Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 60

Fréttablaðið - 02.03.2007, Side 60
Persónan 16 Upphafsmaður færibandsins Henry Ford fæddist árið 1863 nálægt Detroit í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir litla formlega menntun komu hæfileikar Fords á sviði verk- fræði snemma í ljós. Fimmtán ára var hann farinn að gera við úr fyr- ir vini og vandamenn og það tók hann ekki langan tíma að vinna sig til vegs og virðingar innan ljósafyr- irtækis Edisons. Þrítugur að aldri var Ford orðinn yfirverkfræðingur Edisons. Stað- an var vel launuð og gaf það Henry tækifæri að eyða tíma og pen- ing í áhugamál sitt, sjálfknúin öku- tæki. Árið 1896 keyrði hann fyrsta vélknúna fjórhjóli sínu. Árið 1899 stofnaði hann, ásamt fjárfestum. Detroit Automobile Company, en það fór fljótlega á hausinn vegna þess að Henry hélt áfram að bæta bílana í stað þess að búa til fram- leiðsluhæfar útgáfur. Annað fyrirtæki var stofnað utan um kappakstursáhuga Fords, Henry Ford Company, en hann sagði starfi sínu lausu þegar fjár- festar fengu annan yfirmann inn í fyrirtækið til að hemja Ford. Henry Ford Company varð síðan að Cad- illac Automobile Company. Árið 1903 stofnaði Ford Ford Motor Company. Fimm árum síðar kom T-módelið út, einn allra vinsælasti bíll fyrr og síðar. Ford kynnti ýms- ar nýjungar með bílnum. Stýrið var vinstra megin, vélin og skipting- in voru varðar í vélarhúsi, vélin var heilsteypt og bíllinn með gorma- fjöðrun. Mestu nýjungarnar voru þó á skipulagi fyrirtækisins. Færiband- ið var uppfinning Fords og með því að sérhæfa verkamenn, minnka framleiðslutíma og auka afköst urðu bílarnir mjög ódýrir. Þeir voru í raun svo ódýrir og vinsælir að á tímabili var annar hver bíll í Banda- ríkjunum Ford T-model. Önnur veigamikil breyting varð á rekstri fyrirtækisins árið 1914. Ford tilkynnti að hann myndi borga verkamönnum fimm dollara á dag, um helmingi hærri upphæð en aðrir atvinnurekendur buðu. Þetta olli því að allir bestu vélvirkjar Detroit réðu sig í vinnu hjá Ford, velta á starfsmönnum var lítil, ekki þurfti að eyða tíma og fjármunum í að þjálfa upp nýtt starfsfólk og framleiðni jókst enn frekar. Þegar sala á T-Model fór að minnka setti Ford A-Model á markaðinn. Það var mun fullkomnara og einn- ig afar vinsælt. Meira en fjórar millj- ónir eintaka seldust á árunum 1931 til 1927, en í kjölfar þess setti fyrir- tækið ný módel á markaðinn reglu- lega, rétt eins og tíðkast hjá bíla- framleiðendum í dag. Ford var ekki einungis elskað- ur uppfinningamaður og braut- ryðjandi er kom að velferð verka- manna. Hann átti sér einnig dekkri hlið sem birtist í miklu gyðinga- hatri. Hann gaf út dagblað helg- að efninu og árið 1938, rétt fyrir byrjun síðari heimsstyrjaldarinn- ar, hlaut Ford Stórkross þýska arn- arins. Heiðursmerkið er hæsta medalían sem þýska ríkið veitti útlendingum á þeim tíma. Henry Ford 1.990Digtal skíðmál843 030610 Akureyri • Egilsstöðum • Hafnarfirði • Höfn Keflavík • Kópavogi • Reykjavík • Selfossi Bíldshöfða 9 • Sími: 535 9000 26 10 / TA K TÍ K 2 8. 1. 20 07 MARS 107.653 2.490 Gúmmí píanó 063 077900273 298Vaskaskinn172 72151 1.490Dráttartóg708 tog 5 m. 2.490Dráttartóg708 tog 7m 990Pennaljós063 700003417 Evs hálskragar 595 -10 595 SPY gleraugu -15 SPIDI buxur 595 -30 150.000 Terra-moto 595 125F-07-WHT Notaðu tækifærið og gerðu góð kaup 89.900Sólarrafhlaða846 25055 2.490Verkfærakassi stál889 H17AC19201 4.990 Borvél 12V + Taska 360 F0152301AC Raunstærð og alvöru hljómur - ferðapíanóið Öflug 100 Wött 198Símahulstur877- flokkur 2.990 Höggborvél 220v 360 F0156270AA 990Skiptilyklasett060 88598 1.990 990Vasahnífur m/öllu060 87984 1.790 4.097 2.460 6.600 3.704 49.900 Grill 076-962-23 69.600 1.290 Járnsög 889 H13H12 2.296498 4.029 3.4907.890 Ýmsar tegundir Aukahlutir fylgja tösku 949Led ljós mjög öflugtmeð rafhlöðu 034 Dot-it 1.998

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.