Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 90
Kl. 23.00
Hljómsveitin Spaðar heldur sitt ár-
lega ball á skemmtistaðnum Nasa
við Austurvöll. Sveitin leikur lög af
nýjum diski auk kunnuglegra slagara
úr smiðju félaganna.
Tengsl ritsnilldar og Asperger
Það ilmaði af nýrri máln-
ingu á Laugavegi 12b þegar
blaðamaður leit þar inn í
vikunni. Á morgun verð-
ur þar opnað nýtt gallerí,
STARTART, en þar sameina
sjö listamenn krafta sína og
auðga enn frekar listaflóru
miðbæjarins.
Listamennirnir Anna Eyjólfsdótt-
ir, Ása Ólafsdóttir, GaGa Skorr-
dal, Magdalena Margrét Kjart-
ansdóttir, Ragnhildur Stefánsdótt-
ir, Þórdís Alda Sigurðardóttir og
Þuríður Sigurðardóttir fara með
lyklavöldin í nýja galleríinu en
þær hafa staðið í ströngu á und-
anförnum vikum. Húsnæðið hýsti
áður verslunarrekstur af ýmsu
tagi, þar var einn sinn hægt að
kaupa bæði kvenhatta og konfekt
en nú er búið að brjóta niður veggi
og sameina litlu verslanirnar
tvær en í annarri þeirra seldi ein
kvennanna, GaGa Skorrdal, hönn-
un sína nú síðast. Brátt verður þar
að finna enn meiri list, veggverk,
skúlptúra, grafík, innsetningar og
fleira en rýmið býður upp á fjöl-
breytta möguleika til sýninga-
halds auk þess sem efri hæðin fær
einnig yfirhalningu en þar verður
aðstaða fyrir vinnustofur.
Listakonurnar eru afar ólíkar og
hafa þekkst mislengi en þær hafa
allar skapað sér nafn á listasvið-
inu. „Við erum allar starfandi
myndlistarmenn og þannig liggja
leiðir saman – ýmist í gegnum
vinnustofur eða sýningarhald,“
útskýrir Þuríður. Anna bend-
ir síðan á að þær hafi allar rætt
um það innbyrðis að gaman væri
að hafa einhvers konar vettvang
til að kynna þeirra eigin list því
nálgunin væri önnur þegar verk
eru sett á sölu hjá öðrum. „Þetta
er ákveðin yfirlýsing,“ segir Anna
og áréttar að oft átti fólk sig ekki
á því að verk á sýningum séu til
sölu, einkum stór þrívíð verk, um-
hverfis- og rýmisverk. „Það skipt-
ir ekki máli á hvaða formi list-
in er. Það er von allra myndlist-
armanna að geta lifað af þessu
starfi. Við sem stöndum að STAR-
TART erum allar langskólagengn-
ar í myndlist og hér viljum við að
fólk geti gengið að okkur. Það sem
við gerum á vinnustofunni á að
koma beint hingað og hér verður
því alltaf að finna nýja list,“ segir
Anna.
Framtakið nú er spennandi áskor-
un eins og Þórdís Alda útskýr-
ir því nú vinni þær jafnt og þétt
fyrir galleríið í stað þess að taka
vinnutarnir fyrir sýningar í
stærri sölum. „Hér erum við líka
án allra milliliða og getum haldið
okkar listræna frelsi,“ bætir Þur-
íður við.
Verkefni þetta hefur reynt nokk-
uð á því listamennirnir eru jú allir
vanir að vera einráðir einyrkjar.
Anna segir brosandi að þær hafi
nú bara ætlað að drífa þetta í gegn
og koma galleríinu í stand á viku,
tíu dögum en þær séu reyndar
mánuði á eftir áætlun. „Það sýnir
bara hvað við erum bjartsýnar,“
útskýrir Þórdís. „Og metnaðar-
fullar,“ bætir Ragnhildur við og
segir að fyrirkomulagið sé eink-
ar lýðræðislegt, hér sé engin einn
kafteinn í brúnni. „Reyndar verða
fundir sem upphaflega eiga að
vara í klukkustund yfirleitt svona
þrír tímar,“ segir Þórdís sposk.
„En margar rætur verða að einum
stofni,“ heyrist frá hönnuðinum
GaGa.
Á undanförnum árum hefur sýn-
ingarstöðum myndlistarmanna
fjölgað töluvert, ekki síst vegna
framtakssemi þeirra sjálfra og
lítil gallerí og sýningarstaðir hafa
dúkkað upp á ólíklegustu stöðum.
Þórdís segir að þær stöllur hefðu
vart ráðist í þessa framkvæmd
ef þær hefðu fundið fyrir doða í
þjóðfélaginu. „Það er frábært að
nú séu að opnast fleiri sýningar-
staðir, það gefur myndlistarmönn-
um byr undir báða vængi,“ segir
Þórdís og áréttar að almennt sé
myndlistaráhugi að aukast hér á
landi. Anna bætir við að framtaks-
semi listamannanna sjálfra skýr-
ist einnig af því að það sýningar-
rými sem er til staðar sé ekki allra
en listamenn séu alltaf að. „Lista-
menn eru eins og maurar,“ segir
hún, „þeir eru alltaf í vinnunni,
líka þegar þeir eru bara að horfa
og hugsa.“
Sjömenningarnir munu allar sýna
verk sín á staðnum og skipta með
sér vöktunum þar. „Við teljum hag
af því að vera sjálfar á staðnum,“
segir Þuríður, „að listneytend-
ur viti að við sem erum hér séum
starfandi myndlistarmenn en það
er önnur nálgun en flestir eiga að
venjast.“ Þórdís bætir við hlæjandi
að þær ætli sér þó síst að breytast
í uppáþrengjandi sölumenn.
Fyrirkomulagið er samt ekki nið-
urnjörvað heldur vilja listamenn-
irnir að starfsemin fái að þróast.
„Við horfum líka lengra,“ segir
Anna og vísar til þess að framtíð-
arsýnin takmarkist ekki við landið
og miðin auk þess sem möguleikinn
á frekara samstarfi við aðra lista-
menn sé ávallt til staðar. „En til að
byrja með hugsum við þetta meira
út frá okkur – við um okkur frá
okkur til okkar,“ segir Ragnhildur
hæversklega.
Hús þetta á sér mikla sögu en
fyrst veggirnir geta lítið talað
hvetja listamennirnir þá sem búið
hafa eða starfað í nágrenninu til
þess að kíkja í heimsókn. „Við fund-
um tvo gamla tuttugu og fimmeyr-
inga þegar við vorum að breyta.
Við teljum það vera lukkumerki –
en vonumst til að það komi kannski
eitthvað aðeins meira,“ segir Þór-
dís bjartsýn.
Opnunin verður milli 13-16 á
morgun en áhugasömum er einnig
bent á heimasíðuna www.startart.is
Von er á breska leikhópnum
Cheek by Jowl hingað til lands
en sá virti félagskapur mun setja
upp leikritið Cymbeline, Simli
konung, eftir Shakespeare í Þjóð-
leikhúsinu í maí. Hópurinn frum-
sýndi verkið í París í febrúar og
ferðast nú með það um Evrópu en
dómar um uppfærsluna eru afar
lofsamlegir.
Í umsögnum um sýninguna eru
leikararnir sagðir sýna snilldar-
leik og „ná að galdra fram því-
líka orku að áhorfendur sitji agn-
dofa eftir“. Aðrir hafa sagt að
sýningin jaðri við fullkomnun, þó
söguþráðurinn sé flókinn sé hann
settur fram á svo skýran hátt að
áhorfendur geti ekki annað en
fyllst aðdáun.
Verkið hefur aldrei fyrr verið
sett á svið hér á landi. Þó þarna
sé á ferð eitt af minna þekktum
verkum Shakespeares er það að
margra mati eitt af merkustu
verkum eins mesta leikritaskálds
allra tíma og skrifað þegar hann
var á hátindi síns listræna ferils.
Cheek by Jowl hefur átt stór-
an þátt í að breyta ásýnd bresks
leikhúss undanfarin ár en vinna
forsprakkaans, leikstjórans Dec-
lan Donnelan og Nicks Ormerod
með sígild leikverk hefur vakið
athygli úti um allan heim.
Alls verða fjórar sýningar hér
en hópurinn kemur hingað beint
frá BAM-leiklistarhátíðinni í
New York, en héðan fer hópurinn
svo til London, þar sem sýningin
verður frumflutt í Barbican leik-
húsinu 24. maí.
Næsta fullkomin