Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 10
Eyjamenn boða til mót-
mælastöðu á Básaskersbryggju við
Herjólf klukkan 16 á morgun.
Ástæðan er hækkanir á gjaldskrá
ferjunnar, bæði á far- og farmgjöld-
um.
„Þessi hækkun á eftir að skila
sér í vöruverð Vestmannaeyinga
þar sem dýrara verður að flytja
vörur til eyjarinnar heldur en til
annarra staða sem geta notað hefð-
bundna þjóðvegi,“ segir Páll
Scheving, oddviti Vestmannaeyja-
listans og framkvæmdastjóri ÍBV.
Hann segir gjaldskrárhækkun-
ina nema 11,5 prósentum að meðal-
tali, slíkt eigi Vestmannaeyingar
ekki að sætta sig við. „Við viljum
árétta að leið Herjólfs er þjóðveg-
urinn okkar, hver einasti þingmað-
ur sem hingað hefur komið í heim-
sókn hefur sýnt þessu máli skilning
en því miður virðast efndirnar
engar,“ bætir Páll við.
Mótmæla hækkun
Karlmaður á fimmtugs-
aldri hefur verið ákærður í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir þjófn-
að og rán og fyrir að hafa ógnað
með hafnaboltakylfu og hamri.
Maðurinn hótaði tveimur lög-
reglumönnum sem voru að sinna
skyldustörfum í íbúð í Yrsufelli.
Hann gekk að þeim með hafna-
boltakylfu á lofti. Sú háttsemi var
til þess fallin að vekja með lög-
reglumönnunum ótta um líf sitt og
heilbrigði. Þetta telst brot gegn
valdstjórninni.
Þá er manninum gefið að sök að
hafa í maí brotist inn í verslunina
Gull og demantar á Skólavörðu-
stíg. Þar braut hann rúðu og stal
demantsarmbandi og hvítagulls-
hring með demanti, samtals að
verðmæti 370 þúsund krónur.
Síðar sama dag framdi maður-
inn rán í söluturni við Hafnar-
stræti þar sem hann ógnaði
afgreiðslustúlku með hamri og
skipaði henni að afhenda sér fimm
þúsund krónur.
Ákæruvaldið krefst þess að
maðurinn verði dæmdur til refs-
ingar. Eigandi Gulls og silfurs
krefst bótagreiðslu upp á tæpar
500 þúsund krónur.
Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) bygg-
ir ellefu þjónustuhús á hafnar-
svæðum á sex stöðum á vestur- og
suðurströnd Sri Lanka. Um er að
ræða fiskmarkaðshús, fjarskipta-
hús og salerni fyrir sjómenn og
fiskverkendur sem nýta löndunar-
staðina. Ráðgert er að bygginga-
framkvæmdum ljúki í maí á þessu
ári.
Árni Helgason, umdæmisstjóri
ÞSSÍ á Sri Lanka, segir að bygg-
ingarnar verði að framkvæmdum
loknum afhentar heimamönnum
til eignar og reksturs. Í nokkrum
byggðarlögum eru starfandi fiski-
mannafélög eða samvinnufélög
sem ráða við slíkt en annars stað-
ar er slíku ekki til að dreifa að
sögn Árna. Því er Þróunarsam-
vinnustofnun í viðræðum við
frjáls félagasamtök á Sri Lanka
sem heita SEWALANKA, en þau
vinna að margvíslegum félagsleg-
um viðfangsefnum í fiskimanna-
samfélögum eyjarinnar.
„Ef af samvinnu verður, mun
SEWALANKA aðstoða við að koma
fiskimannafélögum á laggirnar.
„Samtökin hafa ef til vill ekki getu
eða þekkingu í dag til að stunda
rekstur á mannvirkjum en við
væntum árangurs á þessu sviði
samhliða byggingarframkvæmd-
um þannig að þegar þeim lýkur
verði heimamenn tilbúnir til að
taka við“, segir Árni.
Einnig er verið að skoða þrjátíu
staði á austurströnd landsins með
það í huga að byggja þar þjónustu-
hús með ýmiss konar aðstöðu.
Árni segir að héruðin sem um
ræðir hafi öll orðið illa úti í flóð-
bylgjunni (tsunami) árið 2004 og
að héruðin séu jafnframt á
umdeildum svæðum í borgara-
styrjöldinni á Sri Lanka. Um er að
ræða fyrsta áfanga framkvæmda
eftir flóðin sem kostaðar eru af
sérstakri 50 milljóna króna fjár-
veitingu sem ríkisstjórnin veitti
til uppbyggingastarfa á Sri Lanka
og fól ÞSSÍ að sjá um.
ÞSSÍ er einnig að athuga með
meltuframleiðslu úr fiskúrgangi.
Meltan er notuð sem lystauki í
svínafóður og er eftirsótt af svína-
ræktendum.
Að sögn Árna er unnið að verk-
efninu með heimamönnum og til-
raunir reyndar á einum til tveim-
ur löndunarstöðum á þessu ári.
Byggja ellefu
þjónustuhús
Þróunarsamvinnustofnun Íslands annast uppbygg-
ingu hafnaraðstöðu á Sri Lanka sem verður afhent
heimamönnum til eignar.
PENINGAMARKAÐSSJÓÐURINN
Hæsta
ávöxtun
2006
575 4400
www.vsp.is
Engin kaup- eða söluþóknun
Peningamarkaðssjóðurinn er rekinn af Rekstrarfélagi Sparisjóðanna
hf. Verðbréfaþjónusta Sparisjóðanna hf. er vörsluaðili sjóðsins.
Peningamarkaðssjóðurinn er fjárfestingarsjóður sem starfar skv.
lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Fjárfestingarsjóður telst vera áhættusamari fjárfesting en
verðbréfasjóður skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjóðs er
m.a. fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta leitt til minni
áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Frekari upplýsingar um
sjóðinn má finna í útboðslýsingu og útdrætti útboðslýsingar sem
h ð ál á i
F
í
t
o
n
/
S
Í
A