Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 66
Marco Materazzi,
varnarmaður Inter, segist ekki
hafa sagt neitt við Gennaro Del
Vecchio sem ætti að hafa leitt til
þess að hann var skallaður.
Atvikið varð í leik Inter og
Sampdoria á sunnudag og minnti
á frægt atvik í úrslitaleik
heimsmeistaramótsins síðasta
sumar. Del Vecchio fékk að líta
rauða spjaldið fyrir að skalla
Materazzi.
„Ég gerði ekkert rangt, ég
sagði honum bara að hætta
þessu,“ sagði Materazzi eftir
leikinn en honum fannst Del
Vecchio fara of harkalega í
markvörðinn Julio Cesar. „Áður
en hann var rekinn af velli hafði
hann farið harkalega í Adriano og
endurtók síðan leikinn í viðskipt-
um við markvörðinn okkar þegar
hann var með hendur á knettin-
um,“ sagði Materazzi. Inter vann
leikinn 2-0 og hefur liðið nú unnið
fjórtán deildarleiki í röð.
Segist ekki hafa
gert neitt rangt
Leikmenn Phoenix
Suns eru ekkert að gefa eftir í
NBA-deildinni þótt margir spek-
ingar bíði eftir að blaðran springi.
Phoenix vann sinn 17. leik í röð
þegar liðið sótti 115-100 sigur til
Cleveland í fyrrinótt og vantar
nú aðeins þrjá sigurleiki til við-
bótar til þess að geta státað af
annarri lengstu sigurgöngu sög-
unnar.
Ekki hefur liðið aðeins unnið
17 leiki í röð því það hafði nýlokið
15 leikja sigurgöngu áður en það
lagði af stað í þessa sem enn sér
ekki fyrir endann á. Síðasta tap
Suns var í Dallas 28. desember og
liðið er búið að vinna 34 af síð-
ustu 38 leikjum sínum eftir að
hafa tapað 5 af fyrstu 6 leikjum
sínum á tímabilinu.
Steve Nash heldur áfram að
leiða lið sitt með einstakri spila-
mennsku en að þessu sinni var
hann með 23 stig og 15 stoðsend-
ingar. Nash hélt öllum sínum lyk-
ilmönnum inni í leiknum því
Shawn Marion skoraði 23 stig,
Amare Stoudemire var með 22 og
Leandro Barbosa kom að venju
sterkur inn af bekknum og bætti
19 stigum.
„Þeir eru óstöðvandi eins og
þeir spila núna,“ sagði LeBron
James eftir leikinn en Nash var
ekki alveg sammála. „Fólk talar
ekki um hvort lið hafi unnið 33
leiki í röð heldur um það hvort lið
hafi orðið meistarar. Okkur líður
ekkert eins og við séum ósigr-
andi því við þurfum enn að bæta
margt í okkar leik,“ sagði Steve
Nash og vísaði þar í met Los Ang-
eles Lakers frá 1971-72 en liðið
vann þá 33 leiki í röð.
Sjöunda lengsta sigurgangan
Þær skemmtilegu
kringumstæður eru nú komnar
upp að tveir bræður munu þjálfa á
móti hvorum öðrum í bikarúrslit-
um karla í körfubolta í næsta mán-
uði. „Það að komast í bikarúrslita-
leikinn lyftir þessu upp á annað
plan,“ segir Pétur Ingvarsson sem
mætir yngri bróður sínum Jóni
Arnari í Höllinni en báðir hafa
þeir verið að ná frábærum árangri
í vetur.
„Þeir eru búnir að rústa okkur
tvisvar í vetur og við höfum ekki
unnið þá síðan að ég veit ekki hve-
nær. Þetta eru ekki óskamótherj-
arnir fyrir okkur. Þetta er eina
liðið sem við höfum spilað við
síðan ég veit ekki hvenær sem
hefur náð að keyra upp hraðann á
móti okkur. Við réðum ekkert við
þá,“ segir Pétur en Jón Arnar
hefur náð að koma ÍR á mikið flug
síðan að hann kom í Breiðholtið.
„Ég vissi það frá fyrstu mínútu
að þessi hópur ætti að geta gert
miklu betur. Þetta var spurning
um hvort að við myndum fara vel
af stað og ná fljótt upp sjálfs-
traustinu. Það gekk eftir og menn
eru alltaf að átta sig betur og betur
á hvað sé hægt að gera,“ segir Jón
Arnar.
Jón Arnar hrósar bróður sínum
fyrir frábært starf hans í Hvera-
gerði. „Það er eins og það komi
mönnum alltaf á óvart hvernig
þeir standa sig þarna. Pétri tekst
alltaf að vinna vel úr erfiðum stöð-
um. Hann er búinn að gera það ár
eftir ár og ég held að menn verði
bara að fara átta sig á því að hann
er hörku þjálfari,“ segir Jón Arnar
sem fær líka hrós frá bróður
sínum.
„Hann er að gera frábæra hluti
með ÍR-liðið og þeir eru með eitt
best mannaða liðið á landinu eins
og staðan er í dag. Mér sýnist að
hann sé búinn að ná að kveikja í
þeim,“ segir Pétur og bætir við.
„Ég er ekki með neina elítu-
menn upp til hópa í mínu liði og
hann hefur úr fleiri slíkum mönn-
um að spila. Það sem einkennir
þetta lið er þolinmæði og við
getum kannski ekki gert neitt
annað en að vera þolinmóðir,“
segir Pétur. Jón Arnar veit líka að
Pétur hefur þegar farið með lið í
bikarúrslitaleik en hann kom
Hamar í Höllina 2001. „Hann er
reynslunni ríkari,“ segir Jón
Arnar. Þeir bræður hafa báðir
orðið bikarmeistarar en þeir voru
í aðalhlutverki þegar Haukarnir
unnu bikarinn 1996. Jón Arnar var
þá með 11 stig í úrslitaleiknum en
Pétur skoraði 8 stig.
„Við höfum algjörlega unnið
fyrir því að spila í þessum úrslita-
leik,“ sagði Jón Arnar en ÍR hefur
lagt Íslandsmeistara Njarðvíkur,
silfurlið Skallagríms og svo
Grindavík á útivelli á leið sinni í
Höllina. „Við höfum verið mjög
heppnir og fengið heimaleiki allan
tímann á meðan að þeir þurftu að
vinna Grindavík á útivelli,“ segir
Pétur.
Þeir bræður viðurkenna báðir
að þeir ræði ekki íslenska boltann
þessa daganna. „Við höfum rætt
mikið um körfubolta en pössum
okkur á að segja ekki neitt núna.
Ég er með allt öðruvísi lið en hann
og með allt aðrar áherslur. Ég held
að við fylgjumst báðir það vel með
að ég held að við vitum alveg jafn
mikið um hvað hinir þjálfararnir
eru að gera,“ segir Pétur og Jón
Arnar er á sömu skoðun.
„Við tölum töluvert saman um
körfubolta og höfum báðir mikinn
almennan áhuga á körfubolta.
Þegar við erum báðir að keppa á
móti hvorum öðrum þá ræðum við
minna um deildina hér heima,“
segir Jón og bætir við.
„Við höfum oft keppt á móti
hvor öðrum þannig að það verður
ekkert vandamál og bara gaman
að fá að mæta honum. Þetta eru
mjög ólík lið og það er ljóst að það
er misjafnt hvað þjálfarnir eru að
reyna að ná fram í leikjum þess-
arra liða. Við munum reyna að
nota okkar styrkleika og þeir eru
allt öðruvísi en hjá þeim,“ segir
Jón Arnar og báðir búast þeir við
flottum úrslitaleik.
„Þetta verður skemmtilegur
leikur fyrir alla. Það hafa oft verið
Suðurnesjalið í bikarúrslitunum
og liðin í ár eru klárlega ekki
þaðan,“ segir Pétur að lokum.
Bræðurnir Pétur og Jón Arnar Ingvarssyni ætla ekkert að ræða íslenskan körfubolta á meðan þeir eru að
þjálfa lið í sömu deild. Á sunnudagskvöldið komu þeir sínum liðum óvænt í bikarúrslitaleikinn.
Paul Jewell, knatt-
spyrnustjóri Wigan Athletic,
hefur fengið
nígeríska
landsliðsmann-
inn Julius
Aghahowa í
sínar raðir.
Samningar hafa
náðst við
leikmanninn og
er aðeins beðið
eftir atvinnu-
leyfi. Agahowa
kemur frá Shaktar Donetsk og
sagði Jewell að félagið hafi fylgst
með honum í nokkurn tíma.
Wigan ætlar einnig að reyna að
klófesta Papa Bouba Diop frá
Fulham áður en félagaskipta-
glugganum verður lokað.
Newcastle er einnig að fá nýjan
leikmann, bandaríska varnar-
manninn Oguchi Onyewu frá
Standard Liege. Hann er betur
þekktur undir nafninu Gooch og
verður lánaður út leiktíðina en
svo fær Newcastle forkaupsrétt á
honum.
Agahowa sem-
ur við Wigan
Frestur
til tilkynna fram-
boð til þeirra
embætta sem
kosið verður um
á næsta ársþingi
KSÍ rann út á
laugardaginn.
Þingið verður
þann 10. febrúar
næstkomandi.
Þrír eru í
framboði til emb-
ættis formanns sambandsins en
Eggert Magnússon lætur af því
starfi nú eftir átján ára formanns-
setu.
Þau eru Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, Halla
Gunnarsdóttir blaðamaður og
Jafet Ólafsson viðskiptafræðing-
ur.
Kosið verður um fjögur sæti í
aðalstjórn KSÍ. Þeir sem sækjast
eftir endurkjöri eru Halldór B.
Jónsson varaformaður, Eggert
Steingrímsson gjaldkeri og Björn
Friðþjófsson. Fjórir til viðbótar
sækjast eftir kjöri: Guðjón Ólafur
Jónsson, Guðrún Inga Sívertsen,
Stefán Geir Þórisson og Vignir
Már Þormóðsson.
Allir ofantaldir eru frá Reykja-
vík nema Björn, frá Dalvík, og
Vignir, frá Akureyri.
Allir fjórir aðalfulltrúar lands-
fjórðunga bjóða sig fram á nýjan
leik og fá ekki mótframboð.
Kosið er um þrjú sæti vara-
manna í aðalstjórn en allir sitjandi
varamenn bjóða sig fram til end-
urkjörs auk eins í viðbót.
Kjörrétt á aðalþingi KSÍ hafa
fulltrúar knattspyrnufélaganna í
landinu. Félög í efstu deildum
karla og kvenna fá að senda fjóra
fulltrúa á þingið, 1. deildarfélög í
karlaflokki þrjá fulltrúa en einn í
kvennaflokki. Félög í 2 . deild
karla fá tvo fulltrúa og 3. deildar-
félög einn fulltrúa á ársþinginu.
Viðar Halldórsson er formaður
kjörstjórnar en hugleiddi um tíma
að bjóða sig fram til embættis for-
manns KSÍ.
Geir er talinn njóta stuðnings
fráfarandi formanns, Eggerts
Magnússonar. Auk þess komu
saman formenn knattspyrnufé-
laga á Suðurnesjum í upphafi jan-
úar og gáfu út sameiginlega yfir-
lýsingu til stuðnings Geirs.
Halla hefur opnað heimasíðu í
tengslum við framboð sitt, halla-
ksi.blog.is.
Framboðsfrestur runninn út
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
Seltjarnarnesi
Gerið
verðsamanburð
margar stærðir
All Terrain
31” 13.950,- stgr.
33“ 16.980,- stgr.
35” 16.990,- stgr.
Er jeppinn tilbúinn
fyrir veturinn?