Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 54
16. MARS 2007 FÖSTUDAGUR6 fréttablaðið kópavogur
Flatkökurnar frá Kökuhorninu
í Bæjarlind njóta sívaxandi
vinsælda meðal Kópavogsbúa
og annarra landsmanna.
Gunnar Hólm Stefánsson er eig-
andi Kökuhornsins og á heiðurinn
af flatkökunum ásamt bróður
sínum Einari Hólm sem vann hjá
honum um tíma. Gunnar segir að
uppskriftin komi að norðan, en
þar eru þeir bræður uppaldir.
„Við viljum því ekki eigna
okkur þessa uppskrift, en við þró-
uðum hana aðeins áfram eftir
okkar höfði. Þetta eru ekta flat-
kökur að norðan og virðast fara
vel ofan í maga höfuðborgarbúa,“
sagði Gunnar og hló þegar Frétta-
blaðið leitaði upplýsinga um flat-
kökurnar. Þær hafa verið í sölu
hjá Kökuhorninu allt frá því að
það hóf starfsemi sína árið 1999.
Frá þeim tíma hefur hróður þeirra
aukist smátt og smátt og er nú svo
komið að flatkökurnar eru ómiss-
andi hluti af helgarmorgnum fólks
á öllum aldri.
„Þetta er að miklu leyti sama
fólkið sem kemur hér reglulega og
kaupir sinn skammt. Þetta er fólk
sem kemur hvaðanæva af landinu
og þeir sem koma lengra frá fá sér
helst ágætis birgðir og setja í
frystinn. Mér finnst samt alltaf
jafn spaugilegt þegar Norðlend-
ingar koma til okkar og kaupa
norðlenskar flatkökur í Kópa-
vogi,“ segir Gunnar en auk þess er
talsvert um að fólk panti stóra
skammta af flatkökunum til að fá
undir hangikjötið í veislum.
Flatkökurnar í Kökuhorninu
eru fjarri því að bragðast eins og
þær sem hægt er að fá í flestum
matvöruverslunum landsins. Þær
eru til að mynda mun þykkari og
einnig sætari. „Sumum finnst
bragðið of sætt og líkar alls ekki
við það. Þannig finnst mér smekk-
ur fólks vera; annaðhvort líkar því
við þetta bragð eða það fussar yfir
því. Það er eiginlega ekkert þar á
milli.“
Aðspurður um leyndarmálið á
bak við flatkökurnar er fátt um
svör hjá Gunnari. Hjá bökurum
eru dýrmætustu uppskriftirnar
flokkaðar undir hernaðarleynd-
armál, og eru norðlensku flat-
kökurnar þar engin undantekn-
ing.
Norðlensku flatkökurnar slá í gegn
Gunnar Hólm Stefánsson, eigandi Kökuhornsins í Bæjarlind, bakar um 150 til 200 flatkökur á hverjum morgni og þær rjúka oftast
út eins og heitar lummur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hestamenn í Kópavogi sitja ekki
auðum höndum frekar en vana-
lega. Dagskrá vetrarins er þétt-
skipuð og fjöldamargar áhuga-
verðar uppákomur fram undan.
Nú á laugardaginn 17. mars
verður farinn reiðtúr á vegum
Ármanna í Heiðmörk. Gustskór-
inn þenur raddböndin á stór-
skemmtun í Reiðhöllinni laugar-
dagskvöldið 24. mars. Páskabingó
verður haldið fyrir unga fólkið 28.
mars og þann 31. mars er Kvenna-
töltið sem hefur áunnið sér mikilla
vinsælda í gegnum tíðina.
Í apríl heldur fjörið svo áfram,
fyrst með Dymbilvikusýningu
þann 4. apríl og svo með fjöl-
breyttu mótahaldi og skemmtun-
um fram eftir vori.
Nánar á www.gustarar.is.
Margt á döfinni
hjá hestamönnum
Gustsfélagar eru virkir í félagslífinu.