Fréttablaðið - 30.01.2007, Síða 25

Fréttablaðið - 30.01.2007, Síða 25
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir ferð- ast um heiminn endilangan til að sinna sínu helsta áhugamáli, tennis. „Ég fór að æfa tennis þegar við fjölskyldan bjuggum í tvö ár í Japan,“ segir Eirdís Heið- ur Chen Ragnarsdóttir, 13 ára, sem leikur tennis með Víkingi. Eirdís segist uppruna- lega hafa æft fimleika, en móðir hennar, afi og amma eru öll þekktir fimleikaþjálfarar í föðurlandinu Kína. Síðan hafi komið í ljós að fimleikar hentuðu Eirdísi einfaldlega ekki. „Ég ákvað þá að prófa tennis hjá atvinnu- þjálfara sem mamma kannaðist við,“ heldur Eirdís áfram. „Þá áttaði ég mig strax á því að þarna var eitthvað skemmtilegt á ferð.“ Eirdís hélt áfram að æfa tennis eftir að fjölskyldan flutti til Íslands, þar sem hún bjó upphaflega áður en stefnan var sett á Japan. Hún segist hafa fundið fyrir ákveðnum mun á þjálfuninni hér og erlendis. „Japanar æfa miklu meira heldur en Íslendingar. Sömuleið- is Kínverjar. Þegar ég fór í eins og hálfs mán- aðar langar æfingabúðir í Wuhan í Kína í fyrra æfði ég daglega í sex klukkutíma sex daga vikunnar í allt að 40 stiga hita. Hér æfi ég ekki nema þrisvar sinnum í viku, einn og hálfan tíma í hvert skipti. Kennslan er samt sem áður mjög góð.“ Eirdísi dreymir nú um að komast aftur í æfingabúðir í Kína. „Þetta fer allt eftir því hvort mamma leyfir mér að fara,“ segir hún. „Vellirnir þarna úti eru svo góðir. Á höfuð- borgarsvæðinu eru nefnilega engir tennissal- ir. Eins og er æfum við í leikfimishúsi Fjöln- ishúss. Kópavogsbær ætlar reyndar að bæta úr því með byggingu tennishúss sem verður opnað í mars. Ég hlakka til að sjá útkomuna.“ Vill æfa í Kína

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.