Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 2
Katrín, ætlar bæjarráðið í
Ölfusi að vera áfram í fýlu?
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
HONDA CIVIC
Nýskr. 12.06 - Beinskiptur - Ekinn 2 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.650
.000.
-
Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, segir að
með yfirlýsingu Geirs H. Haar-
de forsætisráðherra, um vatns-
og landréttindi við Búrfell sé búið
að höggva á þann hnút sem hnýtt-
ur hafi verið með úrskurðum
óbyggðanefndar 21. mars 2002 og
10. desember 2004. „Með þessu er
ríkið að gera Landsvirkjun jafn-
setta og hún var er hún var stofnuð
árið 1965. Í yfirlýsingunni kemur
fram að það sé búið að greiða fyrir
þau réttindi sem við höfum alltaf
talið okkur eiga. Með þessari yf-
irlýsingu er nýtingarréttur okkar
viðurkenndur.“
Landsvirkjun
hyggst greina
frá áhrifum yf-
irlýsingar Geirs
á vefsíðu sinni í
dag.
Geir H.
Haarde for-
sætisráðherra
hefur lýst því
yfir með yfirlýs-
ingu 12. mars,
að við stofn-
un Landsvirkj-
unar 1965 hafi
„að fullu verið
greitt fyrir þau
vatns- og lands-
réttindi sem
Landsvirkjun
hagnýtir vegna
210 MW virkj-
unar í Þjórsá
við Búrfell“.
Ragnar Að-
alsteinsson
hæstaréttarlög-
maður telur yfirlýsinguna mark-
lausa þar sem óbyggðanefnd hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
landsvæðið sem um ræðir væri
þjóðlenda. „Yfirlýsingunni er
ætlað að viðhalda stöðu Lands-
virkjunar eins og hún var áður en
úrskurðir óbyggðanefndar komu
til. Óbyggðanefnd komst að þeirri
niðurstöðu að þetta væri þjóðlenda
og þá vaknar sú spurning hvernig,
og hvort, ríkið getur afhent með
þessum hætti þjóðlendur og rétt-
indi sem eru innan hennar,“ segir
Ragnar. Hann segir stjórnarfrum-
varp sem dregið hefur verið til
baka hafa átt að tryggja Lands-
virkjun réttindi. „Með stjórn-
arfrumvarpi átti að koma land-
svæði, sem Landsvirkjun nýtir,
aftur í hendur Landsvirkjunar
en það getur hins vegar alls ekki
verið, og stenst ekki skoðun, að
Landsvirkjun eigi landið og nýt-
ingarréttindi eftir þessa litlu yfir-
lýsingu Geirs. Þess vegna tryggir
hún ekki neitt, hvorki nýtingarrétt
né annað.“
Segir réttindi tryggð
með yfirlýsingu Geirs
Forstjóri Landsvirkjunar segir vatns- og landsréttindi við Búrfell tryggð með yf-
irlýsingu Geirs H. Haarde forsætisráðherra um að Landsvirkjun hafi greitt fullt
verð fyrir réttindin. Yfirlýsingin tryggir ekkert, segir Ragnar Aðalsteinsson.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar, er heiðursgestur á lands-
fundi sænska
jafnaðar-
flokksins og
mun á laug-
ardag fagna
kjöri Monu
Sahlin í emb-
ætti formanns
flokksins.
Helle Thorning
Schmidt, for-
maður danska
jafnaðarflokksins, er einnig heið-
ursgestur á landsfundinum.
Kjör Sahlin markar tímamót,
því með því komast konur í meiri-
hluta formanna jafnaðarflokka á
Norðurlöndunum. Hún mun taka
við formennsku af Göran Pers-
son, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar. Kjörinu verð-
ur formlega lýst á hádegi á laug-
ardag og mun Ingibjörg Sólrún
ávarpa fundinn í kjölfar hátíðar-
ræðu Sahlin.
Mona Sahlin leið-
ir jafnaðarmenn
Nítján ára piltur sem tekinn var með
fíkniefni á heimavist Framhaldsskólans á Laugum
á þriðjudag er enn í haldi. Magn fíkniefnanna sem
fundust í fórum hans er það mesta sem lögreglan á
Húsavík segist hafa lagt hald á hingað til.
Fíkniefnin voru tvenns konar; 65 grömm af hassi
og 160 grömm af amfetamíni. Söluverðmæti þeirra
er talið um tvær milljónir króna. Lögregla segir
hann halda því fram að efnin hafi verið ætluð til
einkaneyslu.
Pilturinn er úrskurðaður í gæsluvarðhald til
klukkan þrjú í dag. Lögregla segir þó líklegt að
hægt verði að sleppa honum fyrr vegna þess hve
rannsókn málsins hefur miðað vel. Ekki er talið að
fleiri nemendur hafi komið að málinu.
Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari á Laug-
um, kallaði sjálf út lögreglu eftir að hafa borist
ábendingar um að fíkniefni væru á vistinni.
Mikið af fíkniefnum fannst
Dómur Hæstarétt-
ar vegna frávísunar héraðsdóms
í máli ákæruvaldsins gegn for-
stjórum stóru olíufélaganna,
Kristni Björnssyni, Geir Magnús-
syni og Einari Bendiktssyni, verð-
ur að öllum líkindum birtur í dag.
Þetta staðfesti Ásmundur Helga-
son, aðstoðarmaður hæstaréttar-
dómara, við Fréttablaðið í gær.
Forstjórarnir eru ákærðir í 27
liðum fyrir samráð og markaðs-
skiptingu.
Héraðsdómur vísaði málinu
frá 9. febrúar á þeim forsendum,
öðrum fremur, að ekki væri unnt
að refsa einstaklingum fyrir brot
á samkeppnislögum.
Dóms að vænta
í málinu í dag
Viðskiptaráð hefur
ávallt beitt sér fyrir því að skatt-
kerfi landsins sé eingöngu nýtt til
að fjármagna velferðarkerfið og
samfélagsinnviði sem sátt er um
að allir njóti aðgangs að og hefur
bent á kosti flatra skatta þar sem
einfaldleiki og gagnsæi eru eins
og best verður á kosið.
Viðskiptaráð hefur sent frá sér
skoðun sína þar sem segir að að-
gerðum til aukins jafnaðar fylgi
ýmsar aukaverkanir. Hugmynd-
ir um að knýja fram meiri jöfn-
uð með aukinni skattlagningu séu
skammsýnar og varasamar. Lykil-
atriðið sé að jöfn tækifæri eigi að
vera markmiðið, ekki jöfnuður.
Jöfn tækifæri
eru lykillinn
Henry A. Obering, yf-
irmaður flugskeytavarnadeild-
ar Bandaríkjahers, segir að Rúss-
ar þurfi ekkert
að óttast þótt
Bandaríkja-
menn komi sér
upp kerfi flug-
skeytavarna
í Evrópuríkjum.
Obering sagði
á blaðamanna-
fundi í Berlín
í gær að kerf-
ið verði eingöngu
varnarkerfi, sem ætti einkum
að geta komið í veg fyrir árásir
frá Íran. Kerfið verði hins vegar
ekki nægilega öflugt til að verjast
árásum frá Rússlandi.
Rússnesk stjórnvöld hafa harð-
lega gagnrýnt þessi áform Banda-
ríkjanna og segja þau ógna Rúss-
landi.
Rússar þurfa
ekkert að óttast
Fjórir ungir piltar eru
ákærðir fyrir að hafa nauðgað
stúlku í samkvæmi í heimahúsi
í Reykjavík haustið 2005. Mál
þeirra var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í fyrradag.
Piltarnir voru á aldrinum fimmt-
án til sautján ára þegar meint
brot áttu sér stað en stúlkan,
sem er fædd árið 1991, var að-
eins fjórtán ára. Hún hitti piltana
í heimahúsi í Reykjavík og þekkti
engan þeirra fyrir. Þar fór meint
nauðgun fram og kærði stúlkan
verknaðinn til lögreglu.
Málið var sent til ríkissak-
sóknara í nóvember á síðasta ári.
Reiknað er með að málflutning-
ur hefjist í maí. Sökum ungs ald-
urs er ólíklegt að stúlkan þurfi að
koma fyrir dóm.
Ákærðir fyrir
hópnauðgun
Stjórnvöld í Suður-Afríku ætla að
draga úr fjölda eyðnismita um 50 prósent á næstu
fimm árum samkvæmt áætlun sem kynnt var í gær.
Árið 2011 munu 80 prósent eyðnismitaðra fá viðeig-
andi meðferð við sjúkdómnum. Í dag fá 250.000 lyfja-
meðferð sem eru um 20 prósent eyðnismitaðra.
Áætlunin þykir vera til marks um viðsnúning
suður-afrískra stjórnvalda í eyðnimálum eftir að
hafa árum saman sætt alþjóðlegri gagnrýni fyrir
stefnu sína. Heilbrigðismálaráðherrann hefur sér-
staklega verið gagnrýndur fyrir að draga í efa lækn-
ismeðferðir og hvetja fólk til að berjast við sjúkdóm-
inn með náttúrulegum ráðum á borð við neyslu á hvít-
lauk og sítrónum.
Í ítarlegri skýrslu sem stjórnvöld létu vinna kemur
fram að eyðni veldur dauða margra fyrir aldur fram í
Suður-Afríku. Jókst dánartíðni um 79 prósent á tíma-
bilinu 1997 til 2004 og var aukningin meiri meðal
kvenna.
Talið er að árið 2005 hafi rúmlega fimm og hálf
milljón íbúa Suður-Afríku verið eyðnismitaðar sem
eru nítján prósent fullorðinna landsmanna. Fjöl-
mennasti hópurinn var konur á aldrinum 25 til 29 ára
þar sem hátt í 40 prósent voru eyðnismitaðar.