Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 58
BLS. 12 | sirkus | 9. FEBRÚAR 2007
Hollywood
Hanna
SVO ER HÚN BARA SÆT Þvílíkur léttir að
sjá Pamelu Anderson án farða. Meira af
þessu Pam!
Það sást ekki í
neina geirvörtu,
enda var Janet
Jackson fjarri góðu
gamni. En nokkur
tískuslys áttu sér
á stærsta
íþróttaviðburði
Bandaríkjanna sem haldinn
var að þessu sinni í Miami.
Hinn girnilegi leikari Taye
Diggs hefði átt að velja sér
eitthvað aðeins þægilegra til að
vera í á þessum stóra
viðburði. Drengurinn var
kappklæddur. Vissi hann ekki
að leikurinn var í Miami? Það
er heitt þar, mjög heitt.
Fyrrverandi skautadrottning-
in Oksana Baiul klæddist
þessum fáránlegu
korselett-buxum og
brjóstahaldara.
Madonna komst upp
með það á sviði á
sínum tíma, en
þetta eru ekkert
nema hamfarir af
mannavöldum.
Kid Rock tók sig vel út á
ströndinni í gallasmekk-
buxunum. Hann
vantar bara hrífu og þá er
dressið fullkomnað.
Nei, því miður. Þetta er eigin-
kona Nas. Söngkonan Kelis
er komin með aflitað, stutt
hár og minnir einna helst á
Rocky-leikkonuna Brigitte
Nielsen.
Gangi ykkur vel!
Aumingja gaurarnir að festa sig með
Kate Moss í bílnum. Stúlkan gerði það
sem allir myndu gera, kom út úr bílnum
og byjaði að ýta. Halda þessir gaurar
virkilega að Kate Moss geri eitthvað
gagn? Já, það væri gaman að fá að
fylgjast með þessari atburðarás til enda.
HOLLYWOOD-STJÖRNURNAR EKKI EINS FALLEGAR ÁN FARÐA
ENGINN GLAMÚR HÉRNA!
ÞRÚTIN OG ÞREYTT Courtney Love án
farða.
VIÐ ÞEKKJUM ÞESSA EKKI! Þetta er
ekki rokkeiginkonan Sharon Osbourne
sem við þekkjum svo vel.
ER ÞETTA HRYLLINGSMYND? Ahhh,
maður verður hræddur að horfa á þessa
mynd af Díönu Ross.
FRÁHRINDANDI Aðþrengda eiginkonan
Nicolette Sheridan fengi enga karla
svona.
ALLTAF SÆT Ekki svo slæm án farða.
Alicia Silverstone er alltaf sæt.
ENGIN DÍVA HÉR Á FERÐ Jennifer Lopez
skartar ekki sínu fegursta hér.
ÚPPS! Rosanne Arquette gleymdi að
fela alla húðblettina.
V á, talandi um flókið fjölskyldumynstur. Demi Moore og Bruce Willis voru
gift í 13 ár og eignuðust þrjú
börn saman. Nokkrum árum
seinna kynntist hún ungstirninu
Ashton Kutcher og þau giftu sig
fyrir tveimur árum. Ashton er
aðeins 10 árum eldri en elsta
dóttir Demi og Bruce og öll eru
þau svaka góðir vinir. Það er
mikil ást og umburðarlyndi í
þessari fjölskyldu. Þessi stóra
fjölskylda mætti öll á Superbowl-
keppnina í Miami og skemmti sér
stórfenglega. Ef Demi og Ashton
eignast barn saman, ætli Bruce
yrði guðfaðir?
Moore-Willis-Kutcher-fjölskyldan
E ins furðulegur og Michael Jackson er þá eru börnin hans
tvö afar eðlileg og bara mjög sæt. Það
sást til þeirra í verslunarmiðstöð þar
sem reynt var að vernda þau með því
að setja á þau
hárkollu.
Börnin þrjú
heita Prince
Michael I, Paris
Jackson og
Prince Michael
II, sem oftast er
kallaður
Blanket.
JACKO-WACKO BÖRNIN ALVEG EÐLILEG
SÆT SYSTKINI Prince Michael I og Paris að skoða sig um í verslanaklasa.
MEÐ HÁRKOLLU Blanket, eða Prince Michael II með hárkollu í klasanum.
KJÚT Prince Michael I er mjög sætur krakki, en
einnig var faðir hans það sem barn.
O furfyrirsætan Gisele Bündchen sagði fyrir nokkru að henni
fyndist NFL-leikmaðurinn Tom
Brady „alls ekki slæmur. Hann er
mjög sætur. Ekta amerískur strákur.
Það lýsir honum vel.“ Jæja, henni hlýt-
ur að hafa litist mjög vel á hann því
aðeins nokkrum
mánuðum eftir að
Tom Brady og
leikkonan Bridget
Moynahan hættu
saman eftir tveggja
ára samband var
hún komin á deit
með kappanum.
Skil ekki alveg af
hverju þau eru að
fela andlit sín fyrir
ljósmyndurum. Við
sjáum að þetta
eruð þið!
Hvað eru
þau að fela?
HAMINGJUSÖM Stundum eru Gisele
Bündchen og Tom Brady hamingjusöm
og skammast sín ekkert.
Leikkonan Bridget
Moynahan þarf að
horfa upp á
fyrrverandi
kærasta sinn í
örmum brasilísku
ofurfyrirsætunnar.
ÖÐRUVÍSI MÉR ÁÐUR BRÁ Það er
augljóst hvaðan sonur Michaels Jackson
hefur skringilegheitin.
GAMAN SAMAN Það má ljóst vera að það örlar ekki á afbrýðisemi hjá Bruce Willis.
Klúður á
Ofurskálinni!