Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 30
[ ]Sunnudagssteikin er alltaf jafn frábær. Hvað er betra en að bjóða allri fjölskyldunni á sunnudegi og njóta þess að borða saman steik eins og í þá gömlu góðu daga?
Sellerí er margnýtanlegt hrá-
efni.
Sellerí, stundum kölluð blaðsilla,
er í seinni tíð orðið að einni vin-
sælustu matjurt sem völ er á. Er
það ekki að ástæðulausu þar sem
hægt er að nýta alla hluta jurtar-
innar í eldamennsku auk þess sem
mörgum þykir hún hreinasta lost-
æti.
Heimildir um notkun sellerís
ná alveg aftur til daga Forn-
Grikkja. Sellerí náði þó ekki
almennum vinsældum sem mat-
jurt fyrr en á 15. eða 16. öld þegar
Ítalir fóru að rækta það afbrigði
hennar sem nú er þekktast (Apium
graveolens dulce). Nú er jurtin
ræktuð víða, einkum vegna
stökkra stönglanna.
Blöð sellerís eru notuð í súpur,
seyði og salöt. Fræin eru þurrkuð
og notuð sem krydd. Stönglarnir
eru borðaðir hráir eða soðnir,
gufusteiktir, bakaðir eða gratíner-
aðir og notaðir í súpur, pottrétti,
kássur. Rótarhýðið er líka notað til
matargerðar. Þá þykir sellerí gott
með eplum, hnetum, osti og villi-
bráð. Svo er alveg tilvalið að nota
það sem snakk með ídýfu.
Sellerí er auk þess hollt: hita-
einingasnautt, trefjaríkt og inni-
heldur C-vítamín. Hómópatar nota
sellerí til að mynda við þvagsýru-
gigt og til að losa eiturefni úr lík-
amanum. -rve
Lostæti með
osti og villibráð
Innihald súpu:
½ sellerí
2 laukar
½ dl sítrónuolía
1,2 l hænsnakraftur
1,5 dl sýrður rjómi, 38%
Innihald gulrótarsafa:
3 flysjaðar gulrætur
1 msk. fennikufræ
½ dl sítrónuolía
Einn poki af graskerskjörnum frá
Önnu og Klöru til skreytingar
Aðferð við gerð súpu:
Selleríið er hreinsað og skorið
í grófa teninga. Steikið selleríið
ásamt lauknum í sítrónuolíunni
þar til það er farið að mýkjast en
látið það ekki brúnast. Krafturinn
er settur út í og látið malla í hálf-
tíma. Blandið svo öllu saman og
sigtið aftur ofan í pottinn. Látið
suðuna koma upp og smakkið
til með salti og pipar. Áður en
súpan er borin fram er sýrða
rjómanum hrært út í og eftir það
má súpan ekki sjóða!
Aðferð við gerð gulrótarsafans:
Gulræturnar eru skornar í tvennt
og velt upp úr olíu og fenniku-
fræjum. Svo eru þær bakaðar
í ofni við 160°C í 45 mínútur.
Svo eru þær settar í matvinnslu-
vél með restinni af olíunni og
smakkað til með salti og pipar.
Nú má hella gulrótarsafanum á
flösku. Ef hann er of þykkur má
þynna hann með smá vatni.
Gulrótarsafinn er notaður til
að skreyta súpuna ásamt grask-
erskjörnum.
Heimildir: Matarást, wikipedia.co.uk,
islenskt.is og grenes.dk
SelleríSúpA með gul-
rótum og SteIktum
grASkerSkjörnum
frá SöStrene greneS
Fyrir 4
Krydd er unnið úr sellerí-fræj-
um, sem sýnir hversu mikið
notagildi jurtin hefur.
Sellerí er grænleit jurt sem getur
orðið allt að 1 m há og 30 cm í
þvermál, með 3-6 cm löngum og 2-
4 cm breiðum blöðum. Jurtin þrífst
best í votlendi við sjó en vex víða
um Evrópu, Asíu, Afríku, Ameríku og
Eyjaálfu svo dæmi séu tekin.
F I S K I S A G A H a m r a b o r g 1 4 a / S k i p h o l t i 7 0 / H ö f ð a b a k k a 1 / N e s v e g i 1 0 0 ( V e g a m ó t u m ) / S u n d l a u g a v e g i 1 2 / H á a l e i t i s b r a u t 5 8 – 6 0
fisk i saga . i s
Ævintýralegar fiskbúðir
- úrval af ferskum fiski og
tilbúnum fiskréttum
Er matarboð
um helgina?