Fréttablaðið - 02.03.2007, Page 33
[ ]Langir laugardagar eru tilvaldir til að gera sér glaðan dag á Laugaveginum og kaupa eitthvað fallegt handa elskunni og fara síðan út að borða.
Kjörgarður var einn af fyrstu eiginlegu verslana-
miðstöðvum Íslands. Þar var meðal annars
settur upp fyrsti rúllustigi landsins.
Þegar Kjörgarður var byggður var hann einn af
risum samtíðarinnar. Þar var settur upp fyrsti rúllu-
stigi Íslands og þar var fjöldinn allur af verslunum,
verksmiðja og skrifstofur. Í dag er öldin önnur og
Kjörgarður dvergur í samanburði við risana
Kringluna og Smáralindina. Húsnæðið er þó langt í
frá líflaust þó svo að starfsemi í húsinu sé nokkuð
frábrugðin því sem áður var.
Í dag er húsið best þekkt sem Bónus á Laugavegi
59, en bleiki grísinn er búinn að hreiðra vel um sig á
fyrstu hæðinni. Hann er þó langt í frá eina verslunin
í húsinu. Í kjallaranum er hin stórskemmtilega
Herrafatabúð Kormáks og Skjaldar. Þar eru ný og
notuð föt fyrir herramenn og spjátrunga auk allra
aukahluta sem herramennsku fylgja.
Á annarri hæðinni er eitt af fjölmörgum kaffihús-
um Laugavegarins, Lóuhreiðrið. Heimilisleg stemn-
ing dregur að sér þá sem vilja í örskotsstund sleppa
frá skarkala borgarlífsins. Við hlið Lóunnar býr
annar og stærri fugl, Storkurinn garnaverslun, en
hún er elsta verslunin í húsinu. Þar má finna garn í
öllum regnbogans litum, prjónauppskriftir og þjón-
ustu sem á engan sinn líkan.
Hönnuðurinn Steinunn hefur einnig sitt aðsetur á
hæðinni. Hún hannar kvenföt og er íslenskt hráefni í
hávegum haft. Í verslun hennar má einnig finna fjöld-
ann allan af verkum annarra íslenskra hönnuða og
eru vörurnar hver annarri þjóðlegri.
Steinunn er ekki eini hönnuðurinn á hæðinni því
þar má einnig finna arkitekta, grafíska hönnuði, iðn-
hönnuði og svo mætti lengi telja. Sé farið hærra upp,
á þriðju hæð hússins, taka lögfræðingar og sálfræð-
ingar við, en fjöldi þeirra er með skrifstofur sínar í
húsinu. Til að toppa fjölbreytnina þá er kvenkirkjan
einnig til húsa í Kjörgarði. tryggvi@frettabladid.is
Fyrsti rúllustigi landsins
Kjörgarður hefur hýst ýmsa starfsemi gegnum árin. Nú er þar
fjöldi hönnuða að störfum, verslanir og skrifstofur.
fréttabLaðið/heiða
Lóuhreiðrið er notalegt kaffihús á annarri hæðinni.
Garnabúðin Storkurinn er elsta búðin í Kjörgarði.
hjá Steinunni hönnuði kennir ýmissa grasa og er hægt að nálgast íslensk föt, húsgögn og listaverk hjá henni.
Á löngum laugardegi er tilvalið
að bregða sér á myndlistarsýn-
ingu með fjölskyldunni.
Sýningin Að mynda orð sam-
anstendur af nýjum og eldri verk-
um myndlistarmanna og ljóð-
skálda sem notast bæði við texta
og myndræna þætti í verkum
sínum. Hoffmannsgallerí er í hús-
næði Reykjavíkurakademíunnar á
Hringbraut 121. Aðgangur er
ókeypis.
Bókalíf Unnar Guðrúnar Ótt-
arsdóttur er sýnd á sama stað.
Aðgangur er einnig ókeypis.
Einn fremsti samtímalistamað-
ur Frakka, Pierre Huyghe, sýnir í
Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kallast Í beinni og er opin frá
klukkan 10-17 daglega.
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og
Pétur Örn Friðriksson sýna Mark-
mið í Kling & Bang, Laugavegi 23.
Sýningin er opin klukkan 14-18.
Nánari upplýsingar um yfir-
standandi sýningar má finna á vef
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, www.sim.is.
Myndlist í miðbæ
Reykjavíkurborgar
Listaverk Ásmundar Sveinssonar eru
alltaf jafn falleg og skemmtileg að skoða
með fjölskyldunni á löngum laugardegi.
Laugavegi 51 • s: 552 2201
Fallegar íslenskar
peysur
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is