Fréttablaðið - 16.03.2007, Síða 48

Fréttablaðið - 16.03.2007, Síða 48
BLS. 8 | sirkus | 16. MARS 2007 „Við vorum heppin með listamenn enda er þetta mikilvægt málefni sem nauðsynlegt er að vekja athygli á,“ segir Alma Geirdal, formaður Forma, samtaka átröskunarsjúk- linga, en samtökin standa fyrir styrktartónleikum þann 1. apríl á Nasa. Á meðal listamanna sem koma fram á tónleikunum eru Björk Guðmundsdóttir, Lay Low, Pétur Ben og Mugison. Ráðamenn sem koma fram eru meðal annars heilbrigðisráðherra, borgarstjóri og landlæknir. Þau munu lesa upp úr dagbókum sjúklinga. Samtökin Forma, sem stofnuð voru af Ölmu og Eddu Ýrr Einarsdóttur, hafa verið dugleg að vekja athygli á málaflokkn- um en Alma segir meiri vakningu nauðsynlega í þjóðfélaginu. „Við viljum vekja fólk til umhugs- unar og sérstaklega ráðamenn þessa lands. Átröskun er enn þá nokkurs konar tabú og við verðum að bæta stöðu þessara einstaklinga sem þjást af sjúkdómnum,“ segir Alma og bætir við að þær tvær standi ekki lengur undir rekstri samtakanna. „Við viljum halda starfsemi okkar áfram og auk þess opna meðferðarheimili svo það verði aðgengilegra fyrir alla að fá hjálp. Átröskun er annar erfiðasti geðsjúkdómurinn og það ríkir mikil afneitun í kringum hann. Ekki bara hjá sjúklingunum heldur líka í samfélaginu. Það er ekki fyrr en einstaklingar eru orðnir fársjúkir að fólk rankar loks við sér,“ segir Alma og bætir við að átröskun fari ekki í manngreinarálit. „Yngsti sjúklingurinn sem lagður hefur verið á geðdeild með sjúkdóminn hér á landi var aðeins 8 ára og svo erum við með sjúklinga allt upp í sjötugt.“ Alma segir að lítið sé til af rannsóknum um sjúkdóminn hér á landi en vonast eftir breytingum þar á. „Fjölgunin í hópi sjúklinga er mikil og þessi útlitsdýrkun sem ríkir í samfélaginu er hættuleg. Í dag er enginn maður með mönnum nema vera í megrun og megrun er stór áhættuþáttur.“ Tónleikarnir eru 1. apríl á Nasa. Húsið opnar klukkan 19 en tónleikarnir hefjast klukkan 20. Miðasala fer í gang á Midi.is og í verslunum Skífunnar og BT. indiana@frettabladid.is Mikil afneitun í kringum átröskun ALMA GEIRDAL Alma segist vilja vekja fólk til umhugsunar um sjúkdóminn. Árný Hildur Árnadóttir lést þann 26. febrúar síðastliðinn eftir áralanga baráttu við átröskun. Árný var aðeins 31 árs og hafði barist við sjúkdóminn frá árinu 1997 eða í tíu ár. Árný hafði haldið úti heimasíðu þar sem hún lýsti baráttu sinni við anorexíuna á opinskáan hátt. Í viðtali við DV í júlí 2004 sagðist Árný Hildur oft hafa reynt að svipta sig lífi, slík væri skömmin sem fylgdi sjúkdómnum. Árný ólst upp í Keflavík og gekk í Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Hún var mikið í íþróttum sem barn og á heimasíðu hennar kemur fram að aðaláhugamál hennar hafi verið fótbolti og körfubolti auk vinnunnar. Árný lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja en eftir að hafa reynt fyrir sér í Háskóla Íslands færði hún sig yfir í Fjölbrauta- skólann við Ármúla á læknaritarabraut. Þrátt fyrir veikindin útskrifaðist hún sem læknaritari 2004 og starfaði sem læknaritari þar til hún lést. Á heimasíðu hennar kemur fram að Árnýju líkaði starfið mjög vel og gekk hún jafnvel svo langt að segja að vinnan héldi í henni lífinu. Árný var 52 kg áður en hún veiktist en þegar viðtalið birtist, fyrir þremur árum, var hún 35 kg og fannst hún feit. Þá sagðist hún stefna á 32 kg þrátt fyrir að finna fyrir orkuleysi þegar hún yrði svo létt. Þegar Árný greindist með sjúkdóminn var hún lögð inn á geðdeild og átti eftir að dvelja þar mikið til ársins 2000. Þegar hún gekk út af deildinni hafði hún gert veðmál við næturvörðinn því hún ætlaði sér ekki að koma aftur. Innan þriggja ára var hún aftur lögð inn. Árný starfaði á myndgreininga- sviði LSH til æviloka. Hún lést á heimili sínu í Keflavík. Lést eftir baráttu við átröskun ÁRNÝ HILDUR ÁRNADÓTTIR Árný lést eftir tíu ára baráttu við átröskun. Leiðbeiningar fyrir aðstandendur 1. Lærðu eins mikið og mögulegt er um sjúkdóminn. 2. Vertu virkur þátttakandi í stuðningshópi aðstandenda. 3. Talaðu beint og opinskátt við sjúklinginn um áhyggjur þínar er lúta að hegðun hennar/hans og því sem þú hefur tekið eftir í daglegu fari hennar/hans sem betur má fara. 4. Bjóddu sjúklingnum allar þær upplýsingar sem þú hefur komist yfir eða veist um er varða átröskun og meðferðarmöguleika. 5. Láttu í ljós tilfinningar þínar en vertu ákveðin(n). 6. Reyndu að vera markviss, róleg(ur) og vingjarnleg(ur) í umfjöllun um hegðun sjúklings er þig varðar. 7. Reyndu að halda heimilissiðum og venjum óbreyttum eða eins heilbrigðum og mögulegt er. 8. Reyndu eftir fremsta megni að forðast röskun í daglegu lífi hvort heldur það er í formi rifrildis, hótana eða ásakana er snúa að átröskuninni. 9. Hvettu sjúklinginn til að vera virkur þátttak- andi í umræðunni um meðferð og endurhæfingu ásamt þeim ákvörðunum er að henni/honum lúta. 10. Sýndu þolinmæði í samskiptum við sjúkling. 11. Hafðu það hugfast að það er engin ein orsök fyrir átröskunarsjúkdómum. 12. Ekki gleyma að hugsa um sjálfa(n) þig, það er að segja hugarró og tilfinningar þínar. 13. Ekki láta sjúklinginn stjórna gerðum þínum einungis vegna vorkunnsemi þinnar gagnvart henni/honum. Heimild:www.spegillinn.is Minningargrein móður Elsku hjartans dóttir mín, mikið á eftir að vera tómt hjá mér. Ég vonaði alltaf að þú mundir sigrast á sjúkdómn- um. Ég veit að þér líður vel þar sem þú ert komin til pabba þíns. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Guð geymi þig. Þín mamma. Birt með leyfi móður Árnýjar, Matthildar Óskarsdóttur. Ný sending mættu mátaðu upplifðu Rauðarárstíg 14 sími: 551 5477 www.trippen.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.