Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2007, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 30.01.2007, Qupperneq 62
Mun ekki spila með Akureyri í vetur Spænsku dómararnir Breto og Huelva eru ekki sérstaklega vinsælir á Íslandi eftir dómgæslu þeirra í leik Íslands og Póllands þar sem hallaði nokkuð mikið á strákana okkar. Þeir félagar eru komnir til Hamborgar og annar þeirra gekk að Alfreð Gíslasyni í gær og viðurkenndi að þeir hefðu gert tvö mistök undir lok leiksins. Svo bað hann Alfreð afsökunar. „Mér fannst það sýna mikinn karakter hjá þeim félögum,“ sagði Alfreð en hver veit nema þeir dæmi leik Íslands í dag. Viðurkenndu mistök Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hornamanninn Einar Örn Jónsson í íslenska hópinn en hann hefur engan þátt tekið í mótinu til þessa. Ragnar Óskarsson hefur þar með lokið þátttöku sinni en hann yfirgaf hópinn fyrir nokkru til að vera hjá konu sinni sem á von á barni. Hún hefur enn ekki fætt frumburð þeirra hjóna. Einar inn og Ragnar út Íslenska landsliðið tók létta æfingu í Colour Line höllinni í gærkvöldi eftir fjögurra tíma akstur frá Halle. Alfreð Gíslason var rólegur að sjá og hann gerir ráð fyrir jöfnum leik í kvöld. „Þetta verður hörkuleikur og vonandi skemmtilegur. Ég tel þessi lið mjög áþekk að getu og Danirnir hafa hugsanlega aðeins meiri breidd en ég get samt ekki séð á mínum mönnum að þeir séu eitthvað þreyttir. Boldsen hjá Dönunum hefur verið að spila frá- bærlega á þessu móti og ég þykist nú vita að hann sé í lélegra formi en margir af okkar leikmönnum. Ég held að úrslit leiksins muni ráðast á stemningu, dagsforminu og síðan vörn og markvörslu,“ sagði Alfreð en Roland Eradze verður tæplega með íslenska landsliðinu en hann er með mikil útbrot á líkamanum sem eru afleiðing ofnæmis sem ekki hefur enn verið greint. „Við verðum að standa vörnina gríðarlega vel og ef við gerum það þá er ég sannfærður um að við munum vinna þennan leik,“ sagði Alfreð sem hefur litlar áhyggjur af meiðslunum í hópnum. „Ég hef ekkert miklar áhyggj- ur af stöðu mála. Það eru smáatriði hjá mörgum en helsta áhyggjuefn- ið á þessari stundu er Róbert en ég taldi rétt að láta mynda hann svo við værum vissir með stöðuna á honum,“ sagði Alfreð. „Breiddin er að aukast hjá okkur og það er jákvætt og hjálp- ar okkur í þessum leik gegn Dönum. Ég er bjartsýnn og er viss um að úrslit ráðist á smáatrið- um.“ Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari á von á mjög jöfnum og spennandi leik gegn Dönum í kvöld er liðin mætast í Hamborg í átta liða úrslitum á HM. Línumaðurinn Róbert Gunnarsson er ekki kjálkabrot- inn eins og óttast var í gær og mun því spila í leiknum mikil- væga gegn Dönum í kvöld. Róbert fékk þungt högg í and- litið í leiknum gegn Þjóðverjum. Róbert hefur áður kjálkabrotnað og því var óttast að hið sama hefði gerst gegn Þjóðverjum. Róbert fór í röntgenmyndatöku um leið og íslenska liðið kom til Hamborgar í gær og myndatakan leiddi í ljós að það er í fínu lagi með kappann. Hann er nokkuð marinn og á erfitt með að borða en mætir engu að síður af fullum krafti í leikinn í kvöld. Smávegis veikindi hafa herjað á íslenska hópinn og Ásgeir Örn Hallgrímsson gat ekki æft með liðinu í gær vegna veikinda. Hann ætti engu að síður að vera klár í kvöld. Róbert er ekki kjálkabrotinn Stuðningsmenn West Ham fengu slæmar fréttir í gær. Í ljós kom að þeir Dean Ashton og Lucas Neill verða frá næstu vikurnar vegna meiðsla. Neill er nýkominn til West Ham og meiddist í sínum fyrsta leik gegn Watford um helgina. Hann mun hið minnsta missa af næstu þremur leikjum liðsins. Ashton hefur verið frá í fimm mánuði vegna ökklabrots en meiddist nýverið aftur á ökkla. Hann verður því enn lengur frá. Meiðsli hrjá West Ham Keflavík kvaddi í gær hina bandarísku TaKeshu Watson með 104-80 sigri á liði Hamars í undanúrslitum Lýsingarbikar- keppni kvenna. Leikmenn Hamars, sem eru nýliðar í Iceland Express deild kvenna, komust þó vel frá leiknum. Þær héldu í við Keflvík- inga allan leikinn en fyrr í vetur hefur viðureignum liðanna lokið með stórsigri Keflavíkur. Watson, sem er meidd, var stigahæst Keflvíkinga með 25 stig en hún spilaði einungis í 23 mínútur. Bryndís Guðmundsdótt- ir skoraði 18 stig. Hjá Hamar var Latreece Bagley 22 stig og 19 fráköst og hin 16 ára Hafrún Halfdánardótt- ir skoraði 16 stig. Keflavík í úrslit Alex McLeish var í gær kynntur sem nýr þjálfari skoska landsliðsins. Hann var þar til í haust stjóri Glasgow Rangers en var rekinn úr því starfi. Eftir- maður hans þar var Walter Smith sem hætti sem landsliðsþjálfari Skota til að taka við Rangers. Skotland hefur náð frábærum árangri í undankeppni EM 2008 undir Smith og trónir á toppi B- riðils eftir frækinn sigur á Frökkum. Heimsmeistarar Ítala eru í þriðja sæti riðilsins. McLeish tekur við Skotlandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.