Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 29

Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 29
Sumir eiga erfitt með svefn en á því má sigrast sé réttum aðferðum beitt. Sofðu unga ástin mín Parkinson sjúklingum mun fjölga um helming hjá 15 fjöl- mennustu þjóðunum fyrir árið 2032. Í nýjasta hefti vísindaritsins Neur- ology er því haldið fram að öldr- unarsjúkdómar eins og Parkinson séu stærsta heilbrigðisvandamál framtíðarinnar. Áætlað er að í 15 fjölmennustu ríkjum heims muni fjöldi Parkinson sjúklinga tvöfald- ast á næstu 25 árum. Þetta kemur verst niður á fátækari löndum þar sem velferð- arkerfið er ekki í föstum skorðum. Þetta á við um mörg af 15 fjöl- mennustu ríkjum heims. Ríkin sem um ræðir eru Kína, Indland, Indónesía, Bandaríkin, Brasilía, Pakistan, Bangladess, Nígería, Japan, Rússland og Evrópuríkin Frakkland, Þýskaland, Bretland og Ítalía. Parkinson sjúklingum fjölgar ört Uppspretta fíkninnar Vísindamenn hafa fundið svæði í heilanum sem ber ábyrgð á löngun í sígarettur. Reykingar eru ávanabindandi bæði líkamlega og andlega. Nú hafa vísindamenn fundið hvaða svæði það er í heilanum sem virðist hafa mest áhrif á löngun reykingafólks í sígarettur. Svæðið sem um ræðir er einn- ig talið ábyrgt fyrir ýmsum til- finningum. Skaddist svæðið hættir fólk að reykja um leið. Löngunin hverfur sem og ánægj- an sem fylgir reykingum. Fundurinn er fyrsta beina sönnunin á tökum reykinga á heilanum sjálfum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.