Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 102
Handknattleiksdeild
ÍBV hefur ákveðið að kæra Guð-
mund Kr. Erlendsson, formann
dómaranefndar HSÍ, til dóm-
stóls HSÍ vegna meintrar hegðun-
ar hans í garð Einars Jónssonar,
þjálfara ÍBV, eftir leik Eyjamanna
og HK í síðustu viku.
ÍBV kærði Guðmund upphaf-
lega til aganefndar en aganefnd sá
ekki ástæðu til að aðhafast í mál-
inu. Formaður handknattleiks-
deildar ÍBV, Hlynur Sigmarsson,
segist ætla með málið alla leið
fyrir ÍSÍ ef á þurfi að halda.
„Þessi niðurstaða kemur mér
ekki á óvart. Ef eitthvert mál
snertir HSÍ þá er því sópað undir
teppið. Einhver starfsmaður HK
sá ekkert athugavert við atvik-
ið og það er eina vitnið sem aga-
nefndin talar við en við höfðum
bent á nokkur vitni okkar máli til
stuðnings,“ sagði Hlynur sem er
langt frá því að vera ánægður með
þessi vinnubrögð sem og HSÍ.
„Við erum að kæra þetta núna
til dómstóls HSÍ enda finnst okkur
þessi niðurstaða vanvirðing. Dóm-
arar og HSÍ eru að kenna okkur
hvernig skuli haga sér á leikjum
og svo ganga þeir fram með þess-
um hætti og það er í góðu lagi.
Þess vegna ætlum við með þetta
alla leið í íþróttadómstólakerfinu.
Það á jafnt yfir alla að ganga. Ann-
ars er mjög áhugavert að það er
alveg sama hvað við kærum, við
vinnum aldrei. Ég veit ekki hvað
ég hef kært mörg mál til HSÍ, ég
hef aldrei unnið. Ekki eitt einasta
mál. Þetta er hætt að vera fynd-
ið. Ætla menn að segja mér að öll
þessi mál hafi verið byggð á vond-
um og veikum grunni?“ sagði
Hlynur hundfúll.
Einar Jónsson, þjálfari ÍBV,
fékk rautt spjald í leiknum sem
um ræðir og hann furðar sig á því
að hafa aðeins fengið einn leik
í bann þar sem dómararnir hafi
skrifað á skýrsluna að hann hafi
haft í frammi grófa og óíþrótta-
mannslega framkomu að því er
hann segir.
„Ég held að ástæðan fyrir þess-
um væga dómi sé sú að fá mig til
að hætta að tuða. Ég veit það samt
ekki en mig grunar það. Ég spurði
marga dómara út í málið og þeir
sögðu allir að ég ætti að fá tvo
leiki vegna þess sem var skrifað á
skýrsluna,“ sagði Einar.
Það var ekki bara ÍBV sem
kærði Guðmund heldur kærði
hann Einar Jónsson á móti fyrir
sína meintu hegðun. Aganefnd sá
heldur ekki ástæðu til að aðhafast
í því máli en athygli vekur að aga-
nefnd taki kæru Guðmundar fyrir
en hann var ekki starfsmaður á
leiknum heldur áhorfandi.
Fréttablaðið hafði samband við
Guðmund í gær en hann gat ekki
tjáð sig um málið þar sem hann
var upptekinn á fundi.
ÍBV hefur kært Guðmund Kr. Erlendsson, formann dómaranefndar HSÍ, til
dómstóls HSÍ eftir að aganefnd HSÍ sá ekki ástæðu til að taka á meintri hegðun
Guðmundar við þjálfara ÍBV. Guðmundur kærði þjálfara ÍBV á móti.
Það hefur gustað um
Guðmund Kr. Erlendsson, for-
mann dómaranefndar HSÍ, síð-
ustu daga en eins og lesa má hér
að ofan hefur ÍBV ákveðið að kæra
meinta hegðun hans til dómstóls
HSÍ og er til í að fara með málið
lengra verði niðurstaða þess dóm-
stóls ekki sú sem ÍBV væntir.
Fréttablaðið hefur heyrt í fjöl-
mörgum þjálfurum síðustu daga
sem hafa gefið sig fram eftir að
ÍBV kærði Guðmund og rætt við
þá um samskipti sín við formann-
inn.
Enginn þeirra ber Guðmundi
vel söguna og allir hafa svipaða
sögu að segja um hegðun Guð-
mundar – að hann sé kjaftfor og
hrokafullur líkt og Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar,
sagði í viðtali við Fréttablaðið á
dögunum. Þeir eru á einu máli um
að nauðsynlegt sé að skipta Guð-
mundi út sem formanni dómara-
nefndar. Fréttablaðið hefur einnig
rætt við fyrrum dómara sem eru á
sama máli.
Þeir Kristinn Guðmundsson og
Erlingur Richardsson, sem voru
með ÍBV-liðið í fyrra, eru á meðal
þeirra sem hafa tjáð Fréttablað-
inu sögur af samskiptum sínum
við Guðmund. Haddur Stefáns-
son, fyrrum þjálfari KA/Þórs, og
Karl Erlingsson, aðstoðarmaður
kvennaliðs Vals, hafa líka tjáð sig.
Þeir hafa borið vitni um óeðlileg
afskipti Guðmundar af dómurum
og þjálfurum eftir leiki þar sem
hann hefur meðal annars verið
viðstaddur skýrslugerð dómara
þótt hann hafi eingöngu verið
áhorfandi á viðkomandi leikjum.
Hann hafi í sumum tilvikum lent
í orðaskaki við þjálfara fyrir utan
búningsklefa áður en hann hvarf
inn í klefa með dómurum.
Eyjaþjálfararnir fyrrverandi
vilja síðan meina að Guðmundur
hafi gengið allt of langt í leik ÍR og
ÍBV í fyrra er hann hrinti Erlingi
harkalega á aðstoðarmann sinn.
Guðmundur sagðist vera upp-
tekinn á fundi fram á kvöld þegar
Fréttablaðið heyrði í honum um
tvöleytið í gær. Hann gæti þar af
leiðandi ekki tjáð sig.
Vilja Guðmund úr stóli formanns dómaranefndar
Ekki í vafa um að ég geti bætt liðið
Raymond Domenech,
landsliðsþjálfari Frakka í fót-
bolta, er búinn að fá sig fullsadd-
an af gagnrýni landa síns, Arsene
Wenger, stjóra Arsenal. Wenger
kenndi leikjaálagi franska lands-
liðsins um slæma frammistöðu
Thierry Henry á þessu tímabili.
„Ég er orðinn virkilega leið-
ur á herra Wenger. Hann veit ekki
allt og hefur ekki einkaleyfi á að
fá sitt fram í fótboltaumhverf-
inu. Wenger er að kenna leikjum
í ágúst um meiðsli í mars,“ sagði
Domenech en Henry verður ekk-
ert meira með á tímabilinu eftir
að hann reif maga- og náravöðva
í tapleiknum á móti PSV í Meist-
aradeildinni á dögunum.
Wenger talaði um að Henry
sé búinn að missa af fjölmörgum
leikjum með Arsenal í vetur en
hafi hins vegar leikið alla lands-
leiki, frá upphafi til enda, frá 16.
ágúst.
Búinn að fá
nóg af Wenger
Brasilíumaðurinn Dedé
Anderson er liðsfélagi Harald-
ar Guðmundssonar í norska úr-
valsdeildarliðinu Aalesund og var
markahæsti leikmaður liðsins á
síðasta tímabili með 14 mörk.
Dedé fór heim til Brasilíu eftir
tímabilið og átti að snúa til baka
í janúar en enn hefur ekkert til
hans spurst. Fyrst sagðist hann
þurfa að vera hjá veikum föður
sínum en nú eftir tveggja mánaða
bið hefur félagið endanlega misst
þolinmæðina.
Málið er á leiðinni til FIFA
og félagið hefur stoppað launa-
greiðslur til kappans. Hann er þó
hvergi laus sinna mála og félagið
mun ekki hleypa honum til annars
liðs. Aalesund tilkynnti það líka
í gær að Dedé myndi ekki spila
meira með a-liðinu og verður að
dúsa í varaliðinu þar til að samn-
ingur hans rennur út.
Ennþá í jólafríi
Guðjón Baldvinsson er
ekki á leið til Víkings en Frétta-
blaðið skýrði frá því að félagið ætti
ásamt Fylki í viðræðum við Stjörn-
una um kaup á Guðjóni Baldvins-
syni. Heimildir Fréttablaðsins
herma að Guðjón sé á leið til Fylkis
en það vildu hvorki Eysteinn Har-
aldsson hjá Stjörnunni né Hörður
Antonsson hjá Fylki staðfesta.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að Fylkir sé tilbúið að greiða allt
að 4 milljónum króna fyrir Guðjón.
Víkingar voru til í að greiða allt að
þrem milljónum fyrir leikmann-
inn en án árangurs. Þegar Magnús
Gylfason, þjálfari Víkings, heyrði í
hvað kaupverðið stefndi sagði hann
sínum mönnum að draga í land þar
sem hinn ungi og óreyndi Guðjón
væri ekki virði slíkrar fjárhæðar.
Guðjón of dýr
Helena Sverrisdóttir,
fyrirliði Hauka, var með þrefalda
tvennu í naumum 81-79 sigri liðs-
ins í Keflavík en Helena kom inn
af bekknum í leiknum.
Helena var með 17 stig, 14
fráköst og 13 stoðsendingar í
leiknum en þetta er í þriðja sinn
í deildinni sem hún nær þrefaldri
tvennu. Aðeins tveir aðrir leik-
menn náðu þrefaldri tvennu í
deildinni í vetur, Margrét Kara
Sturludóttir úr Keflavík og Anne
Flesland leikmaður Hamars.
Þreföld tvenna
af bekknum