Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 100

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 100
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 EPIC MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA VENUS kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.30, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA NOTES ON A SCANDAL** kl. 8 B.I. 12 ÁRA PAN´S LABYRINTH ** kl. 10 B.I. 16 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE ** kl. 5.50 B.I. 7 ÁRA ** SÍÐUSTU SÝNINGAR EPIC MOVIE kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA EPIC MOVIE SÝND Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10 NORBIT kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 THE NUMBER 23 kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.30 og 5.40 EPIC MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA NORBIT kl. 6 og 8 SMOKIN ́ACES kl. 10 B.I. 16 ÁRA MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á FRÁBÆR GAMANMYND ÞAR SEM GERT ER GRÍN AF HELSTU STÓRMYNDUM SÍÐASTA ÁRS. UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN! ÞESSI ER STÓR... VIÐ MÆLDUM! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! "ÓVÆNT KVIKMYNDAPERLA SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA." - SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, RÁS 1 MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á Viddi, hljómborðsleikari Trabant, Bjössi, trommuleikari Mínus, og Tobbi úr Jeff Who? hafa gengið til liðs við hljómsveitina Motion Boys. Sveitin gaf nýverið út stuttskífu með lögunum Hold Me Closer to Your Heart og Waiting to Happen og hyggur á útgáfu sinnar fyrstu plötu síðar á árinu. Hingað til hafa meðlimir Motion Boys verið tveir, eða þeir Birgir Ís- leifur Gunnarsson, sem var áður í Byltunni, og Árni Rúnar, sem er einnig í Hairdoctor. Að sögn Birg- is Ísleifs hefur stefnan verið sett á fyrstu tónleikana í sögu sveitarinn- ar í vor. „Við erum ekki innilokaðir í neinum stíl og erum ekki hræddir við að prófa nýja hluti,“ segir Birg- ir um tónlist Motion Boys. Fjölgun hjá Motion Boys Hljómsveitin !!! sendi frá sér sína þriðju breiðskífu í síðustu viku. Steinþór Helgi Arnsteinsson heyrði í hluta af sveitinni af því tilefni. Hljómsveitin !!! (oftast borið fram chk chk chk en táknar í raun hvaða samhljóða sem er. Oft nefnd sú hljómsveit sem erfiðast er að gúggla) hefur verið starfandi í rúman áratug en meðlimir sveit- arinnar, átta talsins, hafa flestallir einnig starfað í öðrum hljómsveit- um, þekktust þeirra er án efa Out Hud. Vegna þessa hefur kannski virkni sveitarinnar alltaf verið í hámarki. !!! var stofnuð af nokkr- um vinum frá Sacramento og segir Allan Wilson, horn-, ásláttar og hljómborðsleikari sveitarinnar, að ætlunin hafi í byrjun eingöngu verið að semja dansvæna stuðtón- list, Nic Offer, söngvari !!!, segir tónlistina hins vegar vera funky- strange (skrýtin og fönkskotin). „Ef hún er til dæmis of lengi í bíln- um hjá mömmu, þá mun mamma slökkva á henni.“ !!! má vel kalla guðföður diskó- pönk senunnar og er sveitin oft nefnd í sömu anddrá og til dæmis The Rapture og Radio 4. Stað- reyndin er samt sú að !!! hafði spil- að tónlist í þessum dúr löngu áður en fyrrnefndar sveitir komu til sögunnar. Mér fannst því áhuga- vert að vita hvort þetta færi ekk- ert í taugarnar á !!!-liðum. „Við erum allt öðruvísi hljómsveit. Mér finnst okkar tónlist vera frjálsari og við höfum ekki eins augljósar tengingar við aðrar eldri hljóm- sveitir. Ég held líka að við sækjum okkar áhrif frá fleiri stöðum,“ út- skýrir Allan en bætir við að auð- vitað vilji !!! ekki eigna sér tilurð þessarar tónlistarstefnu. Umfjöllunarefni texta !!! eru oftar en ekki æði skrautleg en notkun eiturlyfja kemur þar oft við sögu. Sjálfur viðurkenn- ir Allan að meðlimir sveitarinnar hafi líklegast prófað öll þau eitur- lyf sem völ er á, fyrir utan heróín. „Ég myndi aldrei segja einhverj- um að hann ætti ekki að nota eit- urlyf en sá sem velur þau á annað borð á að nota þau skynsamlega.“ Eiturlyf eru þó á engan hátt tengd nafni nýju plötunnar, Myth Takes. Nic útskýrir nafnið á plöt- unni: „Platan er nefnd eftir lagi á plötunni sem segir frá krökkum sem flytja til New York til þess að eltast við rokkdraumagoðsögn- ina og hvernig þeir verða fyrir barðinu á þeirri goðsögn. Þannig að þetta er í raun um það hvern- ig goðsögn getur tekið eitthvað frá þér.“ Plötuna unnu piltarn- ir í samstarfi við Justin van der Volgen eins og svo oft áður en Nic segir að það sé afar ánægjulegt að vinna með honum. En telur hann ekki eðlilegt að róa þurfi á ný mið og vinna með öðrum upptökustjór- um? „Jú, kannski. Ef við finnum einhvern sem við teljum að geti ýtt okkur í aðrar áttir og skorað okkur á hólm, þá auðvitað. En ef við ættum að fara í upptökuver- ið á morgun myndi ég velja hann [Justin]. Við erum samt orðnir betri í að vinna plötur og að fram- kvæma það sem við viljum fram- kvæma.“ Framkvæmdagleðin sést best á nýju plötunni og sýnir og sann- ar hversu vel hljómsveitin kann á hið brothætta form framsækinnar dansrokk-tónlistar. Ættleiðing leikkonunnar Angel- inu Jolie á þriggja ára dreng frá Víetnam er gengin í gegn. Jolie sótti drenginn á munaðarleys- ingjahælið þar sem hann bjó og fylgdust fjölmiðlar með hverju fótmáli hennar. Með henni í för var fimm ára sonur hennar Maddox. Tuttugu börn tóku á móti þeim á hælinu klædd víetnömsk- um þjóðbúningum. Að sögn for- stöðumanns hælisins var stund- in þegar Jolie náði í drenginn afar tilfinningarík. „Þau reyndu að vingast við víetnamska dreng- inn, sem grét þegar hann sá þau vegna þess að þau eru ókunnugt fólk í hans augum,“ sagði for- stöðumaður hælisins. „Jolie gat varla haldið aftur af tilfinningum sínum. Þau reyndu bæði að hug- reysta þennan litla dreng.“ Jolie og Pitt heimsóttu mun- aðarleysingjahælið í Víetnam í nóvember síðastliðnum þar sem þau komu auga á drenginn. Hafði hann verið yfirgefinn fljótlega eftir að hann fæddist og hafði búið á munaðarleysingjahælinu allar götur síðan. Talið er að víetnömsk yfirvöld hafi fengið beiðnina um ættleið- inguna í byrjun mars og því er ljóst að leikaraparið fræga fékk sannkallaða flýtimeðferð þar í landi. Venjan er að ættleiðing- ar taki allt að hálft ár en ef bak- grunnur þeirra sem óska eftir ættleiðingunni er í lagi og góð fjárhagsstaða er til staðar, er hægt að flýta ferlinu. Jolie sótti um ættleiðinguna sem einstæð móðir vegna þess að hún hefur enn ekki gengið í hjónaband með Brad Pitt. Jolie, sem er 31 árs, hefur áður ættleitt tvö börn, annað frá Kambódíu og hitt frá Eþíópíu, þau Maddox og Zahöru. Á síðasta ári eignaðist hún síðan dóttur- ina Shiloh Nouvel Jolie-Pitt með kærasta sínum, leikaranum Brad Pitt. Jolie og Pitt eiga nú fjögur börn og spurningin er hvort þeim eigi eftir að fjölga eitthvað eða hvort þau ætli nú að láta staðar numið. Jolie ættleiðir í Víetnam Kvikmyndaframleiðandinn Dream- works, sem er m.a. í eigu Stevens Spielberg, ætlar að gera að minnsta kosti eina kvikmynd um belgísku teiknimyndahetjuna Tinna. Er fyrsta myndin væntanleg í kvik- myndahús eftir um það bil tvö ár. Ekki er vitað á hvaða bók um Tinna myndin verður byggð en þær eru alls 24 talsins. „Ef fyrsta mynd- in gengur vel munum við halda áfram með verkefnið,“ sagði Nick Rodwell hjá Herge Studios. Lengi hefur verið beðið eftir kvikmynd um blaðasnápinn Tinna sem hjálpar fólki og kemur glæpa- mönnum á bak við lás og slá með að- stoð hundsins Tobba og fleiri vina. Mynd um Tinna vaxtaauki! 10%
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.