Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 4
Líðan mannsins sem lenti í
snjóflóði í Hrappsstaðaskál í
Hlíðarfjalli sunnudaginn 21.
janúar fer batnandi að sögn
læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri. Honum er enn haldið
í öndunarvél en hann verður
vakinn á næstu dögum.
Maðurinn var í vélsleðaferð
með félögum sínum þegar flóðið
féll á hann. Hann barst um
hundrað metra með því og var á
tveggja metra dýpi þegar
félagar hans grófu hann upp.
Hann var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á sjúkra-
hús.
Í öndunarvél
en á batavegi
Þrír af þeim fjórum
mönnum sem gengu í gildru
fréttaskýringaþáttarins Kompáss
þegar þeir héldu sig vera að fara
á fund þrettán ára stúlku, hafa
gefið sig fram við lögreglu.
Kompás setti inn auglýsingu á
vefinn Einkamal.is í nafni þrettán
ára stúlku. Í þættinum, sem
sýndur var í fyrradag, sjást fjórir
menn koma á fund stúlkunnar en
hittu fyrir einn þáttastjórnenda
Kompáss ásamt myndatöku-
manni. Andlit mannanna voru
hulin í þættinum. Fulltrúi
lögreglunnar segir mennina hafa
verið yfirheyrða og framhaldið
verði ákvarðað á næstunni.
Þrír af fjórum
gefið sig fram
Sækjandi í Baugsmálinu
gerði athugasemdir við að verj-
endur sakborninga legðu fram
talsvert magn af nýjum gögnum
þegar málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær, í síð-
asta skipti áður en aðalmeðferð
hefst 12. febrúar.
Sagði sækjandinn að það væri
fremur seint að leggja fram sjö
möppur með gögnum tveimur
vikum fyrir aðalmeðferðina.
Um er að ræða þann hluta
Baugsmálsins sem varð til eftir að
Hæstiréttur vísaði frá dómi 32 af
40 ákæruliðum í upprunalegri
ákæru. Gefin var út endurákæra í
19 liðum, en fyrsta ákæruliðnum
síðan vísað frá. Þeir 18 liðir sem
eftir standa snúa að meintum bók-
haldsbrotum og fjárdrætti.
Ákærðir eru þeir Jón Ásgeir
Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og
Jón Gerald Sullenberger.
„Fannst einhverjum á gagna-
magnið bætandi?“ spurði Arn-
grímur Ísberg dómari viðstadda
þegar hann fór yfir nýju möpp-
urnar, en honum virtist blöskra
það magn gagna sem lagt hefur
verið fram. Honum virtist ekki
heldur skemmt þegar möppu-
stæða á borði hans hrundi á vatns-
könnu svo vatn flæddi yfir borðið.
Gögnin virtust þó sleppa við flóð-
ið.
„Þetta mál er orðið ótrúlega
stórt,“ sagði Arngrímur, og benti á
að ef ákæran í málinu sé lesin
megi ætla að dómurinn þyrfti um
tvo daga til að fara yfir málið. Í
dag er reiknað með að málið verði
í réttarsal í um sjö vikur.
Ætla má að um eða yfir 100
möppur þurfi til að halda utan um
öll gögnin sem lögð hafa verið
fram. Til gamans má því áætla að
sækjendur og verjendur geti vitn-
að í um 50 þúsund síður af gögn-
um. Enda hafa verjendur farið
fram á að fá að hafa fartölvur í
réttarsal til að auðvelda uppflett-
ingar.
Sigurður Tómas Magnússon,
settur ríkissaksóknari í málinu,
hefur nú lagt fram lista með nöfn-
um 115 vitna sem hann mun kalla
fyrir dóminn. Til viðbótar við það
munu verjendur kalla fyrir 10-20
vitni, og því endanlegur fjöldi á
bilinu 125 til 135.
Arngrímur dómari benti sækj-
anda og verjendum á að kalla
aðeins þau vitni fyrir sem hefðu
eitthvað um málsatvik að segja, en
sagði jafnframt að hann sem dóm-
ari gæti ekki metið fyrirfram
hvaða vitni væru mikilvæg og
hver ekki. Því væri það ekki hans
hlutverk að skera niður langa
vitnalista.
Baugsmálið líklega
sjö vikur í réttarsal
Allt stefnir í að réttarhöldin í Baugsmálinu verði þau umfangsmestu hér á landi til
þessa. Dómarinn gagnrýndi í gær umfang málsins og sagði að hægt ætti að vera
að fjalla um það á tveimur dögum í stað þeirra sjö vikna sem áætlaðar eru.
Undanfarna daga hafa
sjía-múslímar í Pakistan, Afganist-
an, Írak og víðar minnst dauða
Husseins, sonarsonar Múhameðs
spámanns, með ýmsum helgiat-
höfnum. Meðal annars hafa
heittrúaðir sjíar stundað það að
húðstrýkja sjálfa sig með hnífum.
Hámarki náðu þessi blóði
drifnu hátíðahöld á þriðjudaginn,
tíunda dag sorgarmánaðarins
muharram, sem er fyrsti mánuður-
inn í tímatali múslíma. Þann dag er
sagt að Hussein hafi fallið árið 680
í valdabaráttu sem leiddi til
klofnings múslíma í tvær megin-
fylkingar sjía og súnnía.
Blóði drifin
sorgarhátíð
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, hafnar þeim orðum
Jóns Baldvins Hannibalssonar að
allt bendi til að Samfylkingunni
hafi mistekist
það ætlunar-
verk sitt að
verða valkostur
við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Ingibjörg segir
dóm Jóns
Baldvins
ótímabæran því
Samfylkingin
hafi komið þétt
upp að hlið
Sjálfstæðisflokksins í síðustu
kosningum. Hún er sannfærð um
að svo verði einnig í kosningun-
um í vor. Að mati Ingibjargar
hefur verið nægilega mikil
sundrung á þeim væng stjórn-
málanna þar sem Samfylkingin
er, og því sé mikilvægt að fólk
standi saman þó að á móti blási.
Segir dóm Jóns
ótímabæran Þrátt fyrir hryðju-verkaógn, fuglaflensu og
hækkandi olíuverð hafa aldrei
fleiri ferðamenn verði á þeytingi
heimshorna milli heldur en á
síðasta ári.
Alls lögðu 842 tvær milljónir
manna upp í ferðalög út fyrir
landamæri sín á árinu 2006, en
það er 5,4 prósentum fleira fólk
en árið áður. Það ár hafði þó
ferðamönnum fjölgað um 5,5
prósent frá árinu 2004.
Ferðaþjónustustofnun
Sameinuðu þjóðanna skýrði frá
þessu í Madrid í gær. Jafnframt
spáði stofnunin því að á þessu ári
yrði vöxturinn aðeins fjögur
prósent.
Aldrei fleiri á
faraldsfæti