Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 10
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Sextán ára maður hefur
verið dæmdur í fjögurra ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir að hafa
reynt að drepa mann í nóvember
síðastliðinum. Hann stakk mann í
bakið með hnífi á bílastæði við
Skautahöllina í Laugardal í
Reykjavík. Héraðsdómur Reykja-
víkur kvað upp dóminn í gær.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
maðurinn hefði farið inn á spjalls-
íðu á internetinu til að kynnast
einhverjum til að drepa. Hann
sagði að hann hefði langað til að
vita hvernig það væri að stinga
mann og drepa og fórnarlambið
hefði verið sá fyrsti sem hann
kynntist á netinu.
Maðurinn hitti fórnarlambið
þrisvar sinnum. Í þriðja skiptið
sem þeir hittust fóru þeir á rúnt-
inn á bíl fórnarlambsins og stopp-
uðu við Skautahöllina í Laugar-
dalnum þar sem árásarmaðurinn
fór út að reykja á meðan maðurinn
kastaði af sér vatni. Árásarmaður-
inn læddist aftan að fórnarlamb-
inu þar sem hann stóð og pissaði,
stakk hann í bakið með hnífi og
hljóp í burtu.
Maðurinn hélt fyrst að árásar-
maðurinn hefði kýlt sig og fór
aftur inn í bifreiðina. Þá fann hann
fyrir sárinu á bakinu á sér. Hann
hringdi í vin sinn sem fór með
honum á slysadeild. Læknir á
slysadeildinni taldi að áverkarnir
á baki mannsins væru lífshættu-
legir og að hann hefði sloppið ótrú-
lega vel.
Við rannsókn hjá sérfræðingi
kom fram að árásarmaðurinn
hefði ekki sýnt nein merki iðrunar
því sökum greindarskorts væri
hann ófær um að skilja hvað fælist
í því. Þegar hann gekkst undir
greindarpróf kom í ljós að greind
hans er 73 stig sem er á jaðri þess
að vera fötlun vegna greindar-
skerðingar. Maðurinn gat ekki
staðfest að hann myndi ekki reyna
að drepa aftur. Mati sérfræðings-
ins er að hugsun árásarmannsins
sé eins og hjá litlu barni en að
hann sé ekki geðveikur. Sérfræð-
ingurinn taldi að taka ætti tillit til
vanþroska mannsins þegar dómur
yrði kveðinn upp í málinu.
Við ákvörðun dómsins var litið
til þess hversu ungur maðurinn er
og vanþroskaður, að hann hefði
ekki áður hlotið dóm og að hann
hefði játað brot sitt og sagt hrein-
skilningslega frá atvikum. Hins
vegar þótti dómnum að manndráp-
stilraun hans hefði verið fólsku-
leg. Auk fjögurra ára fangelsis-
dómsins var manninum gert að
greiða fórnarlambinu 600 þúsund
krónur í skaðabætur sem og tæpar
2,4 milljónir í málskostnað.
Langaði að
drepa mann
Sextán ára maður dæmdur í fjögurra ára fangelsi
fyrir manndrápstilraun. Stakk mann í bakið. Sá
dæmdi er á jaðri þess að vera andlega fatlaður.
Norður-Kórea féllst í gær á að taka fyrstu
skrefin í áttina að því að hætta allri kjarnorkuvinnslu,
náist um það samkomulag á fundum ríkjanna sex
sem hófust á ný í Kína í gær eftir langt hlé.
Öll áhersla er lögð á að ná samkomulagi um þessi
fyrstu skref á fundunum, en Kim Kye Gwan, fulltrúi
Norður-Kóreu, sagðist þó hvorki vera bjartsýnn né
svartsýnn vegna þess að enn eigi eftir að leysa mörg
deiluatriði. Niðurstaða viðræðnanna fari mjög eftir
því hver afstaða Bandaríkjanna verði.
„Fyrsti dagur viðræðnanna var góður,“ sagði hins
vegar Christopher Hill, fulltrúi Bandaríkjamanna á
fundunum. „Við vonumst til þess að geta sent frá
okkur einhvers konar sameiginlega yfirlýsingu
hérna.“
Hann sagði viðræðurnar hafa gengið betur en síð-
ast, en tók þó fram að fyrsta skrefið í ferðalagi væri
oft erfiðasta skrefið.
Þátttakendur í viðræðunum eru fulltrúar frá Norð-
ur- og Suður-Kóreu, Japan, Kína, Rússlandi og Banda-
ríkjunum. Viðræður sex-ríkjahópsins hafa staðið yfir
með hléum frá árinu 2003 en borið lítinn árangur.
Markmið þeirra er að fá Norður-Kóreumenn til þess
að hætta við kjarnorkuvinnslu nema undir alþjóðlegu
eftirliti.
Skylda á
ríkisfjölmiðla til að
fjalla um prófkjör
stjórnmálaflokka, segir
Kristrún Heimisdóttir,
lögmaður og varaþing-
maður Samfylkingar.
Kristrún reifaði
þessa hugmynd á
umræðufundi í Háskóla
Íslands á miðvikudag,
þar sem rædd voru lög
um fjármál stjórnmála-
flokka.
Þetta væri ein
möguleg leið til að
takmarka áhrif
auglýsinga og greiða
leið nýliða til áhrifa,
segir Kristrún, en
henni finnst þetta
umhugsunarvert í ljósi
þess að í prófkjörum
eigi almenningur mest
tækifæri til beinna
áhrifa á stjórnmál.
Fjölmiðlar fjalli um prófkjör
Icelandair vann
alþjóðlegu Technology For
Marketing (TFM) verðlaunin fyrir
best hannaða vefsvæði ársins.
Verðlaunin voru afhent við athöfn í
London á þriðjudagskvöld. TFM er
stærsta og virtasta alþjóðasýningin
í Bretlandi á sviði markaðs-, sölu-
og auglýsingatækni og hefur frá
upphafi verið leiðandi á sínu sviði.
„Vefurinn gegnir lykilhlutverki í
öllu sölu- og markaðsstarfi Ice-
landair. Þessi verðlaun staðfesta að
endurnýjaður vefur okkar og öflug
markaðsetning á netinu hefur vakið
verðskuldaða athygli,“ segir Gunn-
ar Már Sigurfinnsson framkvæmda-
stjóri.
Icelandair með
besta vefinn