Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 74
Ég get
þetta, ég
get gert
þetta!
Aðeins meira
.... Örlítið til ...
Ég gat það!
Ég stend!
Flott hjá þér,
komdu nú til
mömmu.
Það er alveg
sama hvað!
Það er aldrei
neitt nógu
gott!
Svona Nú er ég búinn að
flokka allt bókhaldið
mitt, lista yfir tengiliði,
allar fjárfestingar og
upplýsingar um hvern á
að hringja í ef eitthvað
neyðartilvik verður.
Nú þarf ég
bara að taka
öryggisafrit af
því.
Pabbi þinn
getur sko
bjargað sér
Hmmm
Allt mitt líf kemst
fyrir á lítilli diskettu!
Eruð þið alveg
vissar að þið hafið
öll tilskylin leyfi?
Galdrar &
Kukl
Segðu mér .... Hvar
er Eiki gamli?
Farinn.
Farinn? En hann var
svo stór og sterkur?
Já ... Hann
var tekinn á
besta aldri.
Ég er
prinsessan
og þú ert
prinsinn!
Allt í lagi Allt í lagi
Hvað gerist
þegar ég næ
að bjarga þér?
Stóri drekinn vill borða
mig og mín eina von
er að þú náir að bjarga
mér.
Við kyssumst
og giftum
okkur ...
Dreki,
maaaatur!
Komdu
aftur!
Íslendingar hafa
alltaf verið
hræddir um
hvaða álit aðrar
þjóðir hafa á sér.
Kannanir
erlendra rann-
sakenda á því
hvaða lönd séu
best í hinu og
þessu vekja alltaf mikla athygli og
enda yfirleitt á forsíðum blaðanna.
„Íslendingar eru langlífastir“ eða
„Íslendingar njóta mestrar vel-
gengni í viðskiptalífinu“ eru orð
sem veita þjóðinni fróun við þjóð-
arrembingnum. Ekki má gleyma
þeirri staðreynd að Íslendingar
eru hamingjusamastir af öllum
þjóðum og hafa oftar en ekki kom-
ist nálægt því að vera meðal þeirra
bestu í hinum og þessum íþrótta-
greinum. Frægast er kannski
þegar við næstum því unnum
heimsmeistara Frakka og hefðum
orðið heimsmeistarar í handknatt-
leik ef Danir hefðu ekki grísast til
að vinna okkur.
Og Ísland er ansi merkilegt
land þótt ótrúlegt megi virðast.
Eyjan er á lista yfir sjö undur ver-
aldar og samkvæmt lista sem
Sameinuðu þjóðirnar gáfu út í
fyrra þykir næstbest í heiminum
að vera Íslendingur. Norðmenn
tróna í efsta sæti enda með vasana
fulla af olíupeningum.
Íslendingar eru reyndar fram-
arlega á öðrum sviðum. Smokka-
framleiðandinn Durex gerði til að
mynda könnun meðal hinna vest-
rænnu þjóða og þar kom fram að
Íslendingar standa sig mjög vel
hvað fjölda bólfélaga varðar, eru
ekkert sérlega mikið fyrir að nota
getnaðarvarnir og byrja að stunda
kynlíf ansi ungir. Íslendingar
drekka líka alveg rosalega mikið
af gosi, éta feitan mat og skulda
alveg hryllilega mikið. Í það
minnsta hinn almenni borgari.
Og þegar allar kannanir eru
skoðaðar og settar í samhengi lítur
út fyrir að hér búi lauslátir nautna-
seggir sem hafi lítið fjármálavit
en er alveg slétt sama. Þeir eru
nefnilega hamingjusamastir og
langlífastir af öllum jarðarbúum.
Eða því viljum við Íslendingar að
minnsta kosti trúa.