Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 11

Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 11
Búddistafélag Íslands hefur óskað eftir því við Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, að hann beiti sér fyrir því að búddíski söfnuðurinn fái lóð undir hof við Vífils- staði. Að sögn Páls Júlíussonar, fyrrverandi for- manns Taílensks-íslenska félagsins, hefur auð- maður í Taílandi lofað fjármagni til að reisa hofið. Páll segir að um nokkrar bygggingar yrði að ræða. Hann ítrekar að málið sé allt á byrjun- arstigi varðandi staðsetninguna í Garðabæ. Lóðin við Vífilsstaði er í eigu ríkisins og á for- ræði fjármálaráðuneytisins. Björn Bjarnason segir í bréfi til Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra í Garðabæ, að Páll hafi, fyrir hönd Búddistafé- lagsins, beint þeim tilmælum til sín að beita sér gagnvart fjármálaráðuneytinu þannig að Garða- bæ yrði afhent umrædd lóð. Bærinn myndi síðan ráðstafa lóðinni til Búddistafélagsins. Páll hefur einnig rætt við Gunnar bæjarstjóra og nú vill dóms- og kirkjumálaráðherra heyra sjónarmið bæjarstjórans í málinu. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Páll hreyfir þessu máli við mig með lóð í huga. Áður en ég aðhefst frekar vegna þessara síðustu tilmæla Páls þætti mér æskilegt að fá viðhorf yðar milliliðalaust til málsins,“ skrifar ráðherra til bæjarstjóra. Sænskir fjölmiðlar segja að forsætisráðherrahjónin Fredrik og Filippa Reinfeldt hafi haft barnfóstru sem hafi unnið svart í Svíþjóð, meðal annars á hjúkrun- arheimili fyrir aldraða, á sama tíma og hún bjó inni á heimili hjón- anna. Konan kom til Svíþjóðar í desember 2003, að sögn Express- en. Hún sótti um hæli og fékk vinnu sem barnfóstra hjá Reinfeldt fjölskyldunni. Hún hafði atvinnuleyfi fram í sept- ember 2005 þegar hælisumsókn- inni var hafnað. Hún átti þá að hætta að vinna en hélt áfram í sex vikur. Fredrik Reinfeldt, forsætisráð- herra Svíþjóðar, heldur því fram að barnfóstran hafi farið strax heim til Serbíu þegar hælisum- sókn hennar var hafnað og komið svo til baka og farið að vinna á hjúkrunarheimilinu. Barnfóstran tal- in vinna svart Eimskip hefur keypt alla hluti í Norðurfrakt ehf. á Siglufirði, en fyrir átti félagið 52 prósenta hlut í fyrirtækinu. Seljendur eru Árni Helgason á Ólafsfirði og Ásmundur H. Einarsson á Siglufirði. Ásmundur stofnaði fyrirtækið fyrir átta árum og hefur verið framkvæmdastjóri þess frá upphafi. Í lok árs 2005 var flutningarekstur Árna Helgason- ar á Ólafsfirði færður inn í Norðurfrakt. Samhliða varð Árni hluthafi í félaginu. Guðmundur Nikulásson, fram- kvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips, segir að kaupin séu liður í áframhaldandi uppbygg- ingu innanlandsstarfsemi félagsins. Á alla hluti í fyrirtækinu Önd sem lifði af tveggja daga ísskápsvist eftir að hafa verið skotin af veiðimanni var við dauðans dyr á skurðar- borði dýralæknis í Flórída í Bandaríkjunum á dögunum. Hún hætti að anda í miðri aðgerð þar sem átti að gera við skotsár á væng hennar, en náði andanum á ný eftir lífgunartilraunir dýra- læknisins Davids Hale. Öndin, sem heitir Perky, varð fræg í seinustu viku þegar eiginkona veiðimannsins opnaði ísskáp sinn og sá öndina reisa hausinn upp. Perky mun senni- lega ekki gangast undir fleiri aðgerðir og er nú á batavegi. Önd endurlífguð í skurðaðgerð Leiðtogi í starfi KFUM og KFUK hefur kært birtingu myndar af sér á vef þar sem því var haldið fram að hann hefði reynt að eiga kynferðisleg samskipti við 14 ára stúlku. Vegna vinnureglu hjá KFUM og KFUK hefur maðurinn tekið sér frí frá störfum fyrir félagið þar til niðurstaða fæst í málinu. Maðurinn sem um ræðir heitir Arnmundur Kr. Jónsson. Á vef KFUM & KFUK segir að hann hafi gegnt mörgum trúnaðar- störfum fyrir félagið. Þar segir að hann fullyrði að andlitsmynd af sér hafi verið skeytt saman við mynd af neðri hluta líkama annars karlmanns. Myndbirting á vefnum kærð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.