Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 20

Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 20
greinar@frettabladid.is Eftir mikið andóf minnihlutans á Alþingi var frumvarpið um RÚV ohf. (úff) samþykkt. Stjórnarandstaðan notaði einu leiðina sem hún getur til að mótmæla svo eftir yrði tekið, þingmennirnir töluðu þess vegna gegn frumvarpinu klukkustundum saman. Það fór því ekki fram hjá neinum að stjórnarandstaðan var mótfallin frumvarpinu. Mér fannst málþófið svokallaða gott hjá stjórnarandstöðunni og gef lítið fyrir hneykslan fjölmiðla og fréttamanna. Þetta var vont frumvarp og þetta verða vond lög. Það á að leggja á nefskatt, sem þýðir að allir borga til Ríkisút- varpsins hvort heldur þeir hlusta eða horfa nokkurn tíma á það eður ei. Að vísu eru þeir sem greiða fjármagnstekjuskatt undanþegnir, (það má reikna með því að það sé fólkið sem hefur helst efni á að borga skattinn). Menntamálaráð- herrann segir að það sé of flókið að hafa það ekki þannig en ætlar að laga lögin að raunveruleikanum einhvern tímann í framtíðinni. Ef hún segir það þá hlýtur það að vera skynsamlegt! Ríkisútvarpið sem allir verða skyldugir að borga til mun svo keppa við einkafyrirtæki um auglýsingar og það sem kallað er kostun. Algjört fornaldar fyrir- komulag sem samrýmist engan veginn nútíma hugsun um samkeppni fyrirtækja. Ég styð hugmyndir um að ríkið reki gömlu gufuna en láti aðra um sjónvarps- rekstur og Rás tvö. Mismuninn ætti að nota til íslenskrar þátta- gerðar. En frumvarpið sem samþykkt var er í anda þess pilsfaldakapítalisma sem Sjálf- stæðisflokkurinn fordæmir á flokksþingum en stundar við hvert tækifæri sem honum gefst. Tækifærin sem ekki gefast er þegar EES- samningurinn bannar beinlínis háttarlagið. Stjórnarmeirihlutinn kærir sig kollóttan þegar stjórnarandstaðan efnir til svo kröftugra mótmæla sem raun bar vitni. Það kom svo sem ekki á óvart því stjórnar- meirihlutanum er margt betur gefið en bera virðingu fyrir skoðunum þeirra sem ekki kusu þá. Þeir sögðu því digurbarkalega „nú skal þingræðið ráða“. Í hugum þeirra er þingræði það sama og að meirihlutinn valti yfir minnihlut- ann. Í lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við, felur þingræði yfirleitt ekki í sér flokksræði eða meirihlutaofbeldi. Ríkisstjórnir á Íslandi hafa undanfarið kært sig kollóttar um það. Í Danmörku háttar t.d. þannig að 30% þingmanna geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp. Þetta ákvæði veldur því að hin þingbundna ríkisstjórn þarf í aðgerðum sínum að taka tillit til þessa og veður þess vegna ekki áfram á þann hátt sem við eigum að venjast með rík- isstjórnir hér á landi. Það ætti að vera og hefði átt að vera eitt af verkefnum stjórnar- skrárnefndarinnar að taka á þessu. Verkefni hennar hefði átt að vera að leggja til eitthvað kerfi sem gerði valdhöfum erfiðara og helst ókleift að taka ekki tillit til annarra en sjálfra sín. Allar horfur eru hins vegar á að árangur af starfi nefndarinnar verði lítill sem enginn. Véfréttir eru um að eitthvert samkomulag hafi náðst. Eftir því sem næst verður komist er i burðarliðnum tillaga um að 2/3 þingmanna geti samþykkt að stjórnarskrárbreyt- ingar fari í þjóðaratkvæðagreiðslu og ef 25% þjóðarinnar taka þátt í slíkri atkvæðagreiðslu þá er hún gild annars ekki. Þetta er allavega það sem ég les út úr véfréttinni. Enn einu sinni kemur á daginn að það er tóm vitleysa að láta alþingismenn fjalla um stjórnar- skrána. Þeir eru alltaf í naflaskoð- un og hugsa aldrei um neitt annað en flokkshagsmuni og í besta falli eigin hagsmuni. Ef véfréttin um tillögugerðina er rétt virðist sem tilraun til að koma til móts við þá sem stjórnarskráin á að þjóna, þ.e. alla landsmenn, hafi misheppnast, hafi einhvern tímann í starfi þessarar nefndar verið vilji til að taka tillit til hagsmuna þess fólks. Þingmenn eiga nefnilega mikilla hagsmuna að gæta þegar þeir fjalla um stjórnarskrána. Stjórnarskráin er lagabálkur- inn sem tryggir grunnverðmæti samfélags okkar og á að vernda okkur fólkið, borgarana, fyrir valdníðslu, hvort heldur það felst í ofbeldi meirihlutans eða ofurvaldi skriffinna og embættismannakerf- is. Við, fólkið, eigum þess vegna að fjalla um stjórnarskrána og samþykkja hana en alls ekki þingmennirnir sem eins og fyrr segir hafa orðið vísir að því að hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig og flokkshagsmuni. Þingmenn eiga ekki frekar en aðrir að vera dómarar í eigin sök. Auk þess legg ég til að eftirlaunaósóminn verði afnuminn með lögum Af hverju málþóf? Ég sá frétt um daginn að menntamálaráðu-neytið myndi ráðstafa 70 milljónum króna í styrki til íslenskukennslu fyrir útlendinga í ár. Að mörgu leyti eru það víst góðar fréttir, en í nóvember lofaði ráðuneytið 100 milljón- um fyrir næsta ár, og því að námskeiðin yrðu ókeypis. Hvað kom þá fyrir? Og ætlar ráðneytið að lækka styrki ennþá meira? Og þá koma fleiri spurningar: Stefán Stefánsson, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu, sagði í Fréttablaðinu að „Verkefnisstjórn hefði verið sett á laggirnar og unnið stíft. Vinna við námskrárgerð og námsefnisgerð sé þegar hafin og svo verði farið í það að kanna menntun kennara.“ Gott að heyra. En ætlar ráðneytið að spyrja þá útlend- inga sem hafa stundað íslenskukennsluna hérlendis um þeirra ráð? Hvernig verður menntun og reynsla kennara könnuð? Hver verður staðallinn fyrir þessi námskeið og kennara? Ætlar ráðuneytið að búa til fleiri námskeið, bæði fyrir þá sem búa innan og utan höfuðborgsvæðisins? Eins og ég hef bent á, þá er nógu erfitt að finna tíma til að fara í nám og læra heima á meðan maður þarf að sinna 100% starfi og sjá um fjölskylduna. Þess vegna myndi ég gera kröfu um að þessi námskeið væru hluti af vinnutíma, til dæmis 4 klukku- stundir á viku, eins og gert er hjá Svæðis- skrifstofu Reykjaness um málefna fatl- aðra. Eru nokkra áætlanir í gangi um að hafa íslenskunámskeið sem hluta af vinnu- tíma? Ég myndi gera eftirfarandi kröfur: 1) Að þessi námskeið séu ókeypis (þar á meðal að menntamálaráðuneytið standi við fyrsta loforð sitt um 100 milljóna króna styrk). 2) Að þessi námskeið fylgi eftir einhverjum reglum um hvernig íslenska er kennd, eins og er í öðrum nám- skeiðum. 3) Að menntamálaráðuneytið heyri frá nemendunum sjálfum hvað virkar best í kennslu, til þess að finna út hvaða staðall er bestur. 4) Að þessi námskeið verði hluti af vinnutíma. 5) Að mennta- málaráðuneytið búi til fleiri námskeið, bæði fyrir þá sem búa innan og utan höfuðborgarsvæðisins. Mér finnst þessar spurningar bara eðlilegar og sanngjarnar. Íslenskunámskeið á ekki vera skylda, heldur réttindi. Ef ríkisstjórnin er sammála, þá væri gott að sjá að hún taki það alvarlega. Höfundur skipar þriðja sætið á lista vinstri grænna í Reykjavík norður. Hvernig verður íslenskukennslan? Frumvarpið sem samþykkt var er í anda þess pilsfaldakapítal- isma sem Sjálfstæðisflokkurinn fordæmir á flokksþingum en stundar við hvert tækifæri sem honum gefst. E nginn þarf að ganga að því gruflandi að afstaða til umhverfismála hefur vaxandi þýðingu í stjórnmálum. Þeir hörðu árekstrar sem orðið hafa milli sjónarmiða um nýtingu orkulinda og verndun náttúrugæða bera glöggt vitni þar um. Reiptog milli sjónarmiða og hagsmuna af þessu tagi verður aldrei leyst í eitt skipti fyrir öll með því að annar hópurinn beri hinn ofurliði. Reyndar eru formælendur þess háttar öfga æði fáir. Eigi að síður lýstur þessum hagsmunum saman með harkalegum hætti. Að einhverju leyti má skrifa þá árekstra á kostnað aðferða- fræðinnar við framkvæmd virkjana. Á það hefur verið bent á þessum vettvangi að ekki hefur verið skilið nægjanlega vel á milli verðmats á réttindum og kostnaðar við virkjanir. Ein af ástæðunum fyrir mikilli raforkueftirspurn til álfram- leiðslu hér á landi síðustu ár gæti verið sú að virkjanaréttindin hafi ekki verið réttilega metin til fjár. Sé svo endurspeglast sá kostnaður ekki í raforkuverðinu. Þá hallar aðferðafræðin á nátt- úruverndarsjónarmiðin. Lausnin getur að sönnu verið vandasöm. Í raforkulögum hafa virkjanafyrirtækin, sem öll eru reyndar í opinberri eigu, eins konar sjálfsafgreiðslurétt til eignarnáms á orkuréttindum og eignarlöndum. Veruleg þrenging eða afnám sjálfsafgreiðslu í þessum efnum gæti verið einn þáttur í að koma á betra jafnvægi milli stríðandi hagsmuna nýtingar og náttúruverndar. Í viðtölum við þetta blað fyrr í þessum mánuði tóku þeir Atli Gíslason, forystumaður vinstri grænna í Suðurkjördæmi og Björgvin Sigurðsson, forystumaður Samfylkingarinnar í því kjör- dæmi, afdráttarlausa afstöðu um að skilyrði eignarnáms varðandi samninga Landsvirkjunar við landeigendur að neðri hluta Þjórsár væru ekki fyrir hendi. Síðastliðinn sunnudag greindi Illugi Gunnarsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, frá því hér í blaðinu að hann hefði hreyft þeirri hugmynd innan flokksins að skoðað yrði sér- staklega hvort rétt væri að þrengja ákvæði í lögum um möguleika raforkufyrirtækja til eignarnáms þegar verið væri að virkja fyrir einn aðila svo sem til þess að selja raforku til stóriðju. Vel má vera að mismunandi sjónarmið liggi að baki afstöðu þessara stjórnmálamanna. En þeir eiga alltént það sameiginlegt að telja ónóg rök fyrir eignarnámssjálfsafgreiðslu orkufyrirtækj- anna. Það athyglisverða er að hér sjá stjórnmálamenn bæði af hægri og vinstri vængjum stjórnmálanna að virðing fyrir eignarréttind- um getur verið þáttur í að tryggja betra jafnvægi á þessu sviði. Það bendir eindregið til þess að í breyttri aðferðafræði geti falist nýr pólitískur snertiflötur á þessum viðkvæma vettvangi. Hér þarf einnig að huga að því að þau vatnsréttindi eða jarð- hitaréttindi sem ríkið á séu metin hæfilega til fjár. Þetta á sér- staklega við um neðri hluta Þjórsár. Þar á ríkið mikil vatnsrétt- indi. Hefur Landsvirkjun verið gert að greiða nægjanlega hátt verð fyrir þau? Vera má að svo sé. Fyrir því hefur þó ekki verið gerð skilmerkileg grein. Nýr pólitískur snertiflötur Suðurströnd 4 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 *T ire R ev ie w M ag az in e Bestu dekkin átta ár í röð!*

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.