Fréttablaðið - 16.03.2007, Síða 110
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég er alveg æðislega tunglsjúk-
ur maður, má ekki sjá fullt
tungl, því þá verð ég hálfvit-
laus.“
Matreiðslumaðurinn Siggi Hall
er afar ósáttur við þá umræðu
að veitingastaðir hér á landi hafi
ekki lækkað verð sitt nóg eftir að
virðisaukaskattur var lækkaður
á dögunum.
Hann telur jafnframt að sá
verðsamanburður sem hafi verið
gerður á veitingastöðum hérlend-
is og erlendis sé engan veginn við
hæfi, auk þess sem ekki sé hægt
að setja alla matsölustaði hér
undir sama hatt. „Veitingastað-
ir hafa átt undir högga að sækja.
Mikið af tekjum þeirra fer í ríkis-
kassann og mér finnst ómaklega
að þeim vegið af forráðamönnum
þjóðarinnar,“ segir Siggi Hall.
Meðal annars tekur hann fram
að álagning á vín sé fram úr öllu
hófi og miklu meiri en gengur og
gerist erlendis. „Það er ekki held-
ur hægt að taka skyndibitastaði
og bera þá saman við veitinga-
staði í þessum hærri enda. Það
geta allir séð á verðinu hjá mér að
það hefur lækkað því mér fannst
mér bera skylda til þess. Það er
mjög erfitt að standa í þessu. Öll
þjónusta, dúkar, húsnæði, kerta-
ljós og allt sem er vaskað, þrifið
og eldað. Það eru nokkrir starfs-
menn sem eyða klukkutímum í
það og við þurfum að borga at-
vinnufólki vel. Ég hef ferðast
mikið erlendis og hef mikinn
samanburð. Það er ekki hægt
að taka samanburð á pitsustað
og bera saman kvöldverð með
spaghettíi og ódýru rauðvíni
við dýrustu stað-
ina heima,“ segir
Siggi. „Birgjarn-
ir hafa hækkað
sig en þeir hafa
ekki verið tekn-
ir fyrir. Þetta er
mikið óréttlæti
og ég er orð-
inn leiður á
að standa
í veitinga-
rekstri
í erfið-
um kring-
umstæð-
um. Ekki
erum við
að græða
milljónirn-
ar þessir veitingamenn og sem
betur fer fær maður stundum
aukavinnu. Ástæðan fyrir því að
ég er í þessu er að þetta er ástríða
mín, ekki það að ég haldi að ég
verði einhver milljónamæringur
á þessu.“
Ómaklega vegið að veitingastöðum
„Ég datt í hálkunni fyrir utan upp-
tökuverið mitt í morgun [gær]
og braut bein í vinstri upphand-
legg,“ segir Vignir Snær Vigfús-
son, gítarleikarinn góðkunni og
tónlistarstjóri sjónvarpsþáttarins
X-Factor. Vignir tók enga áhættu
og hringdi á sjúkrabíl sem flutti
hann á slysavarðstofuna þar sem
gert var að brotinu. „Ég er líka
bara með þennan sígilda sársauk-
astuðul karla, er óttaleg kveif og
þoli voðalega lítið,“ segir Vign-
ir sem sat heima hjá sér, ber að
ofan enda komst hann í enga flík
sökum gifsins og á góðum verkja-
lyfjum. „Ég er nú reyndar búinn
að vera ónýtur í hendinni undan-
farna fjóra mánuði og hef látið
líta á hana öðru hvoru en læknarn-
ir hafa ekkert fundið. Kannski er
þetta bara lán í óláni því nú verð-
ur kannski hægt að finna hvað er
að,“ útskýrir Vignir.
Þetta eru eðlilega mjög erfið
meiðsl fyrir Vigni sem þarf að
hafa hendurnar í góðu lagi starfs-
ins vegna. Varla má gefa út geisla-
disk hér á landi án þess að gítar-
leikarinn komi þar að og hann við-
urkennir að þetta setji vissulega
strik í reikninginn. „Reyndar get
ég ennþá tekið upp og framleitt
tónlist en það verður ögn erfiðara
og nánast útilokað að slá á streng-
ina næstu mánuði,“ segir Vignir.
Mesta áfallið er þó að geta ekki
lengur spilað undir með hús-
hljómsveitinni í X-Factor en Vign-
ir telur sig hafa fundið góðan arf-
taka í Gunnari Þór úr Sóldögg.
„Hann er reyndar miklu betri
gítarleikari heldur en ég,“ segir
Vignir sem áfram mun þó aðstoða
keppendurna í allri stúdíóvinnu.
Brotinn Vignir Snær en ekki beygður
„Ég vissi varla hvaðan á mig stóð
veðrið,“ segir Kristinn Gísli Guð-
mundsson. En á mánudagskvöld-
inu fékk hann símhringingu frá
góðum félögum sem vinsamlegast
bentu honum á að horfa á mynd-
bandið við framlag Íslendinga í
Eurovision, Valentines Lost. Þar
sést hárbróðir Kristins, Eiríkur
Hauksson, rúnta um í Hvalfirðin-
um ásamt hljómsveit í glæsibif-
reið með bílnúmerið „Big Red“.
Númer sem Kristinn er þekkt-
ur fyrir að hafa haft á sínum bíl í
nokkur ár og vakið verðskuldaða
athygli fyrir.
„Ég skilaði númerinu inn fyrir
tveimur árum en á réttinn til árs-
ins 2012,“ segir Kristinn. „Og
þarna var þessu númeri mínu
hreinlega rænt,“ bætir hann við og
skellihlær, tekur þessum meinta
þjófnaði augljóslega af mikilli létt-
úð. „Samt finnst mér að þeir ættu
nú bara að bjóða mér til Finnlands
í staðinn,“ segir Kristinn í gríni.
Reyndar hefur annar Íslendingur
hefur borið þetta viðurnefni Big
Read og hlotið mikla frægð fyrir
en Kristinn segir að Steingrímur
Hermannsson, fyrrum forsætis-
ráðherra, hafi verið kallaður þessu
nafni þegar hann glímdi
í Bandaríkjunum
á yngri árum.
Gunnari
Birni Guð-
mundssyni,
leikstjóra mynd-
bandsins, brá
heldur betur í
brún þegar Frétta-
blaðið hermdi
þennan óheppi-
lega stuld
upp á hann.
Honum þótti þetta miður, að hafa
ekki kynnt sér þetta betur og enn
verra fannst honum að hafa rænt
númeri frá sveitunga sínum úr
Hafnafirði. „Hefði ég bara vitað
þetta,“ segir Gunnar. „Þá hefði
ég aldrei gert þetta,“ útskýr-
ir leikstjórinn. „Þetta eru
augljóslega listræn mis-
tök,“ bætir hann við. Gunn-
ar segir að þeir hafi haft úr
tuttugu númerum að velja
og honum hafi strax fund-
ist Big Red henta ákaflega
vel enda hefur mikið
verið gert úr hára-
lit Eiríks. „Það verð-
ur að viðurkennast að
þetta var klaufa-
legt af okkur,
að kynna
okkur ekki
númerin
betur,“
bætir Gunnar við. „Ég verð að
reyna koma þeim tveim saman og
láta Eirík afhenda honum þetta
númer. Kannski bara þegar Ei-
ríkur er búinn að vinna
keppnina úti,“ segir
Gunnar sem hefur
tröllatrú á söngvar-
anum í keppninni.
„En Kristinn má
vera stoltur. Núm-
erið hans á eftir að
birtast í myndbandi
sem verður spilað
útum alla Evrópu.“
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is