Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég segi nú ekki að ég sé farin að
troða upp í kirkjum, en ég var beð-
inn að predika á sunnudag og
fannst ég ekki geta
skorast undan,“
segir Davíð
Þór Jónsson
þýðandi sem
predikaði í guðs-
þjónustu í Nes-
kirkju á sunnu-
dag.
Davíð segir að
það sé að færast í
aukana að leikmenn séu beðnir að
predika í messum. „Þetta er ekkert
einsdæmi, langt því frá. Ég ákvað
að þekkjast boðið þar sem ég lærði
guðfræði á sínum tíma og hugðist
jafnvel gerast prestur.“ Hann
kveðst þó ekki hafa átt gamla stóla-
ræðu í fórum sínum heldur frum-
samdi hann hana fyrir þetta tæki-
færi. „Ég las bara texta dagsins og
velti honum fyrir mér. Í ræðunni
fjalla ég um það hvernig manni
hættir til að setja sig bara í sam-
band við guð þegar maður er í
sparifötunum; við eigum til að
umgangast hann frekar eins og
bankastjóra sem við leitum til
þegar okkur vantar eitthvað en
ekki eins og sannan vin sem maður
bæði leitar til og gefur eitthvað til
baka.“
Vel var mætt í messu og segir
Davíð að predikun sinni hafi verið
vel tekið. Hann játar þó að lengi
vel tóku menn síður mark á honum
þegar hann ræddi trúmál þar sem
hann var þekktur grínisti, og þeim
Steini Ármanni Magnússyni í Rad-
íusbræðrum fátt heilagt í gaman-
málum sínum. „Það hefur sem
betur fer breyst, ég held að Jón
Gnarr hafi rutt brautina mikið að
þessu leyti. Fólk hefur áttað sig á
að maður getur verið að grínast
aðra stundina og rætt um andans
mál þá næstu.“
Prédikun Davíðs má finna á vef-
síðunni tru.is.
Radíusbróðir í predikunarstól
„Ég pantaði hann
enda þekki ég vel
hvernig hann vinn-
ur,“ segir Alfreð
Gíslason, landsliðs-
þjálfari Íslands í
handbolta. Íslenska
landsliðið er eina
liðið sem hefur
haft sama bílstjór-
ann í gegnum alla
heimsmeistara-
keppnina í Þýska-
landi. Sá heitir
Thomas Bock-
elmann en gengur
alla jafnan undir
nafninu Bokie hjá
„strákunum okkar“.
Fyrst sá Bokie um
aksturinn í Magdeburg þar sem
landsliðið tryggði sér sigur í
sínum riðli. Og svo fylgdi hann
liðinu til Dortmund en þar hafa
Strákarnir okkar tryggt sér
sæti meðal átta bestu. „Þetta
er einfaldlega besti dræver
sem þú getur fengið,“ heldur
Alfreð áfram. „Hann sér um
allt og gerir allt,“ bætir hann
við. „Og það er alltaf klárt
kaffi þegar maður kemur
inn í rútuna,“ segir Alfreð
og ber Bokie augljóslega
vel söguna.
Bokie er öllu hnútum kunnug-
ur innan landsliðsins enda ekki í
fyrsta skipti sem hann situr undir
stýri þegar það er annars vegar.
Þegar liðið fór í keppnisferðalag
til Póllands í fyrra fékk Alfreð
bílstjórann Bokie til að ferja
liðið. Og Alfreð sjálfur þekkir
bílstjórann vel frá fornu fari.
Bokie keyrði Magdeburgar-liðið
undir stjórn landsliðsþjálfarans
þegar hann stýrði því til sigurs í
þýsku deildinni og Evrópukeppn-
inni. „Ég hef bara haft alveg
hrikalega góða reynslu af
honum,“ segir Alfreð en vildi þó
ekki ganga svo langt að kalla
Bokie lukkutröll íslenska lands-
liðsins.
Keyrir landsliðið um af stakri snilld
...fær Bjarni Þór Bjarnason,
fyrsti íslenski presturinn sem
settur er í embætti prests ensku
biskupakirkjunnar, sem sinnir
sálusorgun fyrir enskumælandi
trúmenn á landinu.
Enska Óskarsverðlaunaleik-
konan Emma Thompson og
gamanleikarinn Stephen Fry
hafa í hyggju að halda stórt
kvikmyndahandritanám-
skeið á Hótel Glym. Þetta
staðfestir annar eigandi
hótelsins, Hansína B. Ein-
arsdóttir, en hún rekur
hótelið ásamt Jóni Rafni
Högnasyni. Ætlunin er
að Thompson og Fry
komi hingað í lok þessa
árs og mun fjöldi fólks
sitja fyrirlestra og
vinnufundi tengda gerð
kvikmyndahandrita.
Námskeiðið er haldið í
nánu samstarfi við
Icefusion.com, sam-
starfsfyrirtæki hót-
elsins í London.
Hótel Glymur hefur
vakið mikla athygli hér-
lendis sem erlendis og
segir Hansína að þau
séu markvisst að gera
út þá ró og kyrrð sem
er í Hvalfirðinum. Þau
kalla þetta Working
Week in Iceland eða
Vinnuviku á Íslandi.
Vegalengdirnar séu
enda stuttar, aðeins
níutíu mínútna akstur
frá Keflavík. „Við
höfum fengið einn
þekktasta útvarps-
mann BBC, Tony
Hawks, til að
aðstoða okkur við
gerð kvikmyndar
um hótelið og svæð-
ið og Hawks las
meðal annars
allan textann inn
á myndina fyrir
okkur,“ upplýsir
Hansína og bætir
því að þau séu í
góðu samstarfi við
Icefusion.com, en nú er
verið að leggja lokahönd á
þrjár lúxussvítur sem taka
á í notkun á næstunni. Þá
eru heitir pottar hótelsins
annálaðir fyrir þægindi og
breska blaðið The Indipend-
ent valdi þá meðal þeirra
fimm bestu í heiminum.
Allt starfsfólk hótelsins er
á fullu við að undirbúa stórt
námskeið undir Chesney
Hawks, frægs sönglagahöf-
undar, sem haldið verður í
apríl. Þá munu átján söngleikja-
höfundar hvaðanæva að úr heim-
inum koma til að ráða ráðum
sínum og semja. „Stórt upptöku-
ver verður sett upp í kirkju Hall-
gríms Péturssonar í Saurbæ og
það hlýtur að teljast spennandi
fyrir þessa listamenn að semja á
slóðum þessa merkasta skálds
okkar Íslendinga,“ segir Hansína
en meðal þátttakenda má nefna
Sean Lennon, son John Lennon og
Yoko Ono. Þá mun Tim Rice, nán-
asti samstarfsmaður Andrews
Lloyd Webber, ætla að leggja hót-
elið undir sig og krikket-teymi
þannig að í nógu verður að snúast
hjá þeim Hansínu og Jóni í Hval-
firðinum.