Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 10

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 10
„Staðan er einfaldlega sú að það eru brotin réttindi á blindum og sjónskertum börnum og nemendum á öllum skólastig- um,“ sagði Björgvin G. Sigurðs- son, þingmaður Samfylkingarinn- ar, við umræður á Alþingi í gær. Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingar, hóf við upphaf þing- fundar í gær umræðu um stöðu blindra og sjónskertra barna í skólakerfinu. Helgi sagði að þrátt fyrir að þrjú ár væru liðin frá því starfshópur hefði skil- að niðurstððu um að stofna beri þekkingarmiðstöð vegna þessara barna hefði enn ekkert gerst. Að- eins einn ráðgjafi væri nú fyrir kennara varðandi kennslu um eitt hundrað blindra og sjónskertra nemenda á öllum skólastigum. Aðstöðuleysi blindra skólabarna á Íslandi væri einstakt. „Hér sjáum við viðtöl við for- eldra blindra barna sem taka sig upp með rótum, fjölskyldur sínar, til þess að flýja vonda þjónustu okkar í íslenska skólakerfinu,“ sagði Helgi. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráðherra úr Sjálfstæðisflokki, sagði marga þurfa að koma að málinu. Nú hefðu borgarstjóri, heilbrigðis- ráðherra og félagsmálaráðherra allir lýst vilja til framkvæmda. „Þess vegna greip ég tækifær- ið og ákvað í samráði við meðal annars Blindrafélagið að skipa nefnd; ekki bara eina nefndina enn heldur framkvæmdahóp sem hefur það hlutverk að setja hlut- ina í farveg þannig að þeir komist til framkvæmda,“ sagði Þorgerð- ur Katrín. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður vinstri grænna, sagði dap- urlegt að þurfa að reka á eftir menntamálaráðherra. „Því miður er þetta ekki einsdæmi því við þekkjum það hér að málefni heyrnarskertra og heyrnarlausra hafa líka verið látin reka á reiðan- um hjá þessari ríkisstjórn,“ sagði Kolbrún sem hvatti menntamála- ráðherra til að grípa strax í taum- ana. Þuríður Backman, þingmaður vinstri grænna, sagði málið hrein- lega vera spurningu um mann- réttindi. Ekki ætti að láta tefja fyrir að margir þyrftu að koma að borðinu. „Fyrst og fremst á að greina þarfirnar og þjónustuna og síðan á að ganga frá hinu á eftir,“ sagði Þuríður. Helgi Hjörvar tók í svipaðan streng. „Þegar kerfið er þungt og silalegt og þegar kerfið virk- ar ekki og þegar réttindi eru brot- in, ekki síst á börnum, þá þarf ein- mitt að taka af skarið,“ sagði Helgi og skoraði á ráðherra að lýsa því strax yfir úr ræðustól Alþingis að hún myndi sjá til þess að þekking- armiðstöðinni yrði komið á fót. Menntamálaráðherra sagði að einmitt væri verið að taka af skar- ið. „Kerfið verður bara einfald- lega að laga sig að þörfunum. Það er þess vegna sem ég setti fram- kvæmdahóp sem hefur það mark- mið að koma þekkingarmiðstöð á laggirnar,“ sagði Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir. Þingmenn segja réttindi brotin á blindum börnum Menntamálaráðherra skipar framkvæmdahóp til að undirbúa þekkingarmiðstöð fyrir blinda nemendur. Stjórnarandstaðan segir málið ekki þola bið. Ráðherra hvattur til að tryggja strax réttindi blindra barna. Írar eru mestu drykkjurút- arnir í Evrópu samkvæmt könnun Evrópusambandsins um viðhorf til áfengra drykkja. Óhófsdrykkja, eða „binge- drinking“, orðatiltæki notað yfir þá athöfn að fá sér fimm eða fleiri áfenga drykki í einni setu, er al- gengust hjá Írum. Á það við um einn af hverjum þremur. Að meðaltali drekkur einn af hverjum tíu Evrópubúum meira en fimm drykki í einni setu og er aldurshópurinn 15-24 ára algeng- astur. Viðvörunarljós loga hjá Írum núna þar sem dagur hins heil- aga Patreks er á næstu grösum og venjulega fylgir mikil drykkja þeim gleðskap. Írar hafa margir hverjir áhyggj- ur af viðhorfi ungmenna til neyslu áfengra drykkja. Hefur kaþólska kirkjan bæst í hóp þeirra er vara við óhóflegri drykkju. Löggæsla verður hert á meðan á hátíðinni stendur og þrýst hefur verið á söluaðila að takmarka afgreiðslu- tíma til að stemma stigu við mik- illi drykkju. Á listanum yfir drykkju í óhófi eru Finnar ekki langt á eftir Írum, svo koma Bretar og Danir. Tals- vert neðar á listanum koma svo Portúgalar, Ítalir og loks Grikkir. Enduruppbyggingu elsta húss miðborgar- innar er lokið. Sem tákn um það festu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fulltrúar Minjavernd- ar á miðvikudag upp skjöld utan á Aðalstræti 10. Húsið í Aðalstræti 10 var reist árið 1762 og er því elst húsa í miðborg Reykjavíkur. Viðeyjarstofa, sem reist var 1755, er elsta hús Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg var Aðalstræti 10 upphaflega notað sem klæða- geymsla. Meðal þeirra sem hafa átt aðsetur í hús- inu er Jón Sigurðsson forseti. Kaupmennirnir Silli og Valdi keyptu það árið 1926 og ráku þar verslun í áratugi. Frá árinu 1984 hafa ýmsir veitingastaðir verið þar til húsa, meðal annars Fógetinn. Reykja- víkurborg keypti Aðalstræti 10 árið 2001 og hófst enduruppbygging hússins haustið 2005. Að baki gamla húsinu hefur verið byggt nýtt steinhús, af svipaðri stærð og lögun og það gamla. Húsin tengjast með glerskála. Á neðri hæð gamla hússins verður Reykjavíkurborg með aðstöðu til að sýna sögu hússins og götunnar. Þá mun hópur ís- lenskra hönnuða og fjárfesta hafa stofnað fyrirtæki um verslun til að selja íslenska hönnunarvöru í hús- inu. Íslensk hönnun í Fógetahúsið Rúmlega tvítug kona til heimilis í Reykjavík hefur verið ákærð fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur fyrir að veitast að tveimur lögreglumönnum, sparka í annan og reyna að bíta hinn. Atburðurinn átti sér stað á Fá- skrúðsfirði aðfaranótt sunnu- dags í júli á síðasta ári. Konan veittist að lögreglumönnunum þar sem þeir voru við skyldu- störf, reyndi sparkaði í maga annars þeirra og reyndi að bíta hinn í handlegginn. Embætti ríkissaksóknara krefst þess að hún verði dæmd til refsingar fyrir athæfið. Sparkaði í lög- reglumann Svíar eru í sjokki. Meðan Svíar fagna því að barna- bókahöfundurinn Astrid Lindgren hefði orðið tíræð sýnir norska sjón- varpið stuttmyndaseríu um Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren þar sem blandað er grófu kynlífi, áfengi og eiturlyfjum í þættina, að sögn sænskra og norskra blaða. Ingegerd Sahlström, formað- ur Astrid Lindgren-samtakanna, er öskureið. „Ég get bara sagt að þetta er gróf móðgun við Astrid Lindgren. Að vera með kynlífsat- riði og eiturlyf er langt frá þeim gildum sem Lindgren stóð fyrir,“ segir hún í sænska blaðinu Ex- pressen og kveðst aldrei hafa vitað annað eins, um grófa misnotkun sé að ræða. Dóp og kynlíf í Kattholti Emils Allsherjarnefnd Al- þingis leggur til að átján fái ís- lenskan ríkisborgararétt, sam- kvæmt lögum þar að lútandi. Fjórir eru fæddir á Íslandi og tveir í Serbíu en aðrir í Kína, Gíneu, Japan, Malaví, Þýskalandi, Brasilíu, Kanada, Afganistan, Túrkmenistan, Frakklandi, Gvate- mala og á Filippseyjum. Yngstur í hópnum er tíu ára piltur en elstur er 71 árs karl. Alls 36 sóttu um að verða ís- lenskir ríkisborgarar en helm- ingnum var hafnað. Átján fái ís- lenskan ríkis- borgararétt 3.250kr.SPARAÐU 3.250kr.SPARAÐU 3.250SPARAÐU 3.250kr.SPARAÐU 3.250kr.SPARAÐU Vnr.86620140-3737 Innimálning KÓPAL Glitra innimálning, 4 ltr, gljástig 10. 1.990 5.240 4 ltr.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.