Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 38
BLS. 4 | sirkus | 9. FEBRÚAR 2007
1. Jóhannes Jónsson Gömul
kynni gleymast ei.
2. Ágústa Johnson Af hverju er
hún alltaf svona mjó?
3. Arnþrúður Karlsdóttir Það
þýðir ekki að bjóða upp á lyga-Sögu.
4. Sigríður
Dögg Auðuns-
dóttir Hinn kvenlegi
„kölski“ er varla
aufúsugestur.
5. Trausti Valdimarsson Vill
varla vera með í stólpípuleiknum.
SEM ER ÖRUGGLEGA EKKI
BOÐIÐ Í FIMMTUGSAFMÆLI
JÓNÍNU BEN Í LOK MARS
B árður Hreinn Tryggvason, annar eigenda fasteignasöl-unnar Valhallar, hefur fest
kaup á 422 fermetra glæsivillu
Steinunnar Jónsdóttur í Blikanesi 9
fyrir 130 milljónir króna. Bárður
Hreinn og eiginkona hans búa nú í
rúmlega 200 fermetra einbýlishúsi í
Skógarhæð í Garðabænum.
Steinunn er dóttir athafnamanns-
ins Jóns Helga Guðmundssonar, sem
oft er kenndur við Byko, en hún
keypti þetta hús með
fyrrverandi eigin-
manni sínum,
Hannesi Smárasyni,
forstjóra og
aðaleiganda FL
Group, árið 1999.
Saman gerðu þau
upp húsið af
fáheyrðum fagurleik.
Eftir skilnað þeirra árið 2004 flutti
Hannes út og Steinunn bjó áfram í
húsinu ásamt tveimur börnum
þeirra. Hún hóf síðan sambúð með
Finni Reyr Stefánssyni, forstöðu-
manni rekstrarsviðs hjá Glitni, og
eignaðist son með honum í október á
síðasta ári. Steinunn er ekki ókunnug
Glitni en hún sat í stjórn bankans um
nokkurra mánaða skeið árið 2004
þegar hún átti hlutabréf í honum að
verðmæti nokkurra milljarða.
Seint á síðasta ári fóru Steinunn og
Finnur Reyr á stúfana og keyptu
nýbyggt 325 fermetra einbýlishús í
Brekkuási 11 af samstarfsmanni
Finns hjá Glitni, lögfræðingnum
Einari Páli Tamimi. Það hús komst í
fréttirnar þegar Einar Páll byggði það
vegna þess hversu hátt nýtingarhlut-
fall lóðarinnar var og grjóthnullung-
ar úr byggingunni féllu niður í garð
nágranna hans í götunni fyrir neðan
við litlar undirtektir íbúa. Það virðist
þó ekki hafa komið í veg fyrir að
Steinunn og Finnur Reyr keyptu
húsið.
Einar Páll fór ekki langt því hann
fékk rúmlega 200 fermetra parhús
Finns Reyrs í Lerkiási í staðinn
fyrir Brekkuásinn enda óþarfi
fyrir Steinunni og Finn að halda
tvö heimili.
Það er því óhætt að segja að þótt
fasteignamarkaðurinn sé víða
rólegur þá er hann fjörugur í
Garðabænum þar sem
glæsivillur ganga kaupum,
sölum og skiptum.
UMDEILT HÚS Það er óhætt að segja að
nýtt heimili Steinunnar Jónsdóttur og
Finns Reyrs Stefánssonar í Brekkuási 11
hafi verið umdeilt. SIRKUSMYND/RÓSA
SKIPTI Einar Páll Tamimi fékk Lerkiás 12
í skiptum fyrir Brekkuásinn.
SIRKUSMYND/RÓSA
STEINUNN JÓNSDÓTTIR SELDI LÚXUSVILLU SÍNA Í BLIKANESI Á ARNARNESINU
FASTEIGNASALI KEYPTI
VILLU BYKO-ERFINGJA
Á 130 MILLJÓNIR
GOTT GENGI Á VALHÖLL
Bárður Tryggvason, annar
eigenda fasteignasölunnar
Valhallar, lét sig ekki
muna um að borga fúlgur
fjár fyrir Blikanes 9.
SELDI
DRAUMAHÚSIÐ
Steinunn
Jónsdóttir seldi
draumahús sitt í
Blikanesi.
FLUTTI ÚT Hannes
Smárason flutti út úr
Blikanesi 9 þegar leiðir
hans og Steinunnar
Jónsdóttur skildi
árið 2004.
FARINN ÚR BREKKUÁSNUM Einar Páll Tamimi seldi
húsið umdeilda í Brekkuásnum.
DÝRT ER DROTTINS HÚSIÐ Blikanes 9
kostaði 130 milljónir. SIRKUSMYND/RÓSA
www.bluelagoon.is
Líf