Fréttablaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 68
BLS. 12 | sirkus | 16. MARS 2007
F rú Victoria Beckham hefur heldur betur tekið stakkaskipt-
um síðan hún kom fyrst fram í
dagsljósið sem Fína kryddið í
Kryddpíunum. Á sínum tíma brosti
Victoria litla þrátt fyrir að vera sú
alvarlega í hópnum. Síðan kynntist
hún efnilegum fótboltamanni og varð
yfir sig ástfangin. Í þá daga voru
skötuhjúin ósköp eðlileg, sýndu alúð
fyrir framan alþjóð og hlógu hvort að
öðru. Í dag eru hlutirnir aðeins
öðruvísi. Eftir þrjú börn hefur Vicky
heldur betur lagst undir hnífinn. Það
ætti ekki að fara fram hjá neinum.
Hún verður með hverjum deginum
óraunverulegri, ekki endilega
líkamlega, heldur frekar hvernig hún
hagar sér. Hún sýnir mjög sjaldan
tilfinningar og maður spyr sig hvort
hún finni fyrir nokkru. En vissulega
höfum við séð hana hlæja og gantast
í sjónvarpsupptökum, en er það hin
raunverulega Victoria? Núna er
daman að flytja til Los Angeles. Hún
er nú þegar komin með ljósa hárið.
Hvernig verður hún eftir fimm ár í
borginni þar sem ekkert er í alvöru?
Úr smáborgara í
Hollywood-plastdúkku
HOLLYWOOD-GELLA Victoria á eftir að fíla sig í botn í
Hollywood.
BLONDÍNA Victoria er orðin ljóshærð í
stíl við allar hinar bomburnar í
Hollywood.
KRYDDPÍURNAR Posh var sú alvarlega í hópnum eins og sést á
myndinni.
ÁSTFANGIN Svona hegðuðu þau sér áður en þau urðu að heimsveldi.
K atie Holmes og Tom Cruise eru æðislega dugleg að fara á
íþróttaleiki sonar Toms. Þau fara að
minnsta kosti einu sinni í viku. Það
getur verið leiðinlegt á svona
atburðum, en gátu þau ekki leynt
hvað þeim leiddist rosalega? Það er
eins og þau séu í helvíti. Eins og Tom
getur nú verið úber-hress þá hefur
hann aldrei sést með þennan svip.
Tomkat-hjónin að
drepast úr leiðindum
MYGLUÐ Katie Holmes gæti ekki verið meira sama um þennan körfuboltaleik og Tom
er á barmi taugaáfalls. Suri er hins vegar hin hressasta.
J á, Halle Berry á sér tvífara og er það enginn annar en hinn
brosmildi Sanjaya úr American Idol.
Hann er ekki aðeins þekktur fyrir
þetta stóra bros heldur er hann
óhræddur við að nota sléttujárnið.
Sanjaya og Halle—sama brosið og
sama hárið.
Tvífarar
vikunnar
TVÍFARAR Þau eru afar lík Halle Berry
og Sanjaya.
H ún Angelina Jolie má eiga það að hún sinnir sínu hjálparstarfi
með miklum sóma og mættu fleiri
stjörnur taka hana sér til fyrirmynd-
ar. Newsweek fór með leikkonunni til
Tsjad í Afríku þar sem þau heimsóttu
flóttamannabúðir og þessar myndir
voru teknar.
Angelina í
Tsjad
EINBEITT Í Tsjad að heimsækja
flóttamenn frá Darfur.
HÖRMUNGAR Angelina átti erfitt með að
fylgjast með í Tsjad.
ROSALEG STUND Angelina heldur utan
um ungan dreng í Tsjad.
HLÁTUR Það var brosað breitt á þessari
stundu.
Við fengum að vita í
síðustu viku að hin
gullfallega Salma Hayek
ætti von á barni.
Unnustinn heitir Francois-
Henri Pinault og er
franskur viðskiptamaður.
Margir hafa strítt herra
Pinault því hann minnir
óneitanlega mikið á Herra
Magoo. Hvað finnst ykkur?
Herra Magoo
að verða pabbi
HERRA OG FRÚ MAGGOO Salma Hayek
ásamt unnusta sínum og tilvonandi
barnsföður, Francois-Henri Pinault. Hann
er svolítið líkur Herra Magoo.