Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 38

Fréttablaðið - 30.01.2007, Page 38
 { Börn og foreldrar } 6 Flestir hafa eflaust orðið varir við athyglisverða auglýsingu í sjón- varpinu þar sem ungur strákur kallar vin sinn fávita á netinu og hefur það í för með sér ýmsar miður skemmtilegar afleiðingar. Sjöfn Þórðar, annar af verkefnastjórum SAFT, útskýrir tilgang auglýsinga- herferðarinnar og verkefninu sem hún tengist. „SAFT er vakningarátak á vegum Heimilis og skóla um örugga notk- un íslenskra barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum og stendur skammstöfunin fyrir „sam- félag, fjölskylda og tækni“. Mark- mið auglýsingaátaksins er að hvetja til heilbrigðari samskipta á netinu og vekja fólk til umhugsunar um nauðsyn þess að nota sömu við- mið í samskiptum okkar hvort sem er í hinum áþreifanlega veruleika eða í netheimum,“ segir Sjöfn og bætir við að AUGA, góðgerðarsjóð- ur auglýsenda, auglýsingastofa og fjölmiðla, taki að þessu sinni hönd- um saman við SAFT. „Verkefnið SAFT er unnið innan aðgerðaáætlunar Evrópusambands- ins um aukið öryggi á netinu og er markmiðið að stuðla að öruggri og ábyrgri notkun á netinu og efla vit- und um hvernig hægt er að njóta netsins og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræð- andi hátt. Netið er góður upplýs- inga- og samskiptamiðill með óend- anlega möguleika og mikilvægt er að nýta hann á jákvæðan hátt en ekki til að meiða eða særa aðra,“ segir Sjöfn og telur brýna þörf á vakningarátaki af þessu tagi og þá ekki síst í ljósi þess sem hefur verið að gerast síðastliðna daga. Markhópur átaksins er börn og unglingar, foreldrar og samfélagið allt. Segir Sjöfn mjög mikilvægt að stilla ekki ungu fólki upp sem söku- dólgum þar sem slæm netnotkun sé alls ekki bundin við þann hóp. „Foreldrar eru miðill í þeim skiln- ingi að þeir ræði hvað góð netsam- skipti eru við börn sín. Foreldrar eru fyrirmyndir barna sinna og það er brýnt að mínu mati að foreldrar setji sig inn í netheim barna sinna og skilji þetta völundarhús.“ segir Sjöfn sem hvetur foreldra eindregið til að kynna sér samskiptamöguleik- ana sem eru í boði á netinu, eins og t.d. msn og myspace. Aðferðin sem SAFT notar er að einfalda skilaboð með því að búa til fimm netorð sem ná yfir flest sem misferst í sam- skiptum á netinu. Þau eru: 1. Allt sem þú gerir á netinu endur- speglar hver þú ert. 2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig. 3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er. 4. Mundu að efni sem þú setur á netið er öllum opið, alltaf. 5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á netinu. Það stendur til að færa verkefn- ið út til skólanna á næstu dögum og gefur SAFT út kennsluefni sem sýnir börnum og unglingum hvernig beri að haga sér á net- inu. Nálgast má kennsluefnið sem og allar frekari upplýsingar um SAFT-átakið á heimasíðunni www. saft.is. Á döfinni er síðan merkileg ráðstefna 6. febrúar næstkomandi sem er Alþjóðlegi netöryggisdag- urinn. Ráðstefnan er öllum opin og verður haldin í húsnæði DeCode, Sturlugötu 8. Þar verður meðal annarra fyrirlesarinn Anne Kirah en hún er mann- og sálfræðingur að mennt, starfar sem yfirhönnuð- ur hjá Microsoft ásamt því að vera rektor alþjóðlegs háskóla í Kaup- mannahöfn. Hjá Microsoft hefur hún stjórnað alþjóðlegu rannsókn- arstarfi með það að markmiði að hafa áhrif á vöru- og þjónustuþró- un Microsoft með notkun og þarfir notandans í huga, og þar m.a. borið ábyrgð á þróun MSN. Nánari upplýsingar: www.heim- iliogskoli.is og www.saft.is. Örugg netnotkun barna SAFT - samfélag, fjölskyldan og tækni er vakningarátak um örugga notkun íslenskra barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum. Grímur Nói Einarsson er fjögurra ára nemi í leikskólanum Sólstöf- um. Ertu búinn að vera lengi í þessum leikskóla? Já. Finnst þér gaman í leikskólanum? Já, mér finnst gaman að leika mér með dýr. Áttu góða vini í leikskólanum? Já, Orra. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í leikskól- anum? Æfa mig í íþróttaskólanum. Hvað gerið þið í íþróttaskólan- um? Við gerum æfingar og klifrum upp á eitthvað. Það er svolítið erfitt. Áttu systkini? Já, ég á lítinn bróður. Ég á líka spólu. Bambaspólu. Ég á líka hundamynd og Gosamynd og tvær bambamyndir. Á margar teiknimyndir Uppeldi er vandaverk og alls ekki óal- gengt að foreldrum verði á mistök. Ein þeirra eru að missa stjórn á skapi sínu. Þegar fólk venur sig á að öskra á börnin sín endar það yfirleitt á því að þau öskra á móti. Ástæðan er sú að með því að öskra á barn sýnir foreldri að sú hegðun sé ásættanleg. Börn eru yfirleitt móttækilegri fyrir vinsamleg- um beiðnum og leiðbeiningum frá foreldrum sínum. Það er hægt að vera ákveðin(n) án þess að vera reið(ur). Uppeldismistök Alþjóðleg fræðsla og samskipti www.afs.is info-isl@afs.org 552 5450 Erum a› taka á móti umsóknum um skiptinemadvöl. Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl, 3 mána›a dvöl og 4–6 vikna dvöl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.