Fréttablaðið - 16.03.2007, Qupperneq 42
BLS. 2 | sirkus | 16. MARS 2007
Heyrst hefur
Saman á Galileó
Skötuhjúin Halla
Vilhjálmsdóttir og
Kristján Ragnar
Kristjánsson virðast
hafa fundið ástina á
nýjan leik eftir að hafa
hætt saman fyrir
skömmu. Það sást til turtildúfnanna á
ítalska veitingastaðnum Galileó á
föstudagskvöldið eftir X Faktor-þáttinn
þar sem þau snæddu saman og létu vel
hvort að öðru. Ekki er langt
síðan Halla sást á öðrum
veitingastað í borginni með
ekki ófrægari manni en Jude
Law en hún virðist hafa
kastað sér í faðm
athafnamannsins
Kristjáns á nýjan
leik.
Fór í splitt í hléinu
Og meira af
Höllu
Vilhjálms-
dóttur því hún
hefur verið
gagnrýnd
nokkuð fyrir frammistöðu sína sem
kynnir í X Faktor-þáttunum. Hefur
mörgum þótt hún vera fullstíf en slíkt var
ekki uppi á teningnum síðastliðið
föstudagskvöld. Þá lék hún á als oddi,
sérstaklega í auglýsingahléunum og fór
létt með að halda góðri stemningu
meðal áhorfendanna í sal á meðan beðið
var ásamt Eyþóri sviðsstjóra. Halla lét
meðal annars undan stífri pressu
áhorfenda og skellti sér í splitt í
prinsessukjólnum sínum við mikinn
fögnuð.
Fjórir fara til London
Þeir fjórir keppendur
sem komast áfram í
X-Faktor í kvöld,
föstudagskvöld,
munu halda til
London og dvelja þar
um helgina. Það er
því til mikils að vinna
fyrir keppendurna
enda ætti slík ferð að
verða eftirminnileg. Ekki skemmir heldur
fyrir að Einar Bárðarson, einn þriggja
dómara keppninnar, hefur verið með
annan fótinn í London undanfarin misseri
og þekkir borgina eins og handarbakið á
sér. Hann væri því örugglega fyrirtaks
leiðsögumaður fyrir hópinn.
Með sitt eigið lag fyrir
hringingu
Sveinn Rúnar Sigurðsson, höfundur
Eurovision-lagsins Ég les í lófa þínum
sem verður framlag okkar Íslendinga
þetta árið í Helsinki í maí, nýtir hvert
tækifæri sem gefst til að kynna lagið.
Boðið hefur verið upp á bút úr laginu
sem hringitón fyrir farsíma og var Sveinn
ekki lengi að hlaða bútnum niður þegar
það bauðst. Lagið hljómar nú í hvert
skipti sem sími Sveins Rúnars hringir og
segir sagan að hann syngi með í hvert
sinn.
M illjarðamæringurinn Björgólfur Thor Björ-gólfsson, sem er ríkasti maður Íslands og númer 249 á lista bandaríska viðskipta-
tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn heims, fagnar
fertugsafmæli sínu næstkomandi mánudag, 19.
mars.
Miðað við umfang þeirra veislna sem auðkýfing-
ar landsins hafa haldið undanfarna mánuði hefði
mátt búast við því að Björgólfur Thor myndi leigja
Egilshöllina og fá Rolling Stones eða U2 til að spila
í afmælinu en slík verður ekki raunin. Heimildir
Sirkuss herma að Björgólfur Thor sé nú farinn í
langþráð frí með unnustu sinni Kristínu Ólafsdótt-
ur og barni þeirra og muni eyða afmælisdeginum
með þeim fjarri Íslandi. Hann ætli sér síðan að
bjóða vinum og vandamönnum í fimm daga
óvissuferð í lok mánaðarins.
Þegar Sirkus hafði samband við Ásgeir Friðgeirs-
son, talsmann Björgólfs Thors, sagðist hann ekki
vita mikið um fyrirhugaðan afmælisfagnað. „Mér
er nú líka haldið í óvissu enda er þetta óvissuferð,“
segir Ásgeir og hlær. Hann gat
þó staðfest að Björgólfur
Thor myndi bjóða í
óvissuferð út
í heim.
Ásgeir gat hins vegar engan veginn sagt til um
hversu margir væru boðnir í afmælisfagnaðinn.
„Ég veit lítið en þetta hlýtur að skýrast eitthvað
þegar nær dregur,“ segir Ásgeir.
Heimildir Sirkuss herma að þota muni fljúga
gestum Björgólfs Thors frá Reykjavíkurflugvelli
fimmtudaginn 29. mars næstkomandi og er áætluð
heimkoma mánudaginn 2. apríl.
Allt ætlaði um koll að keyra í janúar þegar annar
auðkýfingur, Ólafur Ólafsson, oftlega kenndur við
Samskip, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt. Ólafur
gerði sér lítið fyrir og fékk sjálfan Elton John til
að spila í afmælinu. Það uppátæki kostaði
Ólaf um sjötíu milljónir og vakti
töluverð viðbrögð í þjóðfélaginu. Ekki
má heldur gleyma bankamanninum
Ármanni Þorvaldssyni sem bauð
vinum sínum upp á Duran Duran í
nýársveislu sinni í London.
oskar@frettabladid.is
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON VERÐUR FERTUGUR Á MÁNUDAG
BÝÐUR VINUM OG VANDA-
MÖNNUM Í FIMM
DAGA ÓVISSUFERÐ
MEÐ VINI OG VANDAMENN Í ÓVISSUFERÐ Milljarða-
mæringurinn margfaldi Björgólfur Thor Björgólfsson
býður vinum sínum og vandamönnum í óvissuferð í
tilefni fertugsafmælis síns á mánudaginn næsta.
EKKI
PLÁSS Það er
ólíklegt að
Björgólfur
Thor geti komið öllum
gestunum fyrir í
stórglæsilegri
einkaflugvél sinni.
ENGINN ELTON Ekki virðist líklegt að Björgólfur Thor feti í fótspor Ólafs Ólafssonar sem fékk sjálfan Elton John til að syngja fyrir sig í fimmtugsafmæli sínu í janúar. Fótspor
bankamannsins Ármanns Þorvaldssonar í London verða heldur ekki fetuð en hann fékk Duran Duran til að spila í nýársveislu sinni.
„Ég held með Jógvan,“ segir Bríet Sunna Valde-
marsdóttir en hún og Ína Valgerður Pétursdóttir
mættu saman í Vetrargarðinn í Smáralind síðasta
föstudag til að horfa á X-faktor. Stelpurnar kynnt-
ust í fyrra þegar þær tóku þátt í Idol-stjörnuleit
og hafa verið vinkonur síðan. Bríet Sunna segir
hinn færeyska Jógvan frábæran söngvara og alveg
ægilega sætan. „Við vorum alveg slefandi yfir
honum,“ segir hún hlæjandi og Ína tekur undir að
Jógvan sé rosalega sætur. „Ég held samt ekki með
neinum sérstökum nema þá helst Gís en Íris í Gís
er vinkona mín. Kærastinn hennar er frá Húsa-
vík og svo kynntumst við í Idolinu í fyrra en Íris
komst í 35 manna hópinn.“
Stelpurnar eru sammála um að þótt X-faktor
sé skemmtileg keppni
hefðu þær ekki viljað
skipta sinni reynslu í
Idolinu út fyrir þátt-
töku í X-faktor. „Þetta
er allt öðruvísi þátt-
ur,“ segir Bríet Sunna
og Ína tekur undir.
„Það er eiginlega
ekki hægt að líkja
þeim saman. Mér
finnst þessi þátt-
ur skemmtilegur en
það er margt sem var
sniðugra í Idolinu og
svo öfugt.“ Aðspurð-
ar hvern þær telji
eiga eftir að standa
uppi sem sigurveg-
ara segja þær allt
geta gerst. „Það er
erfitt að keppa í
söng og þetta er í
rauninni bara vinsældakosning. Stundum eru
úrslitin alveg út í hött alveg eins og í Idolinu.
Þetta er svo lítið land og það er erfitt að segja
hvernig þetta fer.“
indiana@frettabladid.is
ÍNA HELDUR MEÐ GÍS Íris, sú dökkhærða í GÍS, er vinkona Ínu Valgerðar. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
VINKONUR Idolstjörnurnar Bríet Sunna og Ína
Valgerður skelltu sér í Vetrargarðinn og fylgdust með
X-faktor. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR
„Við vorum slefandi yfir Jógvan“
LANGSÆTASTUR Ínu og Bríeti finnst hinn
færeyski Jógvan langsætastur sem er
kannski skiljanlegt þar sem hann er eini
karlmaðurinn sem eftir er.
SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR