Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 31
FÖSTUDAGUR 2. mars 2007
Kristinn Gylfi Jónsson rekur
eggjabú í Mosfellsbæ ásamt
bróður sínum og mágkonu, þar
sem vistvæn egg eru framleidd.
Áhugi fyrir vistvænum og lífræn-
um matvælum hefur aukist jafnt
og þétt síðustu ár. Kristinn Gylfi
Jónsson eggjabóndi ákvað að
bregðast við þessari þróun með
því að hefja framleiðslu á vistvæn-
um eggjum á Teigi í Mosfellsbæ
þar sem hænurnar ganga lausar.
„Við tókum okkur nokkur til, ég
og bróðir minn Björn og eiginkona
hans Herdís Þórðardóttir, og flutt-
um sérstakan, norskan hænustofn
inn til landsins fyrir þremur
árum,“ segir Kristinn. „Stofninn
gefur af sér brúnar hænur, sem
framleiða brún egg gagnstætt
íslensku hænunum. Egg af þessu
tagi eru vinsæl víðs vegar um Evr-
ópu en hafa ekki sést á Íslandi
áður.“
Að mati aðstandenda Brún-
eggja, sem er heiti fyrirtækisins,
eru brúnu eggin bragðbetri en þau
hvítu sem Íslendingar eru vanir,
þótt þeir vilji ekki fullyrða hver
ástæðan sé fyrir bragðmuninum.
„Eggjabúið er náttúrulega öðru-
vísi þar sem hænurnar ganga
frjálsar um gólf og verpa í hreiður.
Þær eru almennt hafðar í búrum.
Við gætum þess líka að hænurnar
fái úrvalsfóður. Það er því ekki
annað hægt að segja en að þær
hafi það gott hérna, þessi grey.“
Kristinn segir brúnu eggin hafa
fengið ágætis viðtökur hérlendis.
„Sala brúnu eggjanna er sífellt að
aukast eins og um allan heim þar
sem vistvæn og lífræn matvara
verður sífellt eftirsóttari. Fólk er
almennt farið að hugsa meira um
uppruna og framleiðsluferli mat-
væla en það gerði. Það er smám
saman að hverfa aftur til upprun-
ans.“ roald@frettabladid.is
Úr únsum yfir
í kíló
Einfaldar rEiknivélar á
nEtinu þEgar umrEikna þarf
milli mælikErfa.
það hefur stundum vafist fyrir
ástríðukokkum að reikna út
farenheit, únsur og pund yfir í
þær mælieiningar sem tíðkast
hér á Íslandi. fyrir tíma netsins
var eflaust töluvert flóknara að
notfæra sér erlendar matreiðslu-
bækur, enda mikil fyrirhöfn hjá
flestum að finna út úr þessum
málum … svo ekki sé minnst á
að margar vörur og hráefni sem
tíunduð eru í erlendum mat-
reiðslubókum hafa ekki verið
fáanlegar hér á landi.
það fólk sem er með góða
nettengingu heima hjá sér
(nánast allir) getur leyst þessa
útreikninga með því að fara
á netið. til dæmis er hægt að
fara á www.google.com og
slá inn hverju á að umbreyta
og í hvað, og innan skamms
kemur google-reiknirinn með
niðurstöðuna. á matarvef BBC,
www.bbc.co.uk/food er einnig
að finna góða reiknivél sem
umbreytir þyngd, rúmmáli og
hitastigi, yfir í það sem okkur
þykir skiljanlegt hvort sem um
er að ræða únsur, bolla, grömm,
pund, lítra eða pintur. - mhg
Stundum passa mælieiningar í
uppskrift ekki við mælieiningar á
mælitækjunum í eldhúsinu.
Hamingjusamar hænur
það ríkti sannkölluð partístemning í hænsnabúinu þegar ljósmyndari smellti þessari
af. Hænurnar dreif hvaðanæva að enda forvitnar um þennan óvænta gest.
kristinn gylfi Jónsson leggur mikla
áherslu á að hænurnar á teigi hafi það
sem best. þær ganga lausar og verpa í
hreiður. fréttaBlaðið/gva
Hversu holl er
máltíðin í raun?
á vEfnum iSlEnSkt.iS má
finna ýmSar áHugavErðar
StaðrEyndir.
meðal þess sem kemur fram á
vef íslenskra garðyrkjubænda,
www.islenskt.is, er að jurtafita
er á engan hátt minna fitandi en
dýrafita. Hún kann að inni-
halda heppilegri fitusýrur, en í
hitaeiningum talið er munurinn
nær enginn. það er því tálsýn
að notkun jurtaolíu sé einhvers
konar megrunaraðferð.
- mun hollara en frá erlendum framleiðendum
- aðeins 3% mettuð fita í Stjörnusnakki
- engin hert fita
- engar transfitusýrur, sem er mjög gott
- 30% minni fita en í kartöfluflögum
- þess vegna segjum við Til hamingju Ísland !
Í tilefni af umræðu um herta fitu í matvælum viljum við minna á að það er
engin hert fita og engin transfita í framleiðsluvörum Iðnmarks
og hefur ekki verið í 20 ár.
www.snakk.is
Hol
lara
sna
kk
með
100
%
sólb
lóm
aol
íu
Til hamingju Ísland!
Áman ehf • Háteigsvegi 1 • 105 Reykjavík
Sími: 533 1020 • aman@aman.is • www.aman.is
• Legacy 16 lítra þrúgur
• Selection 15 lítra þrúgur
• California Connoisseur 7,5 lítra þrúgur
• Chai Maison 7,5 lítra þrúgur
• European Select 7,5 lítra þrúgur
• Vintners 7,5 lítra þrúgur
• Niagara Mist 7,5 lítra þrúgur
Hágæða víngerðarefni
Ávaxtavín - Hvítvín - Rauðvín – Rósavín
Verð frá: 5.990,-
Ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
þ
r
ír
4
0
3.
0
0
2