Fréttablaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 12
Þingsályktunartillaga hefur verið lögð fram á
Alþingi um að kosningaaldur verði lækkaður úr 18
árum í 16 ár. Að tillögunni standa tveir þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs; Hlynur
Hallsson og Kolbrún Halldórsdóttir.
Í greinargerð með tillögunni segir að kominn sé
tími til að auka enn þátttöku ungs fólks í lýðræðinu.
Með því að lækka kosningaaldurinn megi auka ábyrgð
ungs fólks og gera því kleift að taka þátt í mótun sam-
félagsins.
Helstu rökin fyrir því að 16 ára fái að kjósa eru
þau að það leiði til breyttra áherslna í landsmálum
þar sem kjörnir fulltrúar landsins muni leitast við að
verja hagsmuni stærri hluta þjóðarinnar, segir í
greinargerðinni. Kosningaréttur hefði auk þess
þroskandi áhrif á ungt fólk.
Rökin gegn slíkri breytingu séu til dæmis þau að
börn og unglingar búi ekki yfir vitsmunaþroska til að
taka afstöðu í þjóðmálum, og láti tilfinningar ráða
frekar en dómgreind. Slík rök lýsi vantrausti á ungt
fólk, og hafi í gegnum tíðina verið notuð til að koma í
veg fyrir að konur, eignalausir, undirokaðir kynþætt-
ir og jafnvel almenningur hljóti kosningarétt, segir
ennfremur í greinargerðinni.
Sakavottorð sem menn
skila til vinnuveitanda við atvinnu-
umsókn, krefjist hann þess, inni-
heldur ekki endilega allar upplýs-
ingar um sakaferil viðkomandi.
Brot sem varða fangelsisvist þurrk-
ast út á fimm árum á þessum vott-
orðum, og brot sem varða sekt
þurrkast út á þremur árum.
Fréttablaðið sagði á dögunum
frá fyrrverandi öryggisverði Secu-
ritas sem dæmdur var nýlega fyrir
þjófnað í starfi. Hann hafði áður
gengist undir sátt vegna ölvunar-
aksturs árið 1997 og greitt sekt
fyrir líkamsárás árið 2002. Þrátt
fyrir það skilaði hann inn hreinu
sakavottorði þegar hann sótti um
starf hjá Securitas í ágúst 2005.
„Allt sem fer á sakaskrána er
alltaf þar inni, en það eru til nokkr-
ar gerðir af vottorðum,“ segir Sig-
ríður Friðjónsdóttir, saksóknari hjá
ríkissaksóknaraembættinu.
„Á vottorðum sem einstaklingar
skila til vinnuveitanda eru aðeins
upplýsingar um sektardóma sein-
ustu þriggja ára og fangelsisdóma
seinustu fimm ára.“ Hún segir að
þessar reglur hafi verið settar til
þess að gefa mönnum annað tæki-
færi.
Í reglugerð um sakaskrá ríkisins
segir að ríkissaksóknari geti í sér-
stökum tilvikum veitt undanþágu
frá þessum tímamörkum. Sigríður
segir að þessi undanþága sé sjaldan
veitt, reglugerðin sé túlkuð á mjög
þröngan hátt.
Árni Guðmundsson, forstöðu-
maður gæslusviðs hjá Securitas,
segist kannast við þessa reglu. „Við
vitum af því að einhver mál fyrnast
á vottorðinu eftir eðli þeirra, en við
höfum á voðalega litlu öðru að
byggja þegar við ráðum fólk til
starfa.“
Hann segist vona að hér verði
farið eins að og í nágrannalöndun-
um þar sem ákveðin fyrirtæki geta
fengið staðfestingu á því hvort ein-
staklingur sé með hreina sakaskrá
eða ekki, og er þá um að ræða fulla
sakaskrá viðkomandi.
„Við höfum látið reyna á þessa
undanþágugrein í reglugerðinni en
án árangurs. Því hefur verið hafnað
í ljósi þess að það eru margir sem
hafa áhuga á þessu, og vinnan væri
einfaldlega of mikil,“ segir Árni.
Fimm ára brot sjást
ekki á sakavottorði
Þegar starfsumsækjandi skilar inn sakavottorði sjást þar aðeins fangelsisdómar
sem eru fimm ára eða yngri. Reglurnar eru settar til að gefa mönnum annað
tækifæri, segir saksóknari. Öryggisfyrirtæki vilja undanþágu frá þessari reglu.
Sumarbústaður í landi
Höskuldsstaða í Eyjafirði
skemmdist töluvert eftir að
kviknaði í honum aðfaranótt
mánudags. Enginn var í bústaðn-
um þegar eldurinn kom upp, en
fólk hafði verið í honum daginn
áður. Eldsupptök eru ókunn.
Nokkur eldur var í bústaðnum
þegar slökkvilið var kallað á
staðinn um fjögurleytið en gekk
að sögn vel að slökkva eldinn.
Bústaðurinn er ekki talinn vera
ónýtur. Málið er í rannsókn hjá
lögreglunni á Akureyri.
Sumarbústaður
skemmdist í eldi
Fyrirtækjasamsteypan
Alcoa er á lista hundrað sjálfbær-
ustu fyrirtækja heims. Þetta var
tilkynnt á heimsviðskiptaráð-
stefnunni, World Economic
Forum, í Davos í Sviss, og er
þetta í þriðja skipti sem Alcoa
kemst á listann.
Listinn er unnin af kanadísku
fyrirtækjunum Innovest Strategic
Value Advisors og Corporate
Knights. Hann byggist á ítarleg-
um úttektum á 1.800 stærstu fyr-
irtækjum heims og inn á hann
komast aðeins þau fyrirtæki sem
sýna fram á yfirburða árangur,
ábyrga umhverfis- og samfélags-
stefnu og víðtæk efnahagsleg
áhrif.
Fyrirtækið hefur starfsemi í 44
löndum og hjá því starfa um
124.000 manns.
Alcoa fær hrós
fyrir sjálfbærni
Leikskólar á
Akureyri hafa allir opinbera
uppeldisstefnu og skólanámskrá.
„Hér voru allir búnir að setja sér
uppeldisstefnu áður en farið var
að tala um skólanámskrá,“ segir
Sesselja Sigurðardóttir, leikskóla-
ráðgjafi hjá Akureyrarbæ. „Ég
hef grun um að leikskólarnir á
Akureyri hafi verið með þeim
fyrstu sem framkvæmdu þetta,“
segir hún.
Leikskólar hafa ákveðið
sjálfstæði til að móta eigin
uppeldisstefnu eða skólanámskrá,
samkvæmt reglugerð um
aðalnámskrá. Menntamálaráðu-
neytið hefur sent sveitarfélögum
bréf og óskað eftir skýringum ef
leikskólarnir hafa ekki sett sér
slíka stefnu og námskrá. Listi yfir
leikskólana hefur ekki verið
birtur en hann á að fylgja bréfi
ráðuneytisins.
Hafa allir
skólanámskrá
Júrí Lúskov, borgar-
stjóri í Moskvu, segist aldrei
nokkurn tímann ætla að leyfa
samkynhneigðum að koma saman
og efna til gleðigöngu í borginni.
Hann kallar viðburði af því tagi
„sataníska“ og sakar Vesturlönd
um siðferðislega spillingu.
„Sumar Evrópuþjóðir leyfa
hjónabönd samkynhneigðra og eru
með kynlífsleiðbeiningar í skólum.
Slíkt er dauðans siðferðiseitur fyrir
börn,“ sagði hann. Á síðasta ári
bannaði hann einnig samkynhneigð-
um að halda göngu í Moskvu, en
bannið var hunsað. Þátttakendur
urðu hins vegar fyrir aðkasti og
sumir hnepptir í fangelsi.
Borgarstjórinn
gefur sig ekki
Foreldrar undrandi
yfir SKO-æðinu
„Ég er ekki viss um að það sé hollt að tala
svona mikið í símann, þó að það sé ókeypis“
Foreldrar SKO-ungmenna eiga oft erfitt með að skilja
hvað vakir fyrir þeim. Einkum vekja grunsamlega lágir
símreikningar ungmennanna furðu, enda á fólk ekki að
venjast þessum upphæðum. „Þetta er ekki einleikið,“
sagði áhyggjufull móðir við blaðamann í gær. „Dóttir
mín virðist alltaf getað talað við vini sína, en samt er
símreikningurinn hennar ekkert hærri en áður. Hún
segir að það sé vegna þess að það sé ókeypis að hringja í
aðra SKO-síma, en hvernig getur það staðist? Ókeypis
að hringja?“ segir móðirin og hlær.
Strámaður ársins 2006
Þrjátíu og átta ára gamall Hafnfirðingur, Sigurgeir Björgvinsson,
var í gær kosinn Strámaður ársins 2006. Á fimmta þúsund
kjósenda greiddi atkvæði í símakosningu að þessu sinni og hlaut
Sigurgeir yfirburða- kosningu en alls voru yfir 100 manns
tilnefndir. Sigurgeir hefur verið ötull strásafnari um árabil og vann
hann hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann safnaði ríflega hálfum
kassa af stráum á síðasta ári. Stráin verða geymd í sérstöku
strásafni sem hann hefur komið sér upp á heimili sínu í
Smárahverfinu. Sigurgeir var hinn kátasti þegar fréttamaður
heimsótti hann í gær. „Þetta er mikil hvatning fyrir mig til að halda
áfram strásöfnuninni. Þetta er vissulega mikil vinna en mjög
gefandi,“ sagði Sigurgeir.
SKO býður jafngóða GSM-þjónustu og hin símafyrirtækin,
innanlands og erlendis. Eini munurinn er lægra verð! Það
kostar EKKERT að færa GSM-símanúmerið til SKO. Þú
skráir þig í þjónustuna á www.sko.is.
Hringt í SKO GSM-síma Hringt í aðra GSM- og heimasíma í alla GSM-síma á Íslandi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
7
5
9
6
„Ég get til dæmis farið oftar á kaffihús og í bíó. Ég
get einfaldlega leyft mér svo miklu meira,“ segir
hún. Alls hafa um 5.000 Íslendingar skráð sig í
þjónustu SKO síðan í apríl á síðasta ári og ekkert
lát virðist vera á æðinu.
„Þetta er allt
annað líf “
Ung stúlka í Reykjavík segir líf
sitt hafa breyst eftir að hún
fékk sér SKO.
„Ég er alsæl,“ segir ung námsmær í Reykjavík.
Tony Blair, forsætis-
ráðherra Breta, skýrði forsvars-
mönnum kaþólsku kirkjunnar í
Bretlandi frá því að engin
trúfélög fengju undanþágu frá
reglum um að samkynhneigðir
eigi að koma jafnt og aðrir til
greina með að ættleiða börn.
Reglunum er ætlað að koma í
veg fyrir að samkynhneigðum sé
mismunað, en í síðustu viku fór
kaþólska kirkjan fram á undan-
þágur fyrir trúfélög sem reka
ættleiðingaskrifstofur.
Blair hafnaði því, og sagði
„ekkert pláss fyrir mismunun í
samfélagi okkar“.
Samkynhneigð
ekki fyrirstaða