Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 8
Ósamræmi var í fram-
burði saksóknara sem hafði yfir-
umsjón með rannsókn Baugsmáls-
ins og eins af lögreglufulltrúun-
um sem rannsakaði málið, þegar
þeir voru spurðir um fyrstu yfir-
heyrsluna yfir Jóni Gerald Sullen-
berger í dómsal í gær.
Jón H. Snorrason, fyrrverandi
saksóknari efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra, sem stýrði
rannsókninni í Baugsmálinu,
sagði að fyrsta yfirheyrslan yfir
Jóni Gerald hefði farið fram laug-
ardaginn 24. ágúst 2002.
Sveinn Ingiberg Magnús-
son, lögreglufulltrúi hjá rík-
islögreglustjóra, sagði það
hljóta að vera misminni,
fyrsta yfirheyrslan hefði
farið fram sunnudag-
inn 25. ágúst. Það myndi
hann vel því hann hefði
verið á ættarmóti á laugardegin-
um, og því fjölmörg vitni sem væri
hægt að kalla fyrir dóminn til að
bera um það.
Jón H. skýrði einnig hvernig það
hafi komið til að hann hafi sótt Jón
Gerald þennan morgun. Hann sagð-
ist hafa átt erindi í Hafnarfjörð, og
því hafi hentað betur að sækja Jón
Gerald í Kópavoginn heldur en að
láta hann koma sjálfan, enda skrif-
stofan lokuð um helgina og enginn
í móttökunni.
Verjendur spurðu bæði Jón H.
og Svein um nokkur tilvik þar sem
sakborningar eða vitni komu með
ábendingar um eitthvað sem þyrfti
að rannsaka, og ekki var sinnt af
lögreglu.
Báðir sögðu að ávallt hefðu
verið rannsakaðar þær ábending-
ar sem þóttu koma atvikum sem
voru til rannsóknar við, og Jón H.
sagði að hætt hefði verið við að
rannsaka frekar tugi atvika vegna
ábendinga sakborninga þar sem
grunur var um eitthvert saknæmt
í upphafi. Þannig hafi jafnt verið
rannsökuð atriði sem þóttu horfa
til sýknu og þau sem þóttu horfa
til sektar.
Þannig spurði Gestur Jónsson,
verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, Jón H. hvers vegna sam-
skipti Baugs við Simon‘s Agentur
hafi ekki verið rannsökuð eftir að
Jón Ásgeir benti ítrekað á að þau
væru sambærileg og viðskiptin
við Nordica.
„Mér finnst þetta vera eins og að
bera saman epli og appelsínur,“
sagði Jón H., sem sagði að engin
ástæða hefði verið til að hefja
rannsókn á samskiptum
Baugs og Simon‘s Agentur.
Ummæli Jóns Ásgeirs í
yfirheyrslum hafi hann
ekki litið á sem ábendingu, enda
hafi Jón Ásgeir minnst á það tvisv-
ar, en ekki óskað sérstaklega eftir
því að þetta yrði rannsakað.
Jón H. var einnig spurður út
í símtal sem hann átti við Helga
Sigurðsson, lögmann hjá Kaup-
þingi, um svipað leyti og uppruna-
leg ákæra var gefin út, í byrjun
júlí 2005. Helgi hafði fyrir dómi
lýst því hvernig símtalið endaði á
því að fagnaðarlæti sem minntu á
lætin á fótboltaleik hafi brotist út
á skrifstofu Jóns H. þegar hann
skýrði frá því að hann hefði engin
gögn fundið sem styddu skýringar
sakborninga.
„Þetta er auðvitað alveg frá-
leitt,“ sagði Jón H., sem sagðist
muna vel eftir þessu símtali. Hann
hafi verið einn á skrifstofu sinni og
skildi til að byrja með ekki hverju
hann hefði átt að vera að fagna.
Ósamræmi
hjá lögreglu
Lögreglumönnum ber ekki saman um hvenær
fyrsta yfirheyrslan yfir Jóni Gerald Sullenberger fór
fram. Hætt var við rannsókn á tugum tilvika vegna
ábendinga frá sakborningum sem þóttu réttmætar.
BAUGS M Á L I Ð
Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg
verður ekki breytt í hótel. Fyrirtækið Heilsuverndar-
stöðin ehf., sem er dótturfyrirtæki InPro, hefur tekið
yfir rekstur hússins með það fyrir augum að endur-
reisa Heilsuverndarstöðina og endurvekja hin upp-
runalegu gildi hennar: Að efla andlega, líkamlega og
félagslega heilsu landsmanna. Þar verður opnuð al-
hliða heilsuverndarstöð þar sem læknar, sjúkraþjálf-
arar, næringarfræðingar, sálfræðingar og annað fag-
fólk úr heilbrigðisgeiranum mun starfa.
„Heilsuverndarstöðin verður vettvangur fyrir fag-
fólk sem starfar við heilsueflingu og heilsuvernd,“
segir Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Þróunar-
sviðs InPro. „Hér munu einstaklingar fá þjónustu á
borð við endurhæfingu eftir slys. Markmið okkar er
ekki síður að starfa á fyrirtækjavettvangi og munu at-
vinnurekendur geta leitað til okkar um þjónustu á sviði
heilsuverndar,“ segir Gestur. Í Heilsuverndarstöðinni
verða sérfræðingar með stofur sem allir vinna saman
eftir stefnu hússins. Heilsuverndarstöðin var seld
einkaaðila í lok janúar eftir að starfsemi hennar var
flutt annað. Stefnt er að því að nýja Heilsuverndarstöð-
in hefji starfsemi 1. október.