Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 56
BLS. 10 | sirkus | 9. FEBRÚAR 2007
FYRSTI ÞÁTTUR ÍSLANDS Í DAG UNDIR RITSTJÓRN STEINGRÍMS SÆVARRS ÓLAFSSONAR VAR
SÝNDUR Í GÆR. KOLLEGI HANS ÞÓRHALLUR GUNNARSSON HEFUR RITSTÝRT KASTLJÓSI SJÓN-
VARPSINS VIÐ AFAR GÓÐAR UNDIRTEKTIR. SIRKUS DRÓ UPP NÆRMYND AF ÞESSUM TVEIMUR
MÖNNUM SEM BERJAST MUNU Á ÖLDUM LJÓSVAKANS Á NÆSTU MISSERUM.
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON
Þeir sem þekkja Þórhall
best segja að hann sé
gífurlega ákveðinn og
fylginn sér og að þeir gerist
ekki þrjóskari.
ÞETTA EIGA ÞEIR SAMEIGINLEGT:
Það er margt líkt með þeim Steingrími Sævari og Þórhalli
Gunnarssyni. Báðir eru þeir eldklárir og myndarlegir ungir
menn auk þess sem þeir eru báðir í sporðdrekamerkinu og
blóðheitir stuðningsmenn Liverpool. Vinir þeirra segja þá báða
hafsjó fróðleiks og að þeir séu vinir vina sinna. Það er ljóst að
Ísland í dag og Kastljósið hafa yfir tveimur af bestu fjölmiðla-
mönnum landsins að ráða og öruggt að samkeppnin milli
þáttanna verður hörð enda Þórhallur og Steingrímur
metnaðarfullir menn.
Þ órhallur Gunnarsson ólst upp í Kópavogi og gekk í Digranesskóla og Víghólaskóla.
Næst lá leið hans í íþróttadeild héraðsskól-
ans á Laugarvatni og þaðan í Fjölbrautaskól-
ann í Garðabæ. Eftir stutt stopp á atvinnu-
markaðinum eftir stúdentspróf ákvað
Þórhallur að skella sér í leiklistarnám en
Þórhallur starfaði hjá Leikfélagi Akureyrar og
var fastráðinn leikari við Borgarleikhúsið frá
1996-2000. Árið 1998 steig Þórhallur sín
fyrstu skref í útvarpi með vini sínum Fjalari
Sigurðarsyni í þættinum Glataðir snillingar á
Rás 2. Eftir þá frumraun lá leið hans ásamt
Súsönnu Svavarsdóttur í sjónvarpsþáttinn
Titring og þaðan í Innlit/Útlit ásamt Völu
Matt. Þórhallur starfaði sem leikari meðfram
fjölmiðlunum en þegar samningi hans við
Borgarleikhúsið lauk lagði hann land undir
fót og skellti sér til Bretlands á skólabekk.
Þegar hann kom heim aftur með masters-
gráðu í sjónvarpsfréttamennsku frá Gold-
smiths College-háskólanum í London hóf
Þórhallur störf í Íslandi í bítið á Stöð 2 og
þaðan lá leiðin yfir í Ísland í dag þangað til
honum bauðst að ritstýra dægurmálaþættin-
um Kastljósi.
Hrókur alls fagnaðar
Þeir sem þekkja Þórhall best segja að hann
sé gífurlega ákveðinn og fylginn sér og að
þeir gerist ekki þrjóskari. Allir sem blaðið
talaði við voru þó sammála um að félags-
skapur Þórhalls væri eftirsóknarverður enda
ávallt hrókur alls fagnaðar. Þórhallur hafi
verið vinamargur sem barn og unglingur og
tekist að halda sambandi við gömlu vinina í
gegnum árin. „Maður hefur hlegið mikið í
kringum Þórhall enda ótrúlegt hvað
hann getur geiflað sig og grett þannig
að hann verður óþekkjanlegur,“
segir Vilborg, systir Þórhalls, og
bætir við að leiðin sem
Þórhallur hafi valið sér í
lífinu hafi ekki komið henni
mikið á óvart. „Hann á
auðvelt með að heilla fólk
og er með góðan talanda.
Hann hefur hæfileika á
þessu sviði.“
Hamingjusamur með
Brynju
Áhugamál Þórhalls eru leiklist,
golf, lestur góðra bóka og matur. Hann
er giftur Brynju Nordquist flugfreyju og
saman mynda þau flott par sem lendir
oft á síðum glanstímaritanna enda með
glæsilegasta fólki landsins. Þau
Brynja eiga ekki barn
saman en Þórhallur á
eina dóttur frá fyrra
hjónabandi. Þeir
sem eru honum
næstir segja að
Þórhallur sé í
rauninni heimakær
fjölskyldumaður.
Svava Johansen,
kennd við
Sautján, er
góð vinkona
Þórhalls og
Brynju og
Svava ber
Þórhalli
góða söguna. „Það er alltaf gaman að vera í
kringum Þórhall. Hann er mjög opinn
karakter, skemmtilegur og vel inni í öllum
málum þótt hann sé oft svona dreyminn og
glottandi á svipinn sem gerir hann bara
sjarmerandi. Hann er vel gefinn, duglegur,
mikill húmoristi og hefur endalaust gaman af
samræðum sem er ein ástæða þess hvers
vegna hann blómstrar í starfi sínu,“ segir
Svava og bætir við að Þórhallur sé heppin
með konu. Sjálf er Brynja ánægð með sinn
mann. „Okkur hefur liðið afskaplega vel
saman þessi 13 ár sem við höfum búið
saman. Mér líður vel með honum og er
hamingjusöm kona,“ segir Brynja.
Getur virkað stífur
Reynir Traustason ritstjóri er vinur
Þórhalls og segir gott að vinna með honum.
Þórhallur sé afar ákveðinn en skemmtilegur.
„Hann er atvinnumaður sem vinnur
skipulega og nýtir tímann vel. Hann getur
samt virkað stífur en sem
betur fer er hægt að ná
til hans með rökum.
Þótt við höfum
starfað saman
vinnum við meira
hvor í sínu lagi og
oftar en ekki leita
ég ráða hjá
honum ef ég vil
heyra álit sem
ég tek mark á.“
indiana@
frettabladid.is
S teingrímur Sævarr Ólafsson, eða Denni eins og hann er jafnan kallaður, gekk í
Langholtsskóla og Verzlunarskóla Íslands
þar sem hann ritstýrði m.a. Verzlunarskóla-
blaðinu. Árið 1985 hóf hann störf sem
blaðamaður á Degi á Akureyri og ári seinna
réði hann sig á Tímann. Árið 1988 hóf hann
störf á fréttastofu Bylgjunnar en ári seinna
hélt hann til Noregs og gekk í Blaðamanna-
háskólann í Osló. Þegar heim var komið
starfaði Steingrímur á Stöð 2 til ársins 2000
en næstu ár þar á eftir einkenndust af
ráðgjöf í markaðs- og kynningarverkefnum
þar sem hann starfaði meðal annars sem
talsmaður nokkurra stærstu fyrirtækja
landsins og sem PR-maður áberandi
stjórnmálamanna og þar á meðal forsætis-
ráðherra.
Vinur vina sinna
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari er
einn besti vinur Steingríms. „Við vorum báðir
mjög áberandi í Verzló og líklega mun
vinsælli á meðal nemendanna en kennar-
anna enda vorum við
miklir gárungar.
Við
höfum
alltaf haft
svipuð
áhuga-
mál og
skoðanir
þótt við séum ekki á sama stað í pólitík,“ segir
Gunnar og bætir við að Steingrímur standi
sig vel í öllu sem hann taki sér fyrir hendur.
Annar góður vinur Steingríms er Þór
Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri. Þór og
Gunnar eru sammála um að betri vinur sé
ekki auðfundinn en að Denni sé alls ekki
allra. „Hann er vinur vina sinna og það er
virkilega hægt að treysa á hann,“ segir
Gunnar og Þór tekur undir þau orð og bætir
við að Steingrímur sé hress og kátur. „Hann
hefur gott skopskyn en á það til að taka
sjálfan sig heldur hátíðlega og hann er
snyrtipinni fram í fingurgóma,“ segir Þór.
Gunnar segir Steingrím ekki leiðast athygli
og telur að bloggfærslur hans hafi svalað
þeirri þörf á meðan hann var fjarri kastljósi
fjölmiðlanna. „Hann er hrókur alls fagnaðar
hvar sem hann kemur og þarf eins og ég
alltaf að trana sér fram.“ Þór segir Steingrím
afar drífandi einstakling. „Hann er hug-
myndaríkur og greiðvikinn og hörkudugleg-
ur í vinnu. Hann situr ekki á skoðunum
sínum og því veit maður hvar maður hefur
hann. Við höfum ekki alltaf verið sammála í
gegnum tíðina en við þolum það báðir.“
Fjölskyldumaður þrátt fyrir annríki
Steingrímur Sævarr er þrátt fyrir annríki
mikill fjölskyldumaður en hann og kona
hans, Kristjana Sif Bjarnadóttir, eiga þrjú
börn. Áhugamál hans, utan fjölskyldunnar,
eru lestur, stangaveiði, vinnan og
svo bloggið en Steingrímur hefur
látið gamminn geisa um menn og
málefni og hefur bloggsíða hans
verið ein sú vinsælasta í áraraðir.
Eftir nokkurra ára fjarveru úr
fjölmiðlum er Steingrímur Sævarr
kominn aftur í sviðljósið. Vinir
hans telja að hann eigi eftir að
standa sig vel enda eigi hann vel
heima í forgrunninum. „Ég held að
hann sé hárréttur maður í þetta.
Hann er góður stjórnandi og hefur metnað
fyrir þessu verkefni. Eins og menn hafa séð
á vefsíðu hans þá er hann vel tengdur og
Ísland í dag á án vafa eftir að njóta þess á
næstunni. Blaðamannastéttin má vera
ánægð með að hafa endurheimt
Denna í sínar raðir,“ segir Þór
Jónsson um vin sinn.
indiana@
frettabladid.is
STEINGRÍMUR SÆVARR
„Hann hefur gott
skopskyn en á það til
að taka sjálfan sig
heldur hátíðlega og
hann er snyrtipinni
fram í fingurgóma,“
segir einn félaga
Steingríms um hann.
EINVÍGIÐ HAFIÐ
nærmynd
sirkus