Fréttablaðið - 30.01.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 30.01.2007, Síða 8
Kringlan Reykjavíkurvegur 74 Suðurlandsbraut 4A konditori.is 588 1550 Við erum byrjuð að baka brauðin okkar aftur Veisluþjónusta & veislusalir Tilboðsdagar 29. janúar til 2. febrúar * meðan byrgðir endast Þriðjudagur Kleinuhringur 50 kr * Miðvikudagur Pekan vínarbrauð 100 kr * Alla daga Kaffi 150 kr 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Fyrirtækið Villimey hefur fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til sjálf- bærrar söfnunar á villtum íslensk- um plöntum. Vottunin nær til tæp- lega 80 ferkílómetra landsvæðis í Tálknafirði og Arnarfirði og mun fyrirtækið nýta villtar plöntur af svæðinu til fjölþættrar fram- leiðslu á lífrænum heilsuvörum, græðikremum og snyrtivörum. Fréttavefurinn Tíðis segir frá. Vottunin markar tímamót að því leyti að aldrei fyrr hefur jafn stórt landsvæði á Íslandi verið vottað til lífrænnar framleiðslu. Nú þegar safnar Villimey um tíu algengum tegundum villtra plantna, þar á meðal baldursbrá, brenninetlu, blóðbergi, mjaðurt og vallhumli. Villimey fær vottun Hámarksbætur vegna skipsstrands eru miklu lægri á Íslandi en í Noregi. Norðmenn breyttu siglingalögum sínum fyrir nokkrum árum og hækkuðu fjár- hæðina verulega eftir að nokkur skip strönduðu við Noreg. Norð- menn telja sig hafa lært af reynsl- unni. „Þau tilvik sem höfðu komið upp voru það kostnaðarsöm að Norðmenn töldu nauðsynlegt að hækka þessar fjárhæðir til að kostnaður gæti ekki lent eftir atvikum á hinu opinbera,“ segir Guðmundur Sigurðsson, prófess- or við Háskólann í Reykjavík. Guðmundur fjallaði nýlega um strand Wilson Muuga í Hvalsnes- fjöru og fór meðal annars yfir tak- markanir bóta í siglingareglum á Íslandi og í Noregi. Fram kom að bætur hefðu verið hækkaðar veru- lega í norsku siglingalögunum árið 2005. Guðmundur tók nokkur dæmi, ný og gömul, um skipsströnd við Noreg sem hefðu kennt Norð- mönnum lexíu. Guðrún Gísladótt- ir KE-15 sökk við Lófóten í júní 2002. Hún var 2.600 brúttótonn. Kröfurnar námu 36 milljónum norskra króna. Fjárhæðin nam 12,5 milljónum norskra en væri 52 milljónir samkvæmt núgildandi lögum. Samkvæmt íslenskum sigl- ingalögum væri hún 5 milljónir norskra króna. Um miðjan janúar 2007 strand- aði flutningaskipið Server, tæp 20 þúsund tonn. Bótafjárhæðin er samkvæmt norskum siglingalög- um tæpar 2.600 milljónir íslenskra króna en væri 351 milljón króna samkvæmt íslenskum lögum. Rocknes strandaði við Noreg í árs- byrjun 2004. Kröfurnar námu 110 milljónum norskra króna. Bóta- takmörkunarfjárhæðin var um 73 milljónir. Samkvæmt núgildandi lögum væri hún 240 milljónir norskra króna en samkvæmt íslenskum lögum væri hún 30 milljónir króna. Lögfræðingar samgönguráðu- neytisins og Siglingamálastofnun- ar hafa verið að fara yfir siglinga- lög og lög um verndun gegn mengun hafs og stranda og vinna að tillögum um breytingar á lögum. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu má búast við frum- varpi en ekki hefur verið ákveðið hvorum lögunum verði breytt. Búist er við að það skýrist síðar í vikunni. Hærri bóta- takmörkun Norðmenn hafa miklu hærri bótatakmörkunarfjár- hæðir en Íslendingar. Þeir lærðu af reynslunni og hækkuðu fjárhæðirnar fyrir nokkrum árum. Frum- varp er í bígerð.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.