Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2007, Qupperneq 106

Fréttablaðið - 16.03.2007, Qupperneq 106
 Stjörnustúlkur geta stigið stórt skref í átt að fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í átta ár þegar þær sækja Valsstúlkur heim í Laugardalshöllina í DHL- deild kvenna í kvöld en með sigri getur liðið náð fjögurra stiga for- skoti á toppnum auk þess að eiga leik inni. Til að svo geti farið þarf Stjörnuliðið að gera eitthvað sem hefur ekki tekist í vetur – að vinna Val. „Við erum búnar að tapa báðum leikjunum og ég veit eiginlega ekki af hverju. Við spiluðum illa á móti þeim og þær voru virkilega vel stemmdar og spiluðu vel í báðum þessum leikjum á móti okkur,“ segir Rakel Dögg Bragadóttir sem er markahæsti leikmaður Stjörn- unnar í vetur. „Vandamálið hjá okkur á móti Val er búið að vera okkar sóknarleikur. Við þurfum að hugsa um okkar sóknarleik,“ segir Rakel en Stjarnan sem hefur skor- að 31,6 mörk að meðaltali í deild- inni í vetur hefur aðeins skorað 36 mörk samtals í leikjunum á móti Val. „Mér finnst Valsliðið rosa- lega sterkt þótt þær hafi verið að klúðra málunum sínum í und- anförnum leikjum,“ segir Rakel en Valsliðið tapaði meðal annars mjög óvænt á móti Fram á dögun- um og verður að vinna Stjörnuna ætli liðið sér titilinn. Rakel segist alveg sjá í gegn um sálfræðibragð Ágústar Jóhanns- sonar þjálfara um að Valsliðið sé bara sátt með 2. sætið. „Þær eru að setja pressuna á okkur og fría sjálfar sig um leið undan ábyrgð. Það er krafa hjá okkur að klára þennan leik á móti Val sem og þá tvo næstu sem eru á móti Gróttu og Haukum. Næstu tíu dagar eru aðaldagarnir fyrir okkur,“ segir Rakel. „Ef við klárum þessa leiki lítur þetta óskaplega vel út fyrir okkur en það þarf ekki mikið að fara úrskeiðis til þess að Valur sé komið upp að hliðinni á okkur. Við þurfum að halda einbeitingunni,“ segir Rakel og hún veit að Garð- bæingar vilja fá titilinn heim. „Það er verið að krefjast titils alls staðar í Garðabænum núna,“ segir Rakel sem hefur skorað 7,1 mark að meðaltali í leik í vetur en „aðeins“ 7 mörk samtals í leikjun- um tveimur á móti Val. „Ég var ekki sátt með minn leik síðast á móti Val og vil bæta úr því eins og við allar í liðinu. Við erum með rosalega góða breidd og ef við náum að nýta hana rétt þá er erf- itt fyrir lið að mæta okkur,“ segir Rakel að lokum. Tekst Stjörnunni loksins að leggja Val að velli? Í kvöld er stórleik- ur í Kölnarena er Gummersbach tekur á móti meisturum Kiel í þýsku úrvalsdeildinni. Þrír lands- liðsmenn eru í lykilhlutverk- um hjá Gummersbach sem og að landsliðsþjálfarinn Alfreð Gísla- son stýrir liðinu. „Það eru tvö stig í boði eins og venjulega,“ sagði Guðjón Valur við Fréttablaðið í gær af sinni al- kunnu yfirvegun. „En ef við vinn- um getum við jafnað toppliðið. Við höfum spilað marga toppleiki upp á síðkastið og menn ættu því að vera orðnir vanir þeim aðstæð- um,“ sagði hann. Kiel er í efsta sæti deildarinn- ar með 40 stig en Hamburg og Gummersbach koma næst með 38 stig. Hamburg er með hagstæðari markatölu. Kiel hefur lengi verið topplið í þýska boltanum og unnið deildina í níu skipti síðustu þrett- án tímabil. Gummersbach varð síðast Þýskalandsmeistari árið 1991. Mikið hefur mætt á handbolta- köppum undanfarið eftir mikla keyrslu á HM. Þýska deildin hófst svo aðeins viku síðar og hafa Evr- ópukeppnirnar einnig verið í full- um gangi. Guðjón Valur segist þó vera í góðu ásigkomulagi þótt hann hafi spilað nánast hverja einustu mínútu sem hægt var á HM. „Ætli andlega áreitið hafi ekki verið meira en það líkamlega. Ég átti fyrst og fremst erfitt með að sætta mig við niðurstöðuna. Ég hef svo sem ekki verið fullkom- lega sáttur við alla mína leiki með Gummersbach síðan HM lauk en líkamlega líður mér mjög vel,“ sagði hann. „Við munum koma vel úthvíld- ir til leiks á morgun enda spiluð- um við síðast á laugardaginn. Al- freð hefur því haft góðan tíma til að undirbúa okkur fyrir þennan leik.“ Gummersbach datt úr leik í fjórðungsúrslitum Meistara- deildarinnar fyrir spænska liðinu Valladolid. Guðjón Valur segir að það hafi verið gríðarlega svekkj- andi. „Við vorum og erum enn afar svekktir með þá niðurstöðu. Við vorum með þetta í höndunum en Valladolid spilaði frábærlega og átti skilað að vinna. Nú gildir það að tryggja okkur inn í Meistara- deildina næsta tímabil.“ Efstu þrjú liðin í deildinni tryggja sér þátttökurétt í deild- inni næsta tímabil en ef þýskt lið vinnur keppnina í vor komast efstu fjögur liðin áfram. Guðjón Valur segir að mikið sé eftir af tímabilinu og ekkert sé í höfn þó að liðið vinni Kiel í kvöld. „Það er þó rétt að mögu- leikar á titlinum minnka mikið ef við töpum í kvöld en við erum fyrst og fremst að einbeita okkur að Meistaradeildarsæti. Allt liðið hefur verið að spila vel að undan- förnu og það ætti einnig að koma okkur til góða að við erum eina liðið af efstu fimm í deildinni sem eru ekki lengur með í Evrópu- keppnunum.“ Leikurinn hefst klukkan 18.30 í kvöld og er í beinni útsendingu á Sýn. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach taka á móti Kiel í toppslag þýska boltans í kvöld. Uppselt er í Kölnarena þar sem 19.400 manns sjá leikinn. Leik FH og HB frá Fær- eyjum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Um er að ræða árlegan leik Íslands- og Fær- eyjameistaranna í knattspyrnu sem hefur farið fram undanfar- in fimm ár undir heitinu Atlant- ic Cup. Nú mun keppnin framveg- is heita NATA Cup þar sem nýtt fyrirkomulag er á fjármögnun keppninnar. „Það er búið að fresta leikn- um og knattspyrnusamböndin eru nú að reyna að finna leikdag sem gæti gengið upp fyrir báða aðila,“ sagði Birkir Sveinsson, móta- stjóri KSÍ, við Fréttablaðið í gær. Vestnorrænn samstarfssamn- ingur hefur fjármagnað keppn- ina undanfarin ár en sá samn- ingstími er nú liðinn. „Við vissum ekki af þessu fyrr en allt of seint. Nú hefur annar samstarfssamn- ingur, NATA, tekið að sér að fjár- magna keppnina. Það er því ljóst að ef svo fer að leikurinn fari ekki fram í vor verður þráðurinn tekinn upp að nýju á næsta ári.“ Leitað að nýj- um leikdegi Einvígi Njarðvíkur og Hamars/Selfoss annars vegar og Skallagríms og Grindavíkur hins vegar hefjast í kvöld klukkan 19.15 í Njarðvík og Borgarnesi. Njarðvík sló Hamar 2-0 út úr 8 liða úrslitunum í eina skiptið sem liðin hafa mæst en Skallagrím- ur og Grindavík eru hins vegar að mætast í fjórða sinn þar af annað árið í röð. Það vekur athygli að í öll þrjú skiptin hefur liðið með heima- vallarréttinn unnið einvígið 2-0. Grindavík vann einvígi liðanna 1996 og 1997 og fór síðan alla leið í lokaúrslitin. Skallagrímur vann síðan einvígi liðanna í fyrra 2-0 og fór þá líka alla leið í lokaúrslit- in á móti Njarðvík. Aldrei farið í oddaleik Guðmundur E. Step- hensen, Íslandsmeistari í borð- tennis, er kominn í úrslit um sænska meistaratitilinn ásamt félögum sínum í sænska liðinu Eslövs. Eslövs vann 5-1 stórsigur á Lyckeby BTK í seinni leik liðsins í undanúrslitum en fyrri viður- eignina vann liðið 5-2. Guðmund- ur vann tvo af þremur leikjum sínum í einvíginu þar af öruggan 3-1 sigur á Henrik Rosvall í seinni leiknum. Guðmundur og félagar mæta BTK Rekord í úrslitunum sem hefjast 6. apríl næstkomandi. Guðmundur og félagar í úrslit Phoenix Suns vann 129-127 sigur á Dallas í tvífram- lengdum leik í uppgjöri tveggja bestu NBA-liðanna í fyrrakvöld. Þetta var annað tap Dallas í röð eftir að liðið vann 17 leiki í röð. Leikurinn boðar gott fyrir úr- slitakeppnina en hann var upp- fullur af miklum sveiflum og mik- illi dramatík. Amare Stoudem- ire hjá Phoenic stal senunni í lok leiksins en hann endaði leikinn með 41 stigi og 10 fráköst. Steve Nash bætti við 32 stigum og 16 stoðsendingum fyrir Phoenix og tryggði meðal annars fyrri fram- lenginguna með því að skora 10 stig á lokamínútu leiksins. Hjá Dallas var Jerry Stack- house með 33 stig og Dirk Nowitz- ki bætti við 30 stigum, 16 fráköst- um og 6 stoðsendingum. Jason Terry tryggði Dallas seinni fram- lenginguna með þriggja stiga körfu en tvær troðslur og alls 6 stig frá Stoudemire gerðu úti um seinni framlenginguna. Tvíframlengt í toppslagnum SPRON hefur ákveð- ið að styðja vel við bakið á Rögnu Ingólfsdóttur sem er að fara að gera lokaatlöguna við að kom- ast inn á Ólympíuleikana í Peking 2008. Samningurinn er til tveggja ára og á sams konar nótum og sá sem SPRON hefur gert við stang- arstökkvarann Þóreyju Eddu Elís- dóttur. „Ég vil fara á mótin í Asíu sem er mjög dýrt að fara á. Það skiptir því miklu máli að fá svona styrk. Þessi mót gefa miklu fleiri stig en mótin í Evrópu. Ég hef líka aldrei farið til Asíu þannig að ég þarf að prófa það núna í sumar. Ég þarf að sjá hvern- ig þetta er því Ólympíuleikarnir eru í Peking,“ sagði Ragna eftir að hún hafði skrifað undir samning- inn í gær. Markmiðið með honum er að auðvelda Rögnu undirbúning og þátttöku í æfinga- og keppnis- ferðum. „Þessi styrkur skiptir mjög miklu máli fyrir mig og ég sé ekki fram á að ég hefði getað gert það sem ég vil gera til að komast á Ólympíuleik- ana nema af því að ég fékk þenn- an styrk. Ég trúi þessu fyrst núna þegar ég er búin að skrifa undir,“ segir Ragna kát og hún er staðráðin í að komast til Peking. „Ég stefndi á að komast á Ólymp- íuleikana fyrir fjórum árum þannig að nú er ég reynslunni ríkari. Ég trúi því innilega að ég komist á leikana í Peking og efast ekki um það,“ segir Ragna full sjálfstrausts og það er ljóst að frábær frammi- staða hennar síðustu mánuði gefur henni ástæðu til bjartsýni. „Hún er að reyna að vinna sig upp heimslistann og komast í góða stöðu fyrir 1. maí. Hún er í 50. sæti á heimslistanum og við erum að vonast til þess að hún komist niður í 40. sæti fyrir 1. maí. Það er geysilega sterkt að vera komin svona hátt,“ sagði Árni Þór Hall- grímsson, landsliðsþjálfari Ís- lands í badminton, og bætir við. „Ég fór á fyrstu badminton- leikana í Barcelona 1992 og það var alveg meiri háttar gaman. Vonandi tekst henni að komast til Peking því hún á mjög góða mögu- leika. Leikarnir eru á fjögurra ára fresti og þátttökulágmörkin eru gríðarlega ströng og erfið þannig að það verður einstakt afrek hjá henni nái hún þessu.“ Bjartsýn á að komast til Peking
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.