Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 58
 16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið kópavogur Um 250 nemendur leggja stund á nám í hótel- og mat- vælagreinum í Menntaskólan- um í Kópavogi. Kennsla í matreiðslu er í fullum gangi þegar Fréttablaðið ber að garði í Menntaskólanum í Kópa- vogi. Kaldur diskur er verkefni dagsins hjá kokkanemunum en nemendur í kjötiðn huga að pylsum sem þeir ætla að bjóða upp á næsta dag, á æfingu sem ber nafnið „Kjöt, brauð og vín“. Þar stilla saman strengi sína bakaranemar, nemendur í kjötiðn og í fram- reiðslu. Í matsal kennara bera nemend- ur á starfskynningarbraut kræs- ingar í kennarana sem gæða sér á listilega tilreiddum vatnafiski frá Víetnam. Baldur Sæmundsson er áfanga- stjóri hótel- og matvælagreina hjá Menntaskólanum í Kópavogi. „Deildin okkar skiptist í fernt: bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu,“ fræðir Baldur okkur um. Hann bætir við að einnig sé boðið upp á starfskynningarbraut fyrir nýútskrifaða nemendur úr tíunda bekk sem viti ekki enn hvað af þessu þá langi til að læra. „Starfskynningarbrautin er ein önn en eftir það reynum við að hjálpa þeim að komast á samning,“ segir Baldur. Langflestir nemend- ur í hótel- og matvælagreinum eru með starfssamninga enda fer stór hluti námsins fram utan skólans. Um 1.200 nemendur stunda nám í Menntaskólanum í Kópa- vogi, þar af eru um 250 í hótel- og matvælagreinum en þó misjafnt eftir önnum. „Matreiðslan er alltaf vinsæl og við höfum haldið nokkuð svipuðum fjölda þar síðustu tíu árin. Við erum að útskrifa að með- altali um 24 matreiðslumenn á ári, um 13 framreiðslumenn en veru- lega færri í bakstri og kjötiðn,“ segir Baldur og tekur fram að stundum hafi heilar annir liðið án þess að nokkur hafi verið útskrif- aður úr þeim greinum. „Það er mikil vöntun á fólki í öllum þessum greinum og með auknum ferðamannastraumi eykst eftir- spurnin eftir lærðum kokkum og framreiðslumönnum. Það segir sig sjálft að 24 kokkar á ári og 12 þjónar duga lítið til að anna þörf- inni,“ segir Baldur og vill meina að ásókn í hótel- og matvælagrein- arnar fari mikið eftir efnahags- sveiflum landsins. „Í góðæri fer fólk frekar í bóknám og vinnur svo þessar greinar oft í auka- starfi,“ segir Baldur og áréttar að næga vinnu sé að fá og störfin séu oft vel launuð. Mikil eftirspurn eftir fólki úr hótel- og matvælagreinum Nemendur í matreiðslu fylgjast grannt með í kennslustund en þennan dag átti að útbúa kaldan disk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég heyrði því fleygt að skólinn noti jafnmikið rafmagn og Hvammstangi, enda erum við með mikið af eldavélum, tólum og tækjum.“ Matreiðsla getur verið nákvæmnisverk. Nemandi á starfskynningarbraut eys súpu í skál fyrir kennarana. „Hér þarf enginn kennari að fara út að borða.“ Kennarar Menntaskólans í Kópavogi fá oft að smakka framandi mat líkt og þennan Pangus-fisk sem er vatnafiskur frá Víetnam.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.