Fréttablaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 36
fréttir
Heyrst hefur
BLS. 2 | sirkus | 9. FEBRÚAR 2007
Leigja tómt hús á 1,8 milljónir
Forsvarsmenn
Ölgerðarinnar
virðast ekki þurfa að
horfa í aurinn.
Fyrirtækið leigir
nefnilega tæplega
800 fermetra
húsnæði í Tryggva-
götu, sem áður hýsti Gauk á Stöng, fyrir
1,8 milljónir á mánuði. Sem væri svo
sem ekki í frásögur færandi nema af því
að það er tómt og skilar því engum
tekjum fyrir Andra Þór Guðmundsson,
forstjóra og aðra eigendur fyrirtækisins.
Heimir til Icelandair
Heimir Jónasson, fyrrverandi
dagskrárstjóri Stöðvar 2, var ekki lengi
án vinnu en hann hætti sem kunnugt er
hjá Stöð 2 um áramótin.
Heimir hefur þegar hafið
störf hjá Icelandair þar
sem hann tók við
atburðastjórnun fyrir
fyrirtækið. Hans
hlutverk er að þróa og
móta stefnu fyrir
framtíðina.
Fimmta inn í Nylon
Þetta vita ekki allir,
en önnur systranna í
söngflokknum
Hara, sem tekur
þátt í X-faktor, var
nálægt því að
komast inn í Nylon-flokk Einars
Bárðarsonar á sínum tíma. Yngri systirin
Hildur var næst í röðinni á eftir þeim
Klöru, Emilíu, Steinunni Camillu og Ölmu
og því hársbreidd frá frægð og frama
víðar en á Íslandi.
Dreymir um flugfreyjuna
Og meira af Nylon, því
þrátt fyrir mikið annríki
ákvað Klara Elíasdótt-
ir, söngkona ársins
2006 á Hlustendaverð-
launakeppni FM 957, að
sækja um sem flugfreyja hjá Icelandair
skömmu fyrir jól. Hana hefur dreymt um
að verða flugfreyja frá unga aldri en
þurfti að draga umsókn sína til baka að
þessu sinni vegna skuldbindinga Nylon-
flokksins. Hún útilokar þó ekki að sækja
um á nýjan leik þegar um hægist.
T ónlistarmaðurinn Jón Jósep Sæbjörnsson, betur þekktur sem
Jónsi, mun ef að líkum lætur starfa
sem flugþjónn í vélum Icelandair í
sumar. Eins og greint hefur verið frá í
fjölmiðlum sótti Jónsi um starf
flugþjóns fyrir jól þegar það var
auglýst. Hann komst í gegnum
inntökuprófin, skriflegt og munnlegt,
og mun sækja fimm vikna langt
námskeið ásamt 50 öðrum til að
öðlast réttindi sem flugþjónn.
Jónsi sagði í samtali við Sirkus að
þetta þýddi ekki að hann væri hættur
að syngja. „Ég á nú reyndar enn eftir
að fá þessa vinnu. Ég þarf að standast
þetta námskeið til að komast í gegn.
Ég mun síðan sinna tónlistinni
meðfram þessari vinnu ef allt gengur
upp. Annars vil ég sem minnst um
þetta ræða af virðingu við vinnuveit-
endur mína,“ sagði Jónsi sem óttast
að þetta nýja starf hans hleypi af stað
einhverjum fjölmiðlasirkus.
„Ég sótti um þetta á mínum
forsendum og vona að ég hafi verið
tekinn inn á jafnréttisgrundvelli,“seg-
ir Jónsi.
Jónsi verður flugfreyja
TEKIÐ Á LOFT Jónsi mun án efa skila
sínu hlutverki með sóma í vélum
Icelandair í sumar.
SIRKUSMYND/STEFÁN
L íkamlegt form skiptir gríðarlegu máli þegar árin færast yfir,“ segir Óskar Einarsson kórstjóri en Óskar hefur líklega aldrei verið í
jafn góðu líkamlegu formi og einmitt í dag. „Biblían
segir okkur að fara vel með líkamann,“segir Óskar
sem hefur verið mjög trúaður frá blautu barns-
beini. „Ég var alltaf í fótbolta og handbolta þegar
ég var yngri og spila reglulega badminton. Síðustu
tvö árin hef ég svo stundað líkamsræktina
markvisst. Ég var kannski með meira hlaupaþol
þegar ég yngri og var í boltanum en í dag er ég í
alhliða góðu formi og líklega því besta sem ég hef
komist í,“ segir Óskar sem verður fertugur í vor.
Óskar starfar sem kórstjóri Gospelkórs Fíladelfíu
og kennir í FÍH auk þess sem hann spilar með
Gospelkór Reykjavíkur en sveitina stofnaði hann í
félagi við aðra fyrir Kristnihátíðina á Þingvöllum
árið 2000. Hljómsveitin hefur bæði spilað með
Sálinni og Stuðmönnum og þótt Óskar segir þá
reynslu hafa verið skemmtilega tilbreytingu finnst
honum mest gaman að spila gospeltónlist með
trúuðu fólki. „Það er ekkert skemmtilegra en að
vera með góðri hljómsveit sem syngur af tilfinn-
ingu og meinar það sem hún syngur og syngur
jafnvel af eigin reynslu.“
Kona Óskars, hin norska Bente, er einnig á fullu í
ræktinni. „Lífið er mun léttara þegar maður er í
góðu formi og konan mín er í þessu á fullu líka. Við
höfum bæði æft íþróttir síðan við vorum krakkar.
Þetta er okkar lífsstíll, rétt eins og trúin er okkar
lífsstíll. Ég vil halda sálinni hreinni og líkamanum í
góðu formi,“ segir Óskar brosandi og bætir við að
honum líði mun betur andlega og líkamlega þegar
líkaminn sé í góðu formi. Óskar hefur keppt í
keppninni Þrekmeistaranum. Hann keppti þó ekki
síðast en stefnir ótrauður á að taka þátt næsta vor.
„Þetta eru tíu þrautir þar sem keppt er við
klukkuna og þetta er það erfiðasta sem ég hef gert
og ég skora á alla þá sem halda að þetta sé ekkert
mál að prófa,“ segir hann og bætir aðspurður við að
hann sé líklega bestur í róðrinum og armbeygjun-
um en hann getur tekið tíu til fjórtán armbeygjur á
annarri hendinni. „Ég er bestur í því sem þarfnast
snerpu en þarf að bæta mig í axlarpressu og
hlaupinu.“ Aðspurður um fitness-keppnir segist
hann ekki hafa áhuga á þeim. „Fitness er ekki fyrir
mig. Að mínu mati snýst það of mikið um að
upphefja líkamann og því hef ég ekki áhuga á þótt
ég hafi enga fordóma gagnvart þeim sem það velja.
Ég gæti ekki hugsað mér lífið án hreyfingar, ekkert
frekar en án guðs og ég þakka fyrir að hafa
heilsuna til að geta hreyft mig því það eru alls ekki
allir svo heppnir.“
indiana@frettabladid.is
ÓSKAR EINARSSON KÓRSTJÓRI HEFUR ALDREI VERIÐ Í BETRA FORMI.
ÞAKKA GUÐI FYRIR HEILSUNA
Í GÓÐU FORMI Óskar gæti ekki hugsað sér lífið án hreyfingar og guðs. SIRKUSMYND/VALGARÐ
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGI 86-94, S: 511-2007
NÝJAR OG SPENNANDI
VÖRUR FYRIR JÓLIN.
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% AFSLÁTTUR
Lokadagur útsölu er á morgun
27.01.07 50%-70% afsláttur