Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 1
63%
40%
31%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Föstudagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
70
Smáauglýsi
Þóra Karitas Árnadóttir fær góða dómafyrir leik sinn í Svörtum ketti. Hún slærlíka í gegn hjá samleikurum sínum þeg-ar hún býður upp á gulrótarköku.„Sambýlismennirnir slógu upp lambakjöts-
veislu þegar ég kom að sunnan um síðustu
helgi. Því er komið að mér að launa þeim
dekrið og skella í köku handa kö lvitað b ð
Spurð út í Svartan kött segir Þóra það ögr-
andi verk með sótsvörtum húmor. „Það virð-
ist höfða vel til kvikmyndakynslóðarinnar
enda byssu- og spennuleikrit sem sækir efni-
viðinn í IRA-samtökin. Ég leik hugrakka og herskáa stelpu sem
vill berjast fyrir frelsun Írlands en af því að
hún er stelpa vilja stráka ihenni i NI TÓNABÆJAR
Rasskinnin í mörgum
myndaalbúmum
Nýjan golfvöll
þyrfti á hverju ári
hola í höggiFÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007
LM
Til SvíþjóðarKylfingurinn Heiðar Davíð Bragason flytur til Svíðþjóðar með vorinu
BLS. 6
„Okkur hefur verið hótað og fólk segist
vilja koma og rústa okkur, meiða okkur,“ segir
Birna Mjöll Atladóttir sem rekur gistiheimili og
ferðaþjónustu á Breiðavík ásamt eiginmanni sínum,
Keran Stueland Ólason. „Aðrir hafa sakað okkur
um að þetta sé bara einhver auglýsingabrella til að
kynna staðinn,“ segir hún. „Hingað hafa hringt
ættingjar og vinir og allir fjölmiðlar landsins vilja
koma og tala við okkur,“ bætir Birna við. „Við
höfum bara setið hvort í sínu herberginu til að anna
öllum þeim fyrirspurnum sem okkur hafa borist.“
Birna og Keran eru alin upp í nágrenni Breiða-
víkur, Birna á Patreksfirði en Keran á býli skammt
frá. Þau segjast aldrei hafa orðið vör við umræðu
um illa meðferð á drengjum og þykir líklegast að
málið hafi hreinlega verið þaggað niður í sveitinni.
Í samtali við Fréttablaðið segir Birna að fjöldi
þeirra sem vistaðir voru á heimilinu hafi komið á
gistiheimilið síðan það var opnað árið 1999. Þar
hafi þeir deilt reynslu sinni með þeim Birnu og
Keran.
„Ég hef átt margar mjög tilfinningaríkar stundir
með þeim hérna, þeir hafa grátið.“
Birna leggur áherslu á að atburðirnir í Breiðavík
falli ekki í gleymsku. „Við megum aldrei gleyma
um hvað málið snýst. Þetta er ekki stríð á milli
fréttamiðla heldur mannlegur harmleikur sem
aldrei má gleymast.“
Geir Þorsteinsson
hlýtur yfirburðakosningu í
formannskjöri KSÍ á ársþingi
sambandsins samkvæmt skoðana-
könnun Fréttablaðsins.
Haft var samband við 112 af 116
þingfulltrúum ársþingsins og var
svarhlutfall því 96,6 prósent. Af
þeim sem tóku afstöðu sögðust 81,5
prósent ætla að kjósa Geir sem
næsta formann KSÍ. Mótframbjóð-
endur hans, Jafet Ólafsson og Halla
Gunnarsdóttir, eiga því á brattann
að sækja. Jafet nýtur 13,8 prósenta
fylgis og Halla 4,6 prósenta fylgis.
Af þeim sem tóku þátt í
könnuninni vildu 23,5 prósent ekki
svara og 19,5 prósent voru ekki
búin að gera upp hug sinn.
Geir með yfir-
burðastöðu
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
Fagleg
og lögleg
þjónusta í boði
Fagfólk í Félagi íslenskra
snyrtifræðinga er að finna
um land allt. Sjá nánar
á Meistarinn.is.
Gengishagnaður Exista af
fimmtán prósenta hlut í finnsku
fjármálasamsteypunni Sampo,
stærsta vátryggingafélagi Norður-
landa og í Eystrasaltsríkjunum,
nemur níu milljörðum króna, miðað
við gengi Sampo í gær.
Exista er þar með stærsti hlut-
hafinn í Sampo. Sampo-bréfin eru
metin á 170 milljarða króna. Þetta
eru stærstu fyrirtækjakaup
íslensks félags frá upphafi.
Fjármálamaðurinn Robert
Tchenguiz fer fyrir félagi sem
seldi 9,5 prósenta hlut en auk
þess átti Exista bréf fyrir og
keypti til viðbótar. Tchenguiz
fær að hluta greitt í hlutabréfum
og tekur sæti í stjórn Exista.
„Við sjáum þessa eign sem lang-
tímaeign. Sampo er fyrirtæki sem
er alveg eins og Exista, það selur
tryggingar og fjárfestir,“ segir
Lýður Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Exista. Iðgjöld Sampo í
gegnum tryggingarekstur nema
360 milljörðum króna á ári. Þá
nema eignir í fjárfestingu tæpum
1.800 milljörðum króna.
Lýður bendir á að Sampo hafi
nýlega selt bankastarfsemi sína og
sitji á digrum sjóðum. „Við höldum
að það sé hægt að nota þetta reiðu-
fé til góðra verka í fjármálageiran-
um á Norðurlöndunum.“ Lýður
hefur rætt við Björn Wahlroos, for-
stjórann og einn stærsta hluthaf-
ann, og ætlar að hitta hann til skrafs
og ráðagerða.
Exista hefur sótt um leyfi til að
gera reikninga félagsins upp í
evrum með það í huga að draga úr
gengisáhrifum. Þá verður sótt um
heimild til hluthafafundar að færa
hlutaféð í evrur þótt ekki hafi verið
tekin ákvörðun um að nýta þá heim-
ild.
„Reikningar okkar breytast
mikið við kaupin á Sampo. Við vilj-
um hafa alla möguleika opna í því
að breyta hlutafénu okkar og upp-
gjörsmyntinni í evrur ef okkur
býður við svo að horfa,“ segir
Lýður.
Hafa þegar hagnast
um níu milljarða
Exista keypti 15 prósenta hlut í stærsta tryggingafélagi Norðurlanda, Sampo, fyr-
ir 170 milljarða króna. Þetta eru stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar.
Maður beit hund
á Nýja-Sjálandi í gær, og fékk
hundsbit að launum. Lögreglu-
hundurinn Edge hafði króað af tvo
menn grunaða um að hafa framið
rán í matvörubúð þegar annar
þeirra stökk á hundinn og beit
hann.
Edge lét þetta ekki á sig fá og
sýndi manninum hvernig á að bíta
almennilega. Þegar lögreglumenn
færðu manninn í handjárn var
hann með tvö djúp bitsár eftir
hundinn.
Í júní 2006 var Edge stunginn
með hníf og gekkst undir aðgerð,
en náði sér að fullu.
Beit hund og var
sjálfur bitinn