Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 6

Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 6
 Eimskipafélag Íslands ætlar að styrkja Neistann, styrktarfélag veikra barna, um hálfa milljón króna fyrir hvert mark sem Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Barcelona, skorar í spænsku deild- arkeppninni. Fyrirtækið mun einn- ig styrkja Umhyggju, félag til styrktar langveikum börnum, um eina milljón króna fyrir hvert mark sem Eiður skorar í meistaradeild Evrópu. Þetta kemur fram í sam- starfssamningi sem Eiður og Magn- ús Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands, undirrit- uðu í Barcelona á sunnudaginn. Samstarfssamningurinn er á sviði markaðs- og kynningarmála og gildir í þrjú ár. Samkvæmt honum er Eimskipafélagi Íslands heimilt að nota nafn og ímynd Eiðs Smára til að kynna fyrirtækið, meðal annars í auglýsingum og kynningum. Í fréttatilkynningu frá Eimskip kemur fram að slagorð fyrirtækis- ins, „Íslensk sókn um allan heim“, tengist Eiði Smára því hann sé í fremstu röð knattspyrnumanna í heiminum í dag og að Eimskip sé leiðandi fyrirtæki á sviði hita- stýrðra flutninga í N-Evrópu. Magnús Þorsteinsson segir að Eiður setji slagorð fyrirtækisins í nýja merkingu. „Ég er stoltur af því að ganga til samstarfs við Eið Smára og vona að þessi tvö óska- börn þjóðarinnar muni saman ná miklum árangri,“ segir Magnús. Hann bætir því við að með samn- ingnum vilji fyrirtækið einnig láta gott af sér leiða með því að styrkja íslensk börn sem eigi við veikindi að stríða. Eiður Smári segir að samning- urinn sé spennandi fyrir hann og að hann sé stoltur af því að Eimskip vilji nota ímynd hans til að kynna fyrirtækið. Mörk Eiðs styrkja veik börn Fylgist þú með undankeppni Eurovision? Finnst þér að prestar eigi að kynna þjónustu sína í skólastof- um? Arftaki Windows XP stýr- ikerfisins, Windows Vista, fer í almenna sölu í dag. Meðal helstu nýjunga er einfaldað viðmót, bætt leit og fjölbreyttari tengi- möguleikar fyrir margmiðlunar- tæki á borð við tónlistarspilara. Stýrikerfið, sem hefur verið í þróun hjá Microsoft í sex ár, kemur út í sjö útgáfum og er hver þeirra ætluð mismunandi not- endahópum. Sú ódýrasta, Home Basic, mun kosta rúmar tuttugu þúsund krónur hér á landi. Sé stýrikerfið keypt með nýrri tölvu lækkar verðið niður í um það bil tíu þúsund krónur. Ekki geta þó allar tölvur notað stýrikerfið. Lágmarkskröfur eru 512 megabæti af innra minni og fimmtán gígabæta pláss á hörð- um diski. Windows Vista í almenna sölu Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsókn- arflokks, sagði framkvæmd flokksþings frjálslyndra skrumskælingu lýðræðisins við upphaf þing- fundar í gær. Bað hann ennfremur formann flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, um að beygja af stefnu Frjáls- lynda flokksins í málefnum útlendinga. Guðjón Arnar sagði flokksþing Frjálslynda flokksins hafa farið vel fram og kvað flokk sinn bæði opinn og lýðræðisleg- an. Las Guðjón Arnar ennfremur upp ályktun þingsins um málefni útlendinga og lauk máli sínu á að afhenda nafna sínum málefna- handbók Frjálslynda flokksins. Guðjón færði Guðjóni mál- efnahandbók Enn eru 44 þekkt sprengjusvæði á Íslandi frá tímum seinna stríðs lítt eða ekkert könn- uð. Upplýsinga um 27 svæði til viðbótar er beðið. Þetta kemur fram í svari utan- ríkisráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar Samfylkingunni. Jón spurðist fyrir um hvar þekkt sprengjusvæði væru á land- inu, hve stór þau væru, hvort hægt væri að áætla magn skota og sprengna á hverju svæði og hvort sprengjuleit og hreinsun hefði verið framkvæmd. Í svarinu kemur fram að vitað er um 73 svæði sem Bandaríkja- menn notuðu til sprengju- og skotæfinga frá 1940. Af þeim eru til greinargóðar upplýsingar um 29 svæði og hefur sprengjuleit og -eyðing þegar farið fram á nokkr- um þeirra. Í svari ráðherra segir að alls gætu sprengju- og skotæfinga- svæði náð yfir 24.000 ferkílómetra lands. Flest þeirra eru á höfuð- borgarsvæðinu og á Reykjanesi en nokkur á Vesturlandi, Norður- landi og á Austfjörðum. Fram kemur að erfitt sé að áætla hve langan tíma geti tekið að hreinsa öll svæðin en fyrirséð er að hreinsun á nokkrum þeirra geti lokið á næstu árum og að hægt verði að ljúka úttekt á ástandi ann- arra á næstu fimm árum. Í ljósi óvissunnar telur utanrík- isráðherra erfitt að henda reiður á kostnað við leit og hreinsun. Blindrahesturinn Panda hjálpar eiganda sínum Ann Edie að komast á milli staða í New York auk þess sem hún ver eiganda sinn, er kattþrifin og elskar að sækja spýtur. Edie, sem er á sextugsaldri, segist hafa leitað að blindrahundi eftir að labrador-hundur hennar dó fyrir nokkrum árum, en ákveðið að prófa smáhest og hún sjái ekki eftir því. Panda er réttilega smáhestur, enda bara 74 sentimetr- ar á hæð og er rúm fimmtíu kíló. Þegar Panda er ekki að vinna kúrir hún hjá eiganda sínum, leggur sig á teppi eða leikur sér að leikföngunum sínum. Hestur gegnir hlutverki hunds Sjúkrarúmin á vegum Heilbrigðisstofnun Aust- urlands eru teppt af öldruðu fólki sem hefði þurft að komast inn á hjúkrunarheimili og því getur sjúkrahúsið illa sinnt bráðveiku fólki sem þyrfti að liggja í sjúkra- rúmi. Þetta segir Einar Rafn Har- aldsson, framkvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunar Austurlands, HSA. „Við höfum ekkert svigrúm. Samtals eru um níutíu sjúkrarúm á Heilbrigðisstofnun Austurlands, þar af erum við að reka rúmlega þrjátíu sjúkrarúm en þau hefðu þurft að vera um fjörutíu til þess að við hefðum það svigrúm sem við hefðum þurft. Við erum í þeirri kreppu að það er allt fullt hjá okkur og við sendum alla sjúk- linga sem við getum á sjúkrahús annars staðar,“ segir hann. Ástandið hefur versnað hægt og sígandi síðustu tvö til þrjú ár. Íbúum hefur fjölgað um þrjátíu og sex prósent eftir að framkvæmdir hófust fyrir austan og þess vegna fleiri sem þurfa þjónustu stofnun- arinnar. „Ástandið var orðið veru- lega þrúgandi á síðasta ári og engar úrbætur í sjónmáli,“ segir Einar Rafn. Í byrjun mars mun húsnæði fyrir tólf rúma hjúkrunardeild í Neskaupstað verða afhent en Einar Rafn segir að stofnunin hafi ekki peninga til að búa hana tækj- um og búnaði og því sé ekki víst að hægt verði að opna hana. „Grunnbúnaðurinn kostar 30- 40 milljónir króna. Við höfum að sjálfsögðu óskað eftir þessu fé en það er ekki enn í hendi. Við bíðum bara eftir svari úr heilbrigðis- ráðuneytinu. Vonandi dregur að því að við fáum svar,“ segir hann. Leifur Benediktsson, verk- fræðingur í heilbrigðisráðuneyt- inu, segir að um misskilning sé að ræða. Ekki standi á peningum. Spurningin sé hvenær sjúkrahús- ið verði búið að koma sér fyrir í húsnæðinu og þá verði hægt að opna. Hugsanlega verði opnað þó að hluta af búnaðinum vanti, það sé ekkert óvenjulegt við það. Þörfin fyrir hjúkrunarrými er knýjandi fyrir austan, að mati við- mælenda Fréttablaðsins. Fyrir utan hjúkrunarrýmin í Neskaup- stað hefur lengi staðið til að byggja við hjúkrunarheimilið Hulduhlíð á Eskifirði. Hjúkrunarheimili er rekið á Fáskrúðsfirði og einnig hefur verið þrýst á viðbyggingu á Egilsstöðum. Sjúkrarúm sögð teppt af öldruðum Sjúkrarúm hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands eru svo teppt af öldruðu fólki að sjúkrahúsin geta illa sinnt bráðveiku fólki. „Engar úrbætur í sjónmáli,“ segir framkvæmdastjóri HSA. Ráðuneytið talar um misskilning.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.