Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 2
Geir H. Haarde for-
sætisráðherra segir niðurstöður
nýlegrar skýrslu um fátækt
barna sýna að fátækt virðist mjög
tímabundið hlutskipti hjá flest-
um og sé það staðfesting á hve
Íslendingum virðist í blóð borið
að bæta stöðu sína eftir því sem
tíminn líður. Máli sínu til stuðn-
ings benti hann á að athugun
hefði leitt í ljós að þrír fjórðu
þeirra fjölskyldna sem töldust
fátækar árið 2000 voru það ekki
lengur árið 2004.
Skýrsla sem unnin var fyrir
forsætisráðherra að beiðni Helga
Hjörvar Samfylkingunni og ann-
arra, og var kynnt í desember, var
til umræðu á Alþingi í gær.
Geir H. Haarde sagði að með
aðferðafræði OECD til mælingar á
fátækt – sem notuð var við skýrslu-
gerðina – myndu alltaf einhverjir
teljast fátækir. Mikil hækkun
tekna og kaupmáttaraukning leiði
til hærri fátæktarmarka. „Af því
leiðir að ráðstöfunartekjur þeirra
sem flokkast fátækir eru miklu
hærri í dag en ráðstöfunartekjur
þeirra sem töldust fátækir hér á
landi fyrir tíu árum. Hins vegar
helst hlutfallsleg fátækt nánast
óbreytt hér á landi á þessu tíma-
bili.“ Jafnframt sagði Geir það
annmarka á aðferðafræðinni að
mæla fátæktina á aðeins einum
tímapunkti. Ábyrgðarmenn barna
gætu verið nýkomnir inn á vinnu-
markað eða hafa lent í tímabundn-
um áföllum. Mælingin gæfi því
rangar upplýsingar um raunveru-
lega fátækt til lengri tíma.
Geir sagði það meginniður-
stöðu skýrslunnar að Ísland væri í
hópi þeirra OECD-ríkja þar sem
fátækt barna mældist hvað
minnst.
Helgi Hjörvar gaf lítið fyrir
þessa túlkun forsætisráðherra og
sagði rangt að bera Ísland saman
við OECD-ríkin, rétt væri að bera
okkur saman við Norðurlöndin.
„Þegar hæstvirtur forsætisráð-
herra segir að við séum í fremstu
röð í OECD-ríkjunum þá er það út
af fyrir sig rétt, í samanburði við
Mexíkó og Tyrkland og svo fram-
vegis. En í samanburði við lönd
sem við erum vön að bera okkur
saman við – hin Norðurlöndin – þá
erum við aftast. Hér er staða
fátækra barna verst.“ Helgi gerði
jafnframt athugasemdir við að
skýrslan hefði borist seint og í
henni væri ósvarað hluta þeirra
spurninga sem óskað var svara
við.
Fjölmargir þingmenn tóku til
máls og höguðu málflutningi
sínum ævinlega í takt við hvort
þeir tilheyrðu stjórn eða stjórnar-
andstöðu.
Aron Pálmi, hvernig líst þér á
að vera bundinn við skólabekk
næstu tíu árin?
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
CHEVROLET TRAIL BLAZER LT
Nýskr. 09.04 - Sjálfskiptur - Ekinn 48 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð á
ður: 3.
380.0
00-
Tilboð
:
2.980.
000.-
Ekið var á gangandi vegfar-
anda á Frakkastíg í Reykjavík um
fimm leytið í gær. Hann var
fluttur á slysadeild Landspítalans
en er að sögn fulltrúa lögreglunn-
ar ekki alvarlega meiddur. .
Ökumaður bílsins stakk af eftir
ákeyrsluna en annar vegfarandi sá
bílnúmerið og skrifaði það niður.
Lögregla hafði uppi á bílnum um
hálftíma síðar og fór með öku-
manninn ásamt farþega niður á
lögreglustöð. 140 grömm af hassi
fundust í fórum farþegans þegar
leitað var á honum.
Keyrði á mann
og stakk af
Viðamikil hvalataln-
ing verður í Norður-Atlantshafi í
sumar og gæti orðið sú viðamesta
frá upphafi. Talningin er hluti af
fjölþjóðlegu rannsóknarverkefni.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son mun telja hvali samhliða
karfarannsóknum, auk þess sem
talið verður úr lofti á landgrunn-
inu. Unnið er að því að talninga-
menn verði líka á karfarannsókna-
skipum Þjóðverja og Rússa hér við
land. Hafrannsóknastofnunin
ætlar að fá til samstarfs eitt til tvö
íslensk skip til að aðstoða við
talninguna.
Gott mat hefur fengist á fjölda
langreyða og hrefnu við Ísland úr
talningum sem þessum. Niðurstöð-
ur benda ennfremur til verulegrar
fjölgunar hnúfubaks hér við land
auk nokkurrar fjölgunar í öðrum
tegundum.
Fjölþjóðlegt
átak í sumar
Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra staðfesti
sameiningu lögregluembættanna
á Keflavíkurflugvelli og í
Keflavík í gær. Hann heimsótti
lögregluvarðstofuna í Reykjanes-
bæ í gær og skrifaði undir
staðfestingu nýs skipurits sem
sameinar embættin tvö.
Embætti lögreglunnar á
Suðurnesjum tók til starfa um
seinustu áramót. Það er nú orðið
næststærsta lögregluembætti
landsins með yfir 220 starfsmenn.
Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, kynnti
nýjar áherslur embættisins,
meðal annars aukinn sýnileika og
eflingu teymis lögreglumanna í
fíkniefnamálum.
Skrifaði undir
nýtt skipurit
Fátækt virðist mjög
tímabundið ástand
Tekist var á um aðferðafræði í umræðum um fátækt barna á Alþingi í gær. For-
sætisráðherra segir stöðu Íslands með því besta sem gerist innan OECD en Helgi
Hjörvar segir rétt að miða við Norðurlöndin og Ísland standa þeim að baki.
Staða efnahagsmála
verður rædd utan dagskrár á
Alþingi í dag. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, verður málshefjandi
en til andsvara verður forsætis-
ráðherra Geir H. Haarde,
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Af dagskrármálum þingsins í
dag má nefna lokafjárlög ársins
2005 sem er mál fjármálaráð-
herra og vegalög og fjarskipti
sem heyra undir samgönguráð-
herra. Þá er í starfsáætlun gert
ráð fyrir að þingmannamál verði
tekin til umræðu.
Efnahagsmálin
utan dagskrár
Tvítugur Palestínu-
maður, Mohammed Saksak frá
Gaza-borg, sprengdi sjálfan sig í
loft upp í gær og varð um leið
þremur öðrum að bana í bakaríi í
ferðamannabænum Eilat, sem er
syðst í Ísrael.
Þetta er í fyrsta sinn í níu mán-
uði sem Palestínumaður gerir
sjálfsmorðsárás í Ísrael. Aldrei
fyrr hefur slík árás verið gerð í
Eilat.
Ráðamenn í Ísrael fordæmdu
árásina og segja hana stofna
vopnahléi á Gaza-svæðinu í hættu.
„Það er greinilegt að öfgahópar
gera allt sem þeir geta til að stöðva
vopnahléð,“ sagði Amir Peretz
varnarmálaráðherra, og kallaði
saman yfirmenn öryggismála á
neyðarfund til að ræða hver við-
brögðin ættu að vera.
Tveir herskáir hópar Palestínu-
manna, Heilagt stríð íslams og Al
Aksa skæruliðasveitirnar, lýstu
yfir ábyrgð sinni á árásinni.
Báðir hóparnir sögðu tilgang-
inn með árásinni vera þann að
binda enda á innbyrðis átök milli
Hamas og Fatah, tveggja helstu
hreyfinga Palestínumanna.
„Aðgerðin gefur andstæðum
hópum Palestínumanna skýr skila-
boð. Það er nauðsynlegt að hætta
innbyrðis átökum og beina byss-
unum að hernáminu sem hefur
skaðað palestínsku þjóðina,“ segir
á vefsíðu Heilags stríðs íslams.
Meira en fjórða hvert
barn í Fellaskóla í efra Breiðholti
er af erlendum uppruna. Börnin
eiga það öll sameiginlegt að
íslenska er þeirra annað tungu-
mál. Um 60 prósent þessara barna
hafa búið skemur en í fjögur ár
hér á landi og segir Þorsteinn
Hjartarson, skólastjóri Fella-
skóla, nauðsynlegt að líta til
breyttra kennsluhátta fyrir þann
stóra hóp sem hefur íslensku sem
annað tungumál. Hefðbundin
móðurmálskennsla dugi ekki fyrir
þau.
Til þess að auðvelda samskipti
og kennslu við skólann hefur Þor-
steinn meðal annars ákveðið að
láta nær alla upphæð sem Símennt-
un veitir til námskeiðshalds í fjöl-
menningarlegri kennslu.
„Hlutfall erlendra barna hefur
hækkað mjög hratt síðustu ár. Til
að mynda held ég að aðeins 15 pró-
sent hafi verið af erlendu bergi
brotin hér árið 2002. Það reynir
auðvitað á þegar margir og ólíkir
menningarheimar mætast en hluti
af námskeiðinu felst í því að við
temjum okkur jákvætt hugarfar
svo við náum að nýta reynslu og
þekkingu þessa ólíku hópa,“ segir
Þorsteinn.
Hann segir samsetningu hóp-
anna mjög margvíslega en Filipps-
eyingar séu þeirra fjölmennastir.
Þegar hafi verið ráðinn kennari
sem talar filippseysku við skólann
en hann segir nauðsynlegt að
stundakennarar með þekkingu á
tungumálum algengustu hópanna
verði ráðnir til skólans.
Meira en fjórði hver nemandi
er af erlendum uppruna
„Það er ekki spurning um
að útrás íslensku drauganna gengur
vel enda hljómar Djákninn á Myrká
afskaplega vel á kínversku,“ segir
Benedikt Gunnarsson, forstöðu-
maður Draugasetursins á Stokks-
eyri. Þar hefur verið brugðist við
síaukinni fjölgun kínverskra
ferðamanna með því að þýða
draugasögur á kínversku. Benedikt
segist vonast til þess að þetta muni
verða öðrum til eftirbreytni þar
sem afþreyingarefni fyrir þessa
fjölmennu þjóð sé af skornum
skammti hér á landi.
Sögurnar hafa verið þýddar á
japönsku, rússnesku, þýsku, ensku,
Norðurlandamál og frönsku.
Íslensku draug-
arnir í útrás