Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 44
BLS. 4 | sirkus | 16. MARS 2007 NÝTT HÁMARKS ÞYKKT ÓTRÚLEGA JÖFN ÁFERÐ Hefðbundinn þykkingar maskari Nýji Masterpiece MAX maskarinn * NEWVOLUMISING iFX BRUSH TECHNOLOGY Official mascara of Milan Fashion Week *lash comparison as illustration only www.medico.is Útsölustaðir MAX FACTOR HAGKAUP – Smáralind, LYF og HEILSA – Kringlunni, LYF og HEILSA Austurveri, LYF og HEILSA – Gjánni, Kóp., LYF og HEILSA Glæsibær, LYF og HEILSA - Fjarðarkaup, Hf., RIMA Apótek – Grafavogi, LYFJAVAL/ Bílaapótekið – Hæðarsmára, Snyrtivöruverslunin NANA – Hólagarði, ÁRBÆJAR Apótek, GARÐS Apótek. Landið: LYF og HEILSA – Hrísalundi, Akureyri, KS – Sauðárkróki,TÖFF - Húsavík Þ etta var alveg meiri háttar gaman. Það var ótrúlega góð stemning og sennilega spilar það eitthvað inn í að þetta var síðasta árshátíð fyrirtækisins í núverandi mynd,“ segir fréttakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir en hún var veislustjóri á árshátíð RÚV sem haldin var um síðustu helgi á Hótel Loftleiðum. Jóhanna Vigdís segir að mætingin hafi verið frábær og um 350 manns hafi verið þegar mest var. Sniglabandið lék fyrir dansi og afar góður rómur var gerður að spila- mennskunni. Jóhanna Vigdís mætti til leiks í hvítum kjól og skóm í stíl. „Ég keypti kjólinn í Mondo á Laugaveginum fyrir fjórum eða fimm árum. Hún var þá aðalkjólabúðin,“ segir Jóhanna Vigdís við Sirkus. Töskuna segir hún vera gjöf frá manninum sínum. „Þetta er Fendi, ansi fín taska. Hann sá um að kaupa hana. Ég er með töskudellu á háu stigi,“ segir Jóhanna Vigdís. Allar helstu stjörnur stofnunarinn- ar mættu á hátíðina og mátti þar meðal annars sjá Kastljósdrottning- una og Eurovision-kynninn Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur ásamt unnusta sínum Hauki Inga Guðnasyni fótboltakappa úr Fylki. Ragnhildur Steinunn var afar glæsileg í bleikum kjól og aðspurð sagði hún kjólinn vera frá Birtu Björns í Júníform. „Ég var svo heppin að Birta hringdi í mig þegar ég var í klippingu og sagðist vera með kjól fyrir mig á árshátíðina. Ég þurfti ekki að hugsa mig um tvisvar,“ segir Ragnhildur Steinunn en er þó enn ánægðari með bleika hattinn sem hún bar á höfðinu. „Ég bjó þetta sjálf til og er greinilega með dulda listræna hæfileika. Ég held að ég hafi náð að spara mér tíu þúsund krónur með því. Sigmar, félagi minn í Kastljósinu, kallaði hann bleikan fuglaflensuhatt og það er kannski réttnefni,“ segir Ragnhildur Steinunn í samtali við Sirkus. Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, var einnig mættur á svæðið ásamt sinn heittelskuðu, flugfreyj- unni Brynju Nordqvist. Brynja var stórglæsileg í kjól frá Stellu McCartn- ey og með Chanel-tösku. „Ég keypti kjólinn í London fyrir árshátíð Flugleiða,“ segir Brynja í samtali við Sirkus. Athygli vakti að Þórhallur var ekki með bindi líkt og flestir karl- menn á hátíðinni en Brynja segist vera sátt við hann þannig. „Það er ekki hægt að fá hann til að vera með bindi. Bolli vinur hans gaf honum einu sinni svart bindi en það endaði í einhverri söfnun. Hann setti það einu sinni upp á jólum en það var farið áður en gengið var frá borðum,“ segir Brynja og hlær. Páll Magnússon útvarpsstjóri lét sig ekki vanta og var með eiginkonu sína Hildi Hilmarsdóttur flugfreyju upp á arminn. Líkt og ævinlega voru þau óaðfinnanlega klædd. Aðspurð um kjólinn sem hún klæddist segist Hildur hafa keypt hann í New York fyrir árshátíð Flugleiða. „Við komumst reyndar ekki á þá árshátíð þar sem Páll var veikur og því frumsýndi ég kjólinn núna,“ segir Hildur við Sirkus. Hún segist þó ekkert hafa haft um föt Páls að segja þar sem Sævar Karl velur öll föt á hann. „Sævar er mikill smekkmaður og Páll fer í það sem honum er sagt að fara í. Hann hefur enga skoðun. Ég vel gallabuxurnar á hann og Sævar Karl jakkafötin,“ segir Hildur. oskar@frettabladid.is SÍÐASTA ÁRSHÁTÍÐ RÚV Í NÚVERANDI MYND HALDIN Á HÓTEL LOFTLEIÐUM Ragnhildur Steinunn með heimatilbúinn hatt Jón Ásgeir Jóhannesson Stærsti eigandi Gaums sem á um 2/3 af heimsveld- inu Baugur Group. Gleymdist hann? Ólafur Ólafsson Verðmæti hlutar hans í Kaupþingi einu er um 80 milljarðar sem er töluvert meira en sá 1 milljarður dala sem þarf til að komast á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Ágúst og Lýður Guðmunds- synir Bakkabræður líða örugglega fyrir að vera saman. Eignir þeirra eru ógurlegar í fjárfestingafélaginu Exista og hlaupa á um 170 milljörðum. Hversu mikið af því er hrein eign er erfitt að dæma um en sennilega það stór hluti að þeir eru alveg á bjargbrúninni að komast inn á listann. ALDREI MEÐ BINDI Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, og kona hans Brynja Nordqvist flugfreyja voru glæsileg á árshátíðinni. Þórhallur var ekki með bindi frekar en fyrri daginn. SIRKUSMYND/HRÖNN SÆT Í BLEIKU Kastljósdrottningin Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var sérstaklega glæsileg í bleikum kjól þegar hún mætti á árshátíðina með unnusta sínum, Hauki Inga Guðnasyni. SIRKUSMYND/HRÖNN VEISLUSTJÓRINN MEÐ TÖSKUDELLU Fréttakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og eiginmaður hennar Guðmundur Magnússon voru elegant. Jóhanna Vigdís var veislustjóri og mætti til leiks í hvítum kjól og skóm í stíl. Hún var að sjálfsögðu með tösku enda þekkt fyrir töskudellu sína. SIRKUSMYND/HRÖNN SÆVAR KARL VELUR FÖTIN Útvarpsstjór- inn Páll Magnússon og eiginkona hans, Hildur Hilmarsdóttir flugfreyja, voru í sínu fínasta pússi á Hótel Loftleiðum á laugardaginn. Páll notar aðeins það besta eins og frægt er orðið og valdi Sævar Karl fötin á æðsta prest útvarpsins. SIRKUSMYND/HRÖNN SEM HEFÐU GETAÐ KOMIST Á LISTA YFIR RÍKUSTU MENN HEIMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.