Fréttablaðið - 30.01.2007, Side 30
Fræðsla og ráðgjöf um nýjan
lífsstíl fyrir matarfíkla verður
aðalefni námskeiðs sem haldið
verður um helgina á Hótel
Laka í grennd við Kirkjubæjar-
klaustur.
„Námskeiðið er fyrir þá sem hafa
áhuga á eða telja sig geta átt við
matarfíkn að stríða,“ segir Esther
Helga Guðmundsdóttir ráðgjafi
um námskeið sem verður haldið á
Hótel Laka í Skaftárhreppi 2.–4.
febrúar. Sjálf hefur Esther Helga
reynslu af matarfíkn og einnig
ráðgjafarþjónustu því hún stofn-
aði á síðasta ári meðferðar- og
fræðslumiðstöð (MFM) fyrir þá
sem hafa ánetjast mat. Á nám-
skeiðinu á Hótel Laka segir hún
verða kynningu á leiðum til lausna,
meðal annars verði matreiðslu-
námskeið í eldhúsi hótelsins.
„Fráhald er orð sem mikið er notað
í sambandi við matarfíknina. Frá-
hald krefst þess að unnið sé með
líkamlega, huglæga og andlega
þáttinn jöfnum höndum. Þetta er
því ekki enn einn matarkúrinn
heldur miklu meira. Fólk fær
fræðslu, greiningu og kennslu í
nýjum lífsstíl sem tekur á þessum
vanda. Svo er mælt með því að
þátttakendur fylgi námskeiðinu
eftir í stuðningshópum hjá MFM
miðstöðinni eða með 12 spora
bataleiðinni,“ segir Esther Helga
spurð nánar um efnið sem hún
ætlar að kynna þarna í jöklanna
skjóli. Hún getur þess líka
að dýrindis
máltíðir verði
um helgina á
Hótel Laka en að allur maturinn
verði án þeirra efna sem geti
kveikt matarfíkn. „Það er frábært
að komast út úr bænum og í sveita-
kyrrðina til að skerpa einbeiting-
una,“ segir hún að lokum.
Nánari upplýsingar um námskeið-
ið er að finna á síðunum www.hot-
ellaki.is og www.matarfikn.is
Orsök og afleiðing matar-
fíknar rædd í jöklanna skjóli
Megrun og hreyfing eru
jafngóðar leiðir til að missa
aukakílóin.
Að borða minna og hreyfa sig
meira er hvort um sig jafngóð leið
til að losna við aukakílóin, sam-
kvæmt nýrri bandarískri rann-
sókn sem stríðir gegn fullyrðing-
um margra líkamsræktarþjálfara
og megrunarráðgjafa. Rannsóknir
sem gerðar voru á of þungu fólki
sýndu að hitaeining er bara hita-
eining og skiptir engu máli hvort
fólk missi hitaeiningar með
breyttu mataræði eða hreyfingu.
Sagt er frá rannsókninni á frétta-
vef Reuters en hún var afar ítar-
leg og sýndi jafnframt að ekki er
til nein sérstök aðferð til að losna
við fitu á sérstökum stöðum á lík-
amanum, eins og á maga eða
lærum. Auk þess sem ekkert bendi
til þess að aukinn vöðvamassi
valdi því að fólk brenni fleiri hita-
einingum.
„Hitaeiningin skiptir öllu máli,“
segir Doktor Eric Ravussin hjá
Pennington Biomedical rannsókn-
arstöðinni í Louisiana. „Svo lengi
sem hitaeininguna vantar eru
áhrifin þau sömu. Öll fita á líkam-
anum minnkar jafnt.“
Ravussin sagði að rannsóknin,
sem birt er í tímartinum Journal
of Clinical Endocrinology & Meta-
bolism, sé ein fárra þar sem skil-
yrðum er stýrt og geti sýnt hvað
gerist í raun í líkamanum þegar
fólk er í megrun eða þjálfar sig.
Ravussin og hópur hans sem
stóðu að rannsókninni hafa jafn-
framt verið að rannsaka hvort
færri kaloríur hjálpi fólki að lifa
lengur. Lágmarks fæða hefur sýnt
að hægt er að lengja líf dýra eins
og orma og jafnvel hunda með
þessum hætti, en lengri tíma tekur
að rannsaka apa og menn.
Öll fita minnkar jafnt
Kynning á miðvikudaginn
31. jan. í versluninni Yggdrasil,
Skólavörðustíg 16 frá kl. 13-18
F
í
t
o
n
/
S
Í
A