Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 76
! Kl. 21.00Tónlistarfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir tónleikum með söngkonunni Andreu Gylfadóttur og Tríói Kjartans Valdemarssonar í Hlégarði. Listafólkið mun flytja fjölbreytta dagskrá, djass, blús, þjóðlög og fleira. Miðar eru seldir við innganginn. Háskólinn á Bifröst hefur hafið útgáfu á nýju tímariti sem hlotið hefur heitið Tímarit um félagsvís- indi. Tímaritið verður vett- vangur fyrir fræðilegar greinar um ýmis svið félagsvísinda, svo sem við- skiptafræði, lögfræði, stjórn- málafræði, hag- fræði og önnur fræðasvið. Í Tímariti um félags- vísindi verða birtar greinar á íslensku og ensku. Greinarnar verða í fyrstu birtar á vef skólans, www.bifrost.is, en verða síðan prentaðar og gefnar út árlega. Ritstjóri Tímarits um félags- vísindi er dr. Grétar Þór Eyþórs- son, prófessor og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst. Nýtt tímarit Breski gagnrýnandinn Hilary French var hér á ferðinni í vetur og sá Skuggaleik eftir Sjón og Karólínu Eiríksdóttur og skrifar um sýninguna og verkið í nýtt hefti Opera. French er farin að verða nokk- uð kunnug aðstæðum í íslensk- um óperuheimi og er gríðarleg- ur styrkur að eiga aðgang að gangnrýnanda sem henni, svo mikils álits sem hún nýtur í enskumælandi heimi óperu- geirans. Ættu forráðamenn í íslensku óperulífi að nýta sér velvild hennar og skilning á íslensku óperulífi með skipu- lögðum hætti. Umsögn hennar um Skugga- leik er skýr: hún gerir glögga grein fyrir efni verksins og stíl tónskálds og umbúnaði öllum sem hún er ánægð með. Hún fer fögrum orðum um hlut söngvara og spáir verkinu góðu gengi á erlendri grund. Umsögn hennar er álitsauki fyrir verkið og sviðsetningu Messíönu Tóm- asdóttur og gæti dugað Skugga- leik til frekari frama á erlendri grund fáist efni til að hleypa heimdraganum. Skuggaleik hampað Sú bitra bólusótt Launþegum er ráðlagt að bóka sumarfríið snemma þetta árið því strax í vor verður þvílíkt hlaðborð af menningarviðburðum víða um land að fá þekkjast þessi dæmi. Dagskrá Listahátíðar 2007 var kynnt í gær og þar eru ófáar skrautfjaðrir en raunar mætti kenna komandi mánuði við eitt allsherjar „menningarbuffet“ því nú síðar í mánuðinum hefst Vetr- arhátíð í Reykjavík og franska menningarkynningin Pourqoui Pas? sem endast mun alveg fram að Listahátíð. Engum ætti því að leiðast agnarögn og um að gera að byrja að merkja í dagatalið. Listahátíð verður sett óvenju snemma þetta árið eða 10. maí og stendur til 26. maí en hátíðin verð- ur sú stærsta og dýrasta til þessa. Upphafsdagar hátíðarinnar marka lok franska vorsins með glæsileg- um götuatriðum hópsins Royal de Luxe, sem sýnir útiatriði af stærð- argráðu sem Íslendingar hafa vart kynnst áður. Reykvísk skólabörn munu einnig veita liðsinni sitt og fjölmenna í miðbæinn þennan dag svo þá verður án efa mikið um dýrðir – svo ekki sé minnst á bless- aðar kosningarnar og Eurovision- æðið sem mögulega verður runnið á landsmenn þessa helgi. Mark- mið aðstandenda Listahátíðar verður þó að toppa hvoru tveggja og af orðspori franska götuleik- hússins að dæma verður það næsta sjálfsagt mál. Margir óvenjulega stórir og glæsi- legir viðburðir einkenna hátíðina í ár þar sem sérstök áhersla verður lögð á sviðslistir. Meðal þess sem hæst ber á hátíðinni er heimsókn San Francisco ballettsins og söngvaranna heimsþekktu Bryn Terfel og Dmitri Hvorostovskí en miðasala á þá viðburði er farin af stað fyrir nokkru og fá sæti eftir. Aukinheldur frumflytja Sinfóníu- hljómsveit Íslands og einsöngvar- ar óperu Hafliða Hallgrímssonar „Die Wält der Zwischenfälle“ hér á landi en verkið var sýnt í Þýska- landi í fyrra. Síðan verður leikið víða um land, á götum úti, í heimahúsum, um borð í varðskipi og á sviði Þjóðleikhússins en þangað mætir enski leikflokkurinn Cheek by Jowl og frumflytur Cymbeline eftir Shakespeare. Þrjú ný íslensk leikverk verða einnig flutt á hátíð- inni auk þess sem boðið verður upp á sérstakar sýningar fyrir yngstu áhorfendurna. Af tónlistarviðburðum má nefna flutning kvartetts Kammersveitar Reykjavíkur á strengjakvartettum Jóns Leifs, tónleikadagskrá Áshild- ar Haraldsdóttur flautuleikara helgaða verkum Atla Heimis Sveinssonar í Þjóðleikhúsinu og tónleika Hljóðkompanísins og íslenskra og erlendra tónlistar- manna í Hallgrímskirkju. Þá má ekki gleyma tónleikaröð ungra tónlistarmanna í Ými, þeirra Tinnu Þorsteinsdóttur, Ara Vilhjálms- sonar, Elfu Rúnar Kristinsdóttur og fleiri. Þess má geta að Elfa Rún fékk í síðustu viku Íslensku tón- listarverðlaunin sem bjartasta von landsmanna á tónlistarsviðinu. Fjörutíu tónlistarmenn frá Balkanskaga, undir forystu hins heimsþekkta tónlistarmanns og tónskálds Gorans Bregovic, flytja fjöruga tónlist „fyrir brúðkaup og jarðarfarir“ í Laugardalshöllinni í samstarfi við tónlistarhátíðina Vorblót sem tileiknuð er heimstón- list. Dagskrá þessa fyrrum dáð- ustu rokkstjörnu Júgóslavíu hefur hvarvetna fengið feykigóða dóma og munu Bregovic og félagar án efa ná að koma Laugardalshöll á ið með spilamennsku sinni og sprelli. Auk flutnings Sinfóníunnar á óperu Hafliða leikur hljómsveitin með hinum heimsþekkta unga píanóleikara Hélène Grimaud undir stjórn Davids Björkman. Frá svörtustu Kongó kemur afar sérstök hljómsveit, Konono N°1, sem í sumar hlaut BBC-verð- launin fyrir heimstónlist. Þessi hljómsveit leikur á hefðbundin afrísk hljóðfæri og notar úr sér gengna hljóðnema frá Evrópu. Félagar úr þessari óvenjulegu sveit munu spila með Björk á plötu sem hún vinnur að um þess- ar mundir en Konono n°1 hefur verið þekkt víða um heim frá 2005, sérstaklega í Bandaríkjun- um og Evrópu þar sem hljóm- sveitin hefur ferðast um og komið fram. Hún er engu að síður orðin rúmlega 25 ára gömul. Djassáhugamenn geta fagnað komu sænska tríósins E.S.T. en þeir margverðlaunuðu meistarar leika á Nasa í lok hátíðarinnar. Tríóið skipa frumlegir sænskir tónlistarmenn sem flytja afar skemmtilegan og fremur framúr- stefnulegan djass. Tónlist þeirra er líkt við blöndu af djassi, drum’n’ bass, rafrænni tónlist, fönki, poppi, rokki og evrópskri klassík. Myndlistarverkefni ársins eru fá þetta árið en til mótvægis stór og glæsileg. Opnunarsýningin í Listasafni Íslands verður fyrsta stóra sýningin á verkum Cobra- listamannanna hér á landi, daginn eftir opnar stór sýning á verkum Roni Horn í Listasafni Reykjavík- ur og sýning á nýjum verkum hins umtalaða Spencers Tunick í Gall- erí i8. Verkin sem Spencer sýnir í eru flest ný og hafa fæst þeirra verið sýnd opinberlega áður. Listamaðurinn vann þessi verk að hluta til þegar hann var staddur á Íslandi síðastliðið sumar í tilefni sýningar sinnar í Listasafni Akur- eyrar. Umfangsmikil íslensk hönnun- arsýning, Kvika, verður á haldin Kjarvalsstöðum, en það er í fyrsta sinn sem Listahátíð kemur að slíkri sýningu. Kvika er ein viða- mesta sýning á íslenskri samtíma- hönnun sem sett hefur verið upp og spannar svið hennar ótal svið listgreinarinnar, svo sem hús- gögn, fatnað, ljós, skartgripi, byggingarlist, vefnað, tækninýj- ungar og matargerð. Eins og undanfarin ár teygir Listahátíð sig víðar um landið og að þessu sinni verður Tyrkja- ránsins minnst með glæsilegri sýningu og tónleikum í Vest- mannaeyjum og Vatnasafn Roni Horn verður opnað í Stykkis- hólmi. Listahátíð verður einnig í Laugaborg í Eyjafirði, þar sem íslensk tónverk verða flutt á þrennum tónleikum. Miðasala á viðburðina hófst í gær og fer hún fram á slóðinni www.listahatid.is, en þar má jafn- framt finna nákvæma dagskrá og frekari upplýsingar um viðburði. Miða má einnig panta í síma 552 8588 milli kl. 10-16 á virkum dögum. Miðasala á tónleika Gor- ans Bregovic í Laugardalshöll fer einnig fram á www.midi.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.