Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 27
PANTAÐU Í SÍMA
WWW.JUMBO.IS
554 6999
SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI
ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA
Rannsóknir hafa sýnt að álag
í sambandi foreldra á með-
göngu getur haft áhrif á þroska
barnsins.
Tilvonandi feður gætu haft meira
að segja um þroska barnsins en
þeir átta sig á. Feðurnir eru ekki
bara áhorfendur í meðgöngunni,
heldur getur allt álag eða streita
sem samband þeirra við mæð-
urnar veldur haft áhrif á hvernig
heili fóstursins þroskast.
„Hlutverk föðursins skiptir
heilmiklu um hvernig barnið
þroskast, jafnvel á meðgöngunni,“
segir Doktor Vivette Glover, frá
Imperial College í London, en hún
rannskaði áhrif streitu á fóstur á
meðgöngu.
Gen og uppeldi ráða miklu um
hvernig börnin verða en Glover
komst einnig að því að meðgangan
sjálf skiptir máli. Hún spurði 123
konur út í meðgönguna og fylgdist
með þroska barna þeirra upp að 18
mánaða aldri.
„Tvær tegundir af streitu voru
til staðar. Annars vegar streita af
völdum kvíða eða ættgengra geð-
sjúkdóma, hins vegar streita
vegna sambands foreldrana,“
segir hún.
Eldri rannsóknir hafa sýnt að
börn mæðra sem þjást af streitu á
meðgöngu eru líklegri til að kljást
við agavandamál, kvíða og önnur
tilfinningaleg vandamál. Ekki er
vitað nákvæmlega hvað veldur, en
það er talið tengjast auknu magni
á stresshormóninu cortisol í blóði
móður.
Nauðsynlegt að vera góð-
ur við verðandi mæður
Ný aðferð við inngjöf sýklalyfja vekur vonir um að hægt verði að
minnka skammtastærðir allt að fimmtíufalt.
Austurrískir vísindamenn hafa þróað aðferð sem gæti minnkað nauð-
synlega skammtastærð sýklalyfja allt að fimmtíufalt. Aðferðin byggist
á notkun svokallaðra bakteríuvektora, en svo kallast DNA-hringir sem
bakteríur geyma í umfrymi sínu. Þessir vektorar geta verið bakteríunni
gagnlegir en einnig mjög skaðlegir.
Með því að nota þessa vektora eiga sýklalyf greiða leið gegnum
frumuhimnu bakteríunnar og því þarf mun minna magn af lyfjum. Þetta
er sérstaklega gagnlegt þegar berjast þarf við matareitrun, en þá þarf
ekki að gefa sýklalyf í stórum skömmtum sem drepa alla eðlilega flóru
meltingarfæranna.
Aðferðin kæmi sér einnig vel í baráttunni gegn fjölónæmum bakter-
íum sem afar fá sýklalyf vinna á og eru bráðhættulegar öllum þeim sem
sýkjast.
Ný gerð sýklalyfja