjóðanda fari að heyr-
ast.
Ástþór ætlar fram og á síðu
sem hann heldur úti, forsetakosn-
ingar.is, er teljari. Þar sem talið er
niður til næstu forsetakosninga.
Rétt rúmir 520 dagar samkvæmt
teljara Ástþórs. Hann er þó ekki
kominn í kosningastellingar enn
sem komið er en hugsar sitt þar
sem hann situr í Danaveldi. Ást-
þór segist ætla fram allt þar til
friðarmálin verða komin á dag-
skrá á Bessastöðum. Ástþór hóf
baráttu sína fyrir því að verða
kosinn forseti árið 1996, þá
undir slagorðinu „Virkjum
Bessastaði“. Hafði ekki
erindi sem erfiði en hefur
reglulega, á fjögurra ára
fresti, lýst yfir framboði eins
og íslenskir kjósend- ur
muna. Verður
árið 2008
þar engin
undantekn-
ing á. Nú
þegar eru
menn farn-
ir að velta
fyrir sér lík-
legum
kandídötum
á netinu og þannig hefur bloggar-
inn Steingrímur Sævarr Ólafsson
stungið upp á Ólafi Ólafssyni
sem kenndur hefur verið
við Samskip. Síður er gert
ráð fyrir því að Ólafur
Ragnar Grímsson fari fram
því einhvers staðar er haft
eftir honum að ekki sé
æskilegt að forseti
sitji lengur en í
16 ár.
„Hann sagði nú reyndar á
sínum tíma að hann ætlaði bara
að sitja í tvö kjörtímabil þannig
að það er langur vegur frá því að
hann sé sjálfum sér samkvæm-
ur,“ segir Ástþór og furðar sig á
því að Ólafur hafi ekkert svo heit-
ið geti beitt sér á alþjóðavett-
vangi í friðarmálum – sem hann
segir algera nauðsyn að koma á
dagskrá. Heimurinn á hverfanda
hveli.
„Þetta eru tvö stærstu mál
samtímans. Friðarmálin og
umhverfismálin. Ef við gerum
ekkert í friðarmálum útrýmum
við okkur með kjarnorkuvopnum
á næstunni og ef ekkert er gert í
umhverfismálunum drukknum
við í eigin skít.“
Ástþór fram til forseta enn og aftur
Brynhildur Guðjónsdóttir hefur
sagt upp störfum hjá Þjóðleik-
húsinu eftir farsælan feril í átta
ár. Þetta staðfesti hún í samtali
við Fréttablaðið. „Það er ein-
hvern veginn andstætt eðli mínu
að vera ríkisstarfsmaður,“ segir
Brynhildur en tekur skýrt fram
að engum hurðum hafi verið
skellt þegar hún afhenti Þjóð-
leikhússtjóra uppsögnina. „Allt
hefur sinn enda og það var kom-
inn tími breytinga hjá mér,“
útskýrir Brynhildur, sem telur
kröftum sína betur varið á öðru-
vísi hátt. „Að starfa innan Þjóð-
leikhússins var bara ekki lengur
það sem ég vildi og frá með 1.
mars verð ég lausráðinn leik-
ari,“ segir Brynhildur.
Brynhildur sagði uppsögn-
ina þó ekki útiloka frekari
verkefni í Þjóðleikhúsinu. „Ég
er ekki að setjast í helgan
stein en ég fór að kíkja á
ferilskrána og var ánægð
með hana. Ég vildi einfald-
lega fara að horfa í aðrar
áttir,“ segir hún.
Leikkonan klárar
þau verkefni sem
fyrir liggja hjá
Þjóðleikhúsinu
en hún undirbýr
nú af krafti
enska upp-
færslu á Pétri
Gaut sem
frumsýnd
verður í Bar-
bican Center. „Þar sem ég var
einmitt í skóla fyrir níu árum,“
segir Brynhildur og auðheyrt að
hana hlakkar mikið til að koma
aftur á fornar slóðir. Þá leikur
hún eitt aðalhlutverkanna í Sitji
guðs englum sem sýnd er fyrir
fullu húsi og tekur þátt í franskri
leiksýningu sem sett verður upp
í mars. Hvað önnur verkefni
varðaði vildi Brynhildur ekkert
tjá sig um en sagði þau skýrast á
næstu misserum. „Fæst orð bera
minnstu ábyrgð,“ sagði hún.
Brynhildur segir upp hjá Þjóðleikhúsinu
„Þetta er ekki héraðsmót heldur
heimsmeistarakeppnin í handbolta
í Þýskalandi,“ segir Adolf Ingi
Erlingsson, íþróttafréttamaður
Ríkissjónvarpsins, þegar hann
lýsir framgöngu Huga og Audda
sem hneykslanlegri.
Þeir Hugi Halldórsson og Auð-
unn Blöndal segja hins vegar farir
sínar ekki sléttar á HM í Þýska-
landi og saka íþróttafréttamann-
inn Adolf Inga Erlingsson um að
hafa gengið erinda þýskrar yfir-
stjórnar í að meina þeim að taka
upp efni fyrir stuðningmanna-
klúbbinn Í blíðu og stríðu. Hugi
gengur svo langt að segja fram-
göngu Adolfs hreinlega hafa orðið
til þess að þeir hafi ekki getað
sinnt sínu starfi, þeim hafi verið
úthýst og ekki náð að taka upp
neitt efni á vef stuðningsmanna
eftir leik Íslands og Úkraínu.
Hugi segist hafa vitað að þeir
gætu ekki farið inn með myndavél
á leik Íslands og Ástralíu þar sem
þeir voru ekki með þar til gerða
passa.
„Við fengum Adolf því til að
smygla henni inn,“ segir Hugi.
Þegar leikurinn við Ástralíu á
laugardeginum kláraðist náði Hugi
í vélina og þeir hófust handa við að
taka upp. „Þegar Adolf sá hvað var
á seyði kom hann og húðskammaði
okkur,“ segir Hugi og heldur því
fram að Adolf hafi í kjölfarið til-
kynnt þá til hæstráðanda Sportfive,
sem á sjónvarpsréttinn að mótinu,
og hann hafi komið í veg fyrir
frekari upptökur af þeirra hálfu.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Adolf Inga hafnaði hann því alfar-
ið að hafa staðið fyrir því að Audda
og Huga var meinaður aðgangur.
En var ómyrkur í máli þegar hann
lýsir framgöngu „strákanna
hinna“. Segir þá hafa orðið sér til
skammar og brotið allar hugsan-
legar reglur um framgöngu fjöl-
miðla á mótinu. Meðal annars með
því að fara inn á bannsvæði. Fjöl-
margir hafi hneykslast auk sín.
„Yfirmaður Sportfive kom að
máli við mig og vildi vita hvort
þeir störfuðu á vegum RÚV,“ segir
Adolf. „Ég þverneitaði fyrir það
enda hefði þetta getað komið okkur
ákaflega illa. En ég sýndi þeim síð-
una sem strákarnir starfa fyrir.
Þar gat hann séð hvað þeir voru að
gera og fyrir hvern. Mér finnst
þetta auðvitað leiðinlegt fyrir
stuðningsmannaklúbbinn en menn
geta ekki komið hingað út og hagað
sér eins og þeir vilja.“
Fjalar Sigurðsson hjá stuðn-
ingsmannaklúbbnum „Í blíðu og
stríðu“ viðurkennir að ferð þeirra
félaga hafi verið ákveðin með of
stuttum fyrirvara og þarna hafi
verið gerð ákveðin mistök. Hann
segir stuðningsmannafélagið hafa
átt í góðu samstarfi við RÚV.
„Við vissum að þeir fóru þang-
að án réttu pappíranna og að því
gæti farið svona,“ segir Fjalar.
... fær tónlistarmaðurinn Örn
Elías Guðmundsson, sem vakti
athygli hins kunna leikstjóra
Walter Salles og fær að semja
tónlist við næstu mynd hans, Á
vegum úti.
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS