Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 64
 Ólafur Stefánsson, fyr- irliði íslenska landsliðsins, leiðir ekki aðeins sína menn inn í einn stærsta leik í sögu handboltalands- liðsins í dag heldur mun hann einnig skrifa sitt nafn á spjöld íslensku handboltasögunnar. Ólaf- ur mun leika sinn 44. leik í úrslita- keppni heimsmeistaramótsins í Hamburg og bæta þar með met Guðmundar Hrafnkelssonar sem hefur staðið undanfarin sex ár. Ólafur er aðeins fjórði maðurinn til að slá metið á síðustu þremur áratugum en hinir methafarnir eru Geir Sveinsson og Hjalti Ein- arsson. Ólafur er löngu orðinn langmarkahæsti íslenski leikmað- urinn í úrslitakeppni HM en hann hefur alls skorað 184 mörk í þess- um 43 leikjum. Næsti maður á list- anum er Guðjón Valur Sigurðsson (132 mörk) sem fór fram úr Patr- eki Jóhannessyni (121 mark) í Þýskalandi. Ólafur Stefánsson lék sinn fyrsta leik í úrslitakeppni HM í Laugardalshöllinni 7. maí 1995. Mótherjarnir voru Bandaríkja- menn og íslenska landsliðið vann öruggan 11 marka sigur, 27-16. Ólafur spilaði ekki mikið í leikn- um og klikkaði á eina skoti sínu. Ólafur leysti bæði af Sigurð Val Sveinsson í skyttunni sem og þá Valdimar Grímsson og Bjarka Sig- urðsson í horninu. Hann var með í öllum sjö leikjunum og skoraði 11 mörk og gaf 11 stoðsendingar. Ólafur nýtti skotin sín mjög vel og skoraði meðal annars úr 8 af 16 langskotum sínum. Frá og með keppninni í Kumamoto 1997 hefur Ólafur verið í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu og er nú á góðri leið með að gefa flestar stoðsendingar fimmtu heimsmeistarakeppnina í röð. Fyrir leikinn í kvöld hefur Ólafur alls gefið 255 stoðsending- ar á félaga sína sem gefa 5,9 stoð- sendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppni HM. Hann hefur ennfremur átt þátt í 11,8 mörkum eða meira í leik á síðustu fjórum keppnum. Ólafur var markhæsti leikmaður íslenska liðsins á bæði HM 2001 í Frakklandi og á HM í Portúgal 2003 en fyrir tveimur árum skoraði aðeins Guðjón Valur Sigurðsson fleiri mörk en Ólafur. Ólafur hefur spilað flesta HM- leiki á móti Júgóslavíu og Rúss- landi eða þrjá á móti hvorri þjóð. Hann hefur alls spilað gegn 28 þjóðum á HM en leikurinn í kvöld er sá fyrsti sem hann spilar gegn Dönum í úrslitakeppni heimsmeist- aramótsins. Ísland hefur ekki mætt Dönum á HM síðan á HM í Svíþjóð 1993. Leikurinn í kvöld verður einnig fimmti HM-leikur Ólafs í útsláttarkeppni og vonandi gengur betur en áður því þrír af fjórum leikjum hans með landsliðinu í 16 eða 8 liða úrslitum heimsmeistara- mótsins hafa tapast. Guðmundur Hrafnkelsson bætti leikjamet Geirs Sveinssonar á HM í Frakklandi 2001 og bætti síðan við það í HM í Portúgal tveimur árum síðar. Metleikurinn var í 22-24 tapi fyrir Egyptum. Það er vonandi að Ólafur nái að breyta út af venjunni því metleik- ur Geirs Sveinssonar á HM 1993 tapaðist einnig en Ísland lá þá 21- 22 fyrir Tékkum í leik um 7. sætið. Leikurinn gegn Dönum í 8 liða úrslitum HM í Þýskalandi verður 44. leikur Ólafs Stefánssonar í úrslita- keppni HM. Hann tók fyrst þátt í HM á Íslandi fyrir tæpum tólf árum. Það mátti sjá á dönsk- um fjölmiðlum í gær og í fyrradag að handboltaspekingar þar í landi eru afar sigurvissir fyrir leik Íslands og Danmerkur í fjórðungs- úrslitum HM í handbolta í kvöld. „Þeir eru mjög sigurvissir. Ég fann það strax eftir leikinn á sunnu- dag,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðs- ins Skjern. „Margir sögðu að það væri nánast formsatriði fyrir liðið að komast í úrslitaleikinn. Pólland og Rússland yrðu engin fyrirstaða, hvað þá Ísland.“ Sigurvegari leiks- ins í kvöld mætir sigurvegara leiks Póllands og Rússlands sem hefst klukkan 16.30 í dag. Aron sagði að þjálfurum og leikmönnum danska liðsins hefði tekist að draga aðeins úr vænting- um landa sinna, þetta væri ekki alveg svo auðvelt. „Þeir reyndu að segja að þessar þjóðir væru góðar líka, alveg eins og Spánn, Króatía og Frakkland. En því var samt ekki að leyna að þeir eru frekar sigurvissir.“ Gengi danska liðsins hefur verið nokkuð hliðstætt gengi Íslands á HM. Bæði lið töpuðu óvænt snemma á mótinu (fyrir Ungverjalandi og Úkraínu) og unnu svo sterka þjóð til að koma sér aftur á beinu braut- ina (Spán og Frakkland). Aron segir hins vegar muninn á danska og íslenska liðinu liggja í breiddinni. „Margir leikmenn danska liðs- ins hafa komið við sögu til þessa og hefur verið misjafnt hvaða leikmaður dregur vagninn í hverj- um leik. Það jákvæða við þetta er að leikmenn eru ekki eins þreyttir og leikmenn annarra liða. Á móti kemur að liðið hefur átt erfitt með að finna taktinn sinn vegna tíðra skiptinga.“ Hann segir að vörn og mar- kvarsla sé mesti kostur liðsins. „Í síðustu leikjum hefur liðið verið að spila frábæra 6/0 vörn og mark- verðirnir hafa verið mjög sterkir,“ segir Aron sem býst við jafnri og spennandi viðureign í kvöld. „Ef leikmenn Íslands eru í góðu líkamlegu standi býst ég við gal- opnum leik. Ég vona bara að íslenska hjartað hafi þetta á end- anum.“ Aron þekkir vitanlega vel til Arnórs Atlasonar sem hefur sleg- ið í gegn með FCK í dönsku deild- inni í haust. Hann stóð sig einnig afar vel með Íslandi á EM í Sviss í fyrra en hefur ekki náð sér á strik í Þýskalandi. „Þetta hefur komið mér mikið á óvart. Hann hefur verið frábær í deildinni í haust og hefur greini- lega getuna. Þetta hlýtur því að vera spurning um sjálfsöryggi og sjálfstraust.“ Arnór sé því dottinn aftar í goggunarröðina, sérstaklega eftir frammistöðu Markúsar Mána gegn Þýskalandi þar sem hann skoraði tíu mörk. „Alfreð hlýtur að velja þá menn í sinn hóp sem hafa verið að standa sig hvað best til þessa á mótinu.“ Danir búnir að bóka sæti í úrslitaleiknum Ríkissjónvarpið mun sýna alla fjóra leikina í fjórðungs- úrslitum HM í handbolta. Tvo þeirra í beinni útsendingu, Þýskaland-Spánn og Ísland- Danmörk. Í dagskrárlok í kvöld verða síðari hálfleikir hinna leikjanna, Frakkland-Króatía og Pólland- Rússland, sýndir frá kl. 23.30. Allir leikirnir fjórir verða svo sýndir í heild sinni í upphafi dagskrár á morgun, frá kl. 11.05. Allir leikir 8-liða úrslita sýndir Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að Ben Foster muni taka við af Paul Robinson sem aðalmarkvörður enska landsliðs- ins. Ferguson segir Foster vera að komast í landsliðsklassa. Þessi 23 ára markvörður er á lánssamningi hjá Watford frá United og hefur verið einn allra besti leikmaður botnliðs úrvalsdeildarinnar. „Mánaðarlega fæ ég skýrslu frá Adrian Boothroyd varðandi Foster. Hvernig formi hann er í, hvernig hann stendur sig á æfingum og um framfarir hans. Hann mun snúa aftur á Old Trafford næsta tímabil. Það var frábært að fá hann hingað frá Stoke,“ sagði Ferguson. Mun verja mark Englands Í gær var dregið í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Englandsmeistarar Chelsea og núverandi topplið Manchester United fengu bæði heimaleiki. United mætir Íslendingaliðinu Reading en Chelsea annað hvort Blackpool eða Norwich. Aðeins þrír úrvalsdeildarslagir eru á dagskrá. Auk United og Reading mætast Fulham og Tottenham í Lundúnaslag auk þess sem annað hvort Arsenal eða Bolt- on tekur á móti Blackburn. Annars getur Manchester Unit- ed kórónað frábæra byrjun á tíma- bilinu með sínum nítjánda sigri á miðvikudagskvöldið er liðið mætir botnliði Watford. Ef Alex Fergu- son og hans menn vinna sigur verðu það besti árangur liðsins í fyrstu 25 leikjum tímabilsins frá upphafi. Metið á reyndar Ferguson sjálf- ur er hann krækti í 59 stig eftir 25 leiki árið 2001. Hann á nú mögu- leika á að bæta það met um eitt stig. Manchester United mætir Reading Það gengur ekki þrautalaust hjá Einari Þorvarðar- syni, framkvæmdastjóra HSÍ, að fá miða á leik Íslands og Dan- merkur í dag. Þýska handknatt- leikssambandið hafði ekki svarað beiðni Einars um miða um kvöldmatarleytið í gær og sagði Einar ekki vera bjartsýnn. Fararstjóri liðsins sagðist vera búinn að fá um sex miða í gærkvöldi en Color Line-höllin í Hamborg tekur 13.800 manns í sæti. Það er margt skrýtið í skipu- laginu hér í Þýskalandi og vart til sá maður sem trúi því að lið sem eigi að spila fái ekki úthlutað neinum miðum á sína leiki. Sökum miðaleysis og hand- boltaáhuga í Hamborg hefur verið ákveðið sýna leiki dagsins á risaskjá á Kunst sem er nálægt rauða hverfinu í borginni. Ísland fær fáa miða á leikinn Þjóðverjar hafa verið gagnrýndir fyrir margt á HM og eitt þeirra eru stanslaus ferðalög liðanna. Það þótti mjög furðuleg ákvörðun að hafa annan milliriðilinn á tveimur stöðum og sú ákvörðun að ferja lið alla leið til Hamborgar var heldur ekki vinsæl. Fjarlægðin frá búðum íslenska liðsins í Halle er um 400 kílómetrar. Fjöldamörg lið hafa í mörgum tilfellum mátt ferðast yfir 100 kílómetra á dag til að komast á leikstað. Er rætt um mótið sem keppni á Autobahn enda eru leikmenn og fjölmiðlamenn meira og minna á ferðalagi. Keppni á Autobahn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.