Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 101

Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 101
FEITASTA GRÍNMYND ÁRSINS Frönsk- Kvikmyndahátíð 3.Mars Til 1. Apríl 300. kl. 6:30 - 9 - 11:30 B.i.16 BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 B.i.12 LETTERS FROM IWO ... kl. 5:30 B.i.16 BLOOD DIAMOND kl. 10:15 B.i.16 TELL NO ONE kl 17:40 HORS DE PRIX kl TRAVAUX kl.17:45 LA CÉRÉMONIE kl.20:00 LES AMANTS REGULIERS kl.22:15 BREAKING AND ENTERING STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI DIGITALBREAKING AND ENTERING kl. 5:50 B.i.12 BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 4 - 6:10 Leyfð VEFURINN HE... M/- Ísl tal kl. 3:40 Leyfð FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 3:40 Leyfð SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 3:40 Leyfð 300. kl. 5:30 - 8 - 10:10 -10:30 B.i.16 NORBIT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 Leyfð MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 Leyfð BRIDGE TO TE... M/- Ísl tal kl. 3:30 Leyfð VEFURINN HEN... M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð DIGITAL DIGITAL 300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 MUSIC & LYRICS kl. 6 - 8 Leyfð BLOOD & CHOCOLATE kl 10 B.i.12 300. kl.5:30-8-9:15-10:30 B.i.16 300. VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30 BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 - 10:30 B.i.12 MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 Leyfð SMOKIN ACES kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.16 UPPSELT – TR YGG ÐU ÞÉR MI ÐA NÚN A – KVIKMYNDAUPPLIFUN ÁRSINS 300 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 LAST KING OF S... kl. 10 B.i. 16 BRIDGE TO TERABITHIA kl. 6 Leyfð NUMBER 23 kl. 8 B.i. 16 UPPSELT VJV TOPP5.IS hefur þú einhvern tíman gert mjög stór mistök? Maurice og Ian eru leikarar sem mega muna fífil sinn fegurri. Áður fylktu áhorfendur liði í leikhúsið til að berja þá augum en nú er liðið á ævikvöldið og hlutverkin ekki upp á marga fiska; Maurice fær stöku sinnum að geispa golunni í kvik- myndum en Ian hefur enn vott af sjálfsvirðingu og tekur ekki í mál að leika lík. Fyrir utan hvorn annan eiga þeir félagsskap í fáum og lifa nánast sem hjón, graðga í sig pillum saman á morgnana, klippa tánegl- urnar hvor á öðrum og lesa minn- ingargreinar um fallna kollega. Þegar ung frænka Ians flytur inn á frænda sinn hugsar hann sér gott til glóðarinnar og býst við að það verði stjanað við sig til æviloka. Frænkan reynist hins vegar for- hertur vandræðaunglingur sem hefur annað í huga en að hjúkra gamalmennum. Kvennaflagarinn Maurice býðst þá til að taka stúlk- una upp á sína arma, lóðsa hana um London og kúltívera en lætur þess ógetið hvað hangir á spýtunni. Rithöfundurinn Hanif Kureishi á heiðurinn af handritinu sem er býsna sterkt; myndin er allt í senn bráðfyndin og harmræn. Samskipti Ians og Maurice eru til dæmis kostuleg en það er stutt í tregann og sagan sveiflast listilega þarna á milli. Það er mikið haust í sögunni og hrörnun leikur stórt hlutverk, stundum í kómísku ljósi, en heild- armyndin sem dregin er upp af hlutskipti eldri borgara er raunsæ- islega ófögur. Hér er þó líka hlýja því Venus er öðrum þræði þroska- saga og minnir óneitanlega á aðra slíka þótt ólíkar séu, það er Harold og Maude eftir Hal Asby. Ekkert hefur verið ýkt um frammistöðu Peters O’Toole í aðal- hlutverkinu, hann er hreint út sagt frábær í hlutverki Maurice, manns sem hefur lifað lífinu á eigin for- sendum og látið aðra sitja á hak- anum, jafnvel konu sína og börn. Eftir því sem á líður verður honum æ betur ljóst að tilraun hans til að seilast eftir æskuþrótti Jessie er andvana fædd og á grafarbakk- anum stendur hann frammi fyrir þeirri staðreynd að hann er einn og yfirgefinn og hefur ekki hugmynd um hver hann er. Leslie Phillips gefur O’Toole lítið eftir í hlutverki taugahrúg- unnar Ians; Vanessa Redgrave er traust að vanda og nýliðinn Jodie Whittaker, sem leikur vandræða- gemsann Jessie, lofar afar góðu. Naflaskoðun á grafarbakka Netfyrirtækið Wippit býður nú dyggum að- dáendum Bítlanna að hlaða niður sjald- séðum myndum af hljómsveitinni og ein- stökum hljóðupptök- um með viðtölum við hljómsveitarmeðlim- ina fjóra. Þá verður einnig hægt að hlaða niður sjónvarpsfrétt- um af Bítlaæðinu sem greip heimsbyggðina í kringum 1964, brúð- kaupi Pauls og Lindu McCartney og rúmlegu John Lennon og Yoko Ono. Jafnframt fá netverjar að sjá þegar fjórmenningarnir frá Liver- pool mæta á hvers kyns verðlauna- hátíðir, félagana á tökustað mynd- arinnar Help! og fundum sínum með hefðarfólki. Enn sem komið er verður þó ekki hægt að hlaða niður lögum Bítlanna þar sem hljómsveit- armeðlimirnir og EMI Records þrá- ast við að gefa leyfi. Wippit birti frétt þess efnis að hægt yrði að kaupa lög hljómsveitar- innar en fulltrúar útgáfufyrirtækis- ins heimtuðu að sú frétt yrði tekin út af síðu Wippit. Fastlega er þó gert ráð fyrir að það verði hægt á næstunni og má þá búast við því að annað og ögn tæknivæddara Bítlaæði gangi yfir hina netvæddu heimsbyggð. Bítlarnir á netinu Grannt er fylgst með Britn- ey Spears af gulu pressunni í Bandaríkjunum. Nýjasta nýtt úr meðferð söngkon- unnar er að hún sé komin með nýjan mann sér við hlið. Sá heitir Jason Filyaw og er gít- arleikari rokkhljómsveitarinnar Riva sem ekki hefur náð miklum frama í tónlistarbransanum. Fily- aw hefur stutt dyggilega við bakið á Spears og greinir slúðurblaðið National Enquirer frá því að þau hafi hist á AA-fundi. Þá telur blað- ið sig hafa heimildir fyrir því að Spears dýrki og dái gítarleikarann sem er átta árum eldri en hún og hafi jafnvel í hyggju að flytjast inn til hans þegar meðferðinni á Prom- ises er lokið. Ef marka má frétt blaðsins hefur Filyaw verið klett- urinn í lífi Spears og haldið henni við efnið. Miklu máli skiptir fyrir Spears að Filyaw er sjálfur alkóhólisti og hefur því getað miðlað af visku sinni til Spears og veit þar af leið- andi líka í gegnum hvers slags hel- víti Spears hefur þurft að ganga. Enquirer heldur því fram að Spears og Filyaw hringist á daglega og hefur hann kallað poppprinsess- una meðal annars Sugar, Kitten og My Lady. Spears lætur hins vegar viðurnefnin Mr. Secret, Underg- round Guy og J-Sun nægja. Filyaw vildi ekkert tjá sig um málið þegar Enquirer innti hann eftir svörum. Slúðurvefurinn tmz.com náði hins vegar tali af rokkaranum og þar lýsti Filyaw því yfir að hann elsk- aði Britney af öllu hjarta og myndi styðja hana heils hugar. Bandarískir fjölmiðlar höfðu spáð því að Spears myndi taka saman við Kevin Federline á nýjan leik en hann sást fara inn á með- ferðarheimili hennar og hefur að sögn heimildarmanna reynst eig- inkonunninni fyrrverandi betri en enginn. Frétt Enquirer bendir hins vegar til þess að Spears ætli sér að hefja nýtt líf með nýjum manni þegar hún losnar af heimil- inu. Jafnframt hafa borist fregnir af skapofsavandamáli Britneys og hún sögð þamba 24 kókdósir á dag. „Hún getur brjálast af minnsta til- efni og krefst þess að fá að ráða þernu sér til aðstoðar enda nennir hún ekki að þrífa eftir sig,“ sagði starfsmaður meðferðarheimilisins við götublaðið Star. Hugh Grant hefur aldrei verið betri. Gildir ekki í lúxus VIP og ekki á önnur tilboð Gildir til og með 16. mars sem fær þig til að grenja úr hlátri. Rómantísk gamanmynd
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.