Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 24
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Seðlabankinn víkur sér ekki undan
því að hækka stýrivexti enn frekar
versni verðbólguhorfur, að sögn
Davíðs Oddssonar seðlabanka-
stjóra. Bankastjórnin kynnti í gær
ákvörðun sína um að stýrivextir
skuli vera óbreyttir í 14,25 pró-
sentum enn um sinn.
„Verðbólga hefur hjaðnað og
verðbólguhorfur til skamms tíma
batnað og eru nú betri en gert var
ráð fyrir í síðustu spá bankans.
Verðbólga er þó enn sem fyrr langt
yfir verðbólgumarkmiði bankans,“
segir Davíð og telur núverandi
vexti kunna að duga til þess að
verðbólgumarkmiði verði náð á
ásættanlegum tíma.
Davíð segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um hversu hratt stýri-
vextir verði lækkaðir þegar efna-
hagslegar forsendur heimili slíkar
aðgerðir. „Bankinn hefur ekki
tekið neina ákvörðun um að vaxta-
lækkunarferill sé hafinn heldur
horfir til þess að enn er víða undir-
liggjandi þrýstingur og ójafnvægi
í þjóðarbúskapnum,“ segir hann.
Helst er horft til þess að gríðarleg-
ur viðskiptahalli feli í sér að stöð-
ugleiki krónunnar sé háður vilja
alþjóðlegra fjárfesta og lánar-
drottna til að fjármagna hann.
„Reynslan sýnir að jafnvel hófleg-
ar breytingar á alþjóðlegum fjár-
málaskilyrðum geta valdið veru-
legum sveiflum á gengi gjaldmiðla.
Leiddu slíkar breytingar til lækk-
unar á gengi krónunnar myndu
verðbólguhorfur versna á ný.“
Þá telur Davíð ekki hægt að
leggja mál upp með þeim hætti að
bankinn óttist að fara inn í næstu
uppsveiflu með hátt stýrivaxta-
stig. „Bankinn vill auðvitað gjarn-
an hafa náð markmiðum sínum
þegar og ef til nýrrar uppsveiflu
kemur,“ segir hann, en bendir á að
fyrst og fremst sé bankinn að fást
við horfurnar eins og þær blasi við
nú. Þannig er til dæmis ekki tekið
tillit til stækkunar álversins í
Straumsvík, enda eiga Hafnfirð-
ingar enn eftir að kjósa um hana.
„Það gæti hins vegar verið hag-
fellt fyrir efnahagslífið okkar að
næsta uppsveifla kæmi á hófleg-
um hraða,“ segir Davíð.
Seðlabankinn birtir næstu
ákvörðun um stýrivexti 29. mars,
samhliða birtingu þjóðhags- og
verðbólguspár í Peningamálum,
efnahagsriti bankans.
Versni horfur hækka vextir
aðalfundur össurar hf.
á dagskrá fundarins verða:
Reykjavík 9. febrúar 2007
Stjórn Össurar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar til að auka hlutafé félagsins um allt að 200.000.000 hluti, án
forgangsréttar hlutahafa.
3. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins.
4. Tillaga að starfskjarastefnu skv. 79.gr.a. hlutafélagalaga.
5. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, mun vera
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir aðalfund. Reikningar og
önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem er www.ossur.com.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 8:15. Hluthafar
eru hvattir til að mæta tímanlega til að taka við fundargögnum. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30.
Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn á Grand Hótel við Sigtún, Reykjavík,
föstudaginn 23. febrúar 2007 og hefst hann kl. 8:30.
Vi› hjálpum fólki a› njóta sín til fulls
Exista hagnaðist um 37,4 milljarða
króna á síðasta ári og dróst hagnað-
ur félagsins saman um rúman fjórð-
ung milli ára. Á síðasta ársfjórðungi
skilaði félagið 13,1 milljarði króna í
hagnað sem var meira en tvöfalt
betri niðurstaða en greiningardeild-
ir Glitnis og Landsbankans höfðu
reiknað með.
Fjárfestingastarfsemi Exista
skilaði 23,5 milljörðum króna í hagn-
að á árinu en rekstrarstarfsemin
13,9 milljörðum. Arðsemi eigin fjár
var rúm 27 prósent á síðasta ári.
Síðasta ár var viðburðaríkt en
félagið var skráð á markað og óx
gríðarlega með kaupum á VÍS eign-
arhaldsfélagi.
Í árslok voru eignir félagsins 416
milljarðar króna og höfðu vaxið um
157 prósent á árinu. Eignarhlutur
félagsins í Kaupþingi, Bakkavör og
Flögu stóð í 195,4 milljörðum í árs-
lok. Eigið fé var 179 milljarðar sem
var 87 prósenta aukning. Eiginfjár-
hlutfall var því um 43 prósent í lok
árs.
Exista hefur óskað eftir leyfi til
ársreikningaskrár að gera reikn-
inga félagsins upp í evrum. Þá ætlar
stjórn félagsins að óska eftir heim-
ild til aðalfundar að sækja um skrán-
ingu á hlutabréfum félagsins í
evrum. Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um nýtingu heimildar verði
hún veitt.
Að sögn stjórnenda Exista er
útlitið bjart fyrir þetta ár. Félagið
hefur ákveðið að bakfæra skatt-
skuldbindingu upp á tæpa 4,5 millj-
arða króna og tekjufæra hana á
fyrsta ársfjórðungi.
Langt umfram spár
Exista leysir upp 4,5 milljarða skattaskuldbindingu
og tekjufærir hana.
Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista
er orðið stærsti hluthafinn í Sampo
Group, stærsta fjármálafyrirtæki
Finnlands og stærsta tryggingafé-
lagi Norðurlanda. Virði 15,48 pró-
senta hlutar er metið á tæpa 170
milljarða króna (1,9 milljarðar
evra). Þetta eru stærstu kaup
Íslendinga á erlendum vettvangi.
Fyrir kaupin átti finnska ríkið
stærstan hlut í Sampo, alls 13,6 pró-
sent.
Ætla má að gengishagnaður
Existu sé þegar orðinn um níu millj-
arðar króna, miðað við lokagengi
Sampo í Kauphöllinni í Helsinki í
gær. Exista hækkaði um 6,3 prósent
í viðskiptum gærdagsins og jókst
markaðsvirði félagsins um 17,3
milljarða króna.
Aö sögn Lýðs Guðmundssonar,
stjórnarformanns félagsins, hefur
engin ákvörðun verið tekin um frek-
ari kaup í Sampo.
„Við sjáum þessa eign sem lang-
tímaeign. Sampo er fyrirtæki sem
er alveg eins og Exista, það selur
tryggingar og fjárfestir.“ Sampo
Group er með 360 milljarða króna í
árleg iðgjöld af vátrygginga- og líf-
tryggingastarfsemi. Sampo stendur
annars vegar af IF, stærsta vátrygg-
ingafélagi á Norðurlöndum og í
Eystrasaltsríkjunum, og Sampo Life
sem starfar á sviði líftrygginga og
lífeyrissparnaðar. Þá á félagið 1.800
milljarða króna í fjárfestingaeign-
um.
Exista keypti 9,5 prósent af Exa-
fin BV, dótturfélagi í óbeinni eigu
Tchenguiz Family Trust. Fer bresk/
íranski kaupsýslumaðurinn Robert
Tchenguiz fyrir félögunum en hann
hefur verið í miklum viðskiptum við
Kaupþing á síðustu misserum.
Exista fjármagnar kaupin með
lánsfé, reiðufé, eigin hlutabréfum
og útgáfu nýs hlutafjár. Tchenguiz
Family Trust eignast þannig tæp-
lega fimm prósenta hlut í Existu
gangi kaupin eftir, sem eru háð
blessun fjármálayfirvalda í Finn-
landi og á Íslandi. Robert Tchenguiz
tekur sæti í stjórn Existu í vor.
Lýður Guðmundsson stjórnarfor-
maður fagnar aðkomu Tchenguiz að
félaginu, enda sé þarna um reyndan
fjármálamann að ræða. „Mikil og
verðmæt þekking færist inn í stjórn
félagsins,“ segir Lýður.
Fyrir kaupin áttu dótturfélög
Existu 4,3 prósent í Sampo og þá
keypti félagið 1,6 prósent til viðbót-
ar.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
verður um fjörutíu prósent eftir
kaupin en við árslok nam eiginfjár-
hlutfall 46 prósentum. Samkvæmt
hemildum Fréttablaðsins hefur
Exista verið að hlaða byssurnar að
undanförnu með lántökum og öflun
nýrra lánalína.
Exista fjárfestir í Sampo, stærsta tryggingafélagi
Norðurlanda, fyrir 170 milljarða króna. Þetta eru
stærstu kaup íslenskra fyrirtækja erlendis. Robert
Tchenguiz tekur sæti í stjórn Existu í vor.